Morgunn - 01.06.1959, Síða 38
32
MORGUNN
leikar Williams brotizt fram einstölcu sinnum, svo að
hann skynjaði eitthvað af þessari kvikmyndaræmu, sem
hr. Turvey talar um. Vér vitum ekki, hversvegna þessi
vitrun var gefin honum. Var honum gefin þessi vitrun
til þess að hann færi rakleiðis til London, eins og hann
var kominn á fremsta hlunn að gera, til þess að veita
í aðra átt straumi forlaganna? Eða var þessi vitrun
engin persónuleg gjöf til hans, fremur en margar af spá-
vitrunum hr. Turveys voru? Vér vitum það ekki. En hér
er á ferðinni staðreynd, eins augljós og Nelsonsstyttan
í London, og það er hvorki vísindalegt né skynsamlegt
að snúa sér undan, þykjast ekki sjá hana og reyna ekki
að finna henni stað í alheimsmyndinni. Hr. Turvey hefir
sagt, að hann hafi skynjað með sálrænum liætti milclu
meira af óþægilegum en þægilegum fyrirbrigðum.
Reynsla hr. Williams gengur í sömu átt. Þetta kann að
styðja þá tilgátu, að vitranir séu veittar í þeim tilgangi
að afstýra vissum atburðum, koma í veg fyrir þá. Þegar
það er haft í huga, að þarna er mynd af forsal brezlca
þingsins sýnd í draumi einum þeirra sárfáu manna í
Cornwall, sem þekktu þann stað, bendir það vissulega
til þess, að vitrunin hafi eklci verið gefin út í bláinn,
heldur í ákveðnum tilgangi. Því verður elcki neitað, að
bæði þessi spásýn og margar aðrar sýnast styðja sjónar-
mið þeirra, sem lialda því fram, að lífsrás vor mannanna
sé álcveðin fyrirfram. En á hinn bóginn verða fyrir þeim
manni, sem er að rannsaka þessi efni, margar staðreynd-
ir, sem gefa þá huggunarríku vissu, að enda þótt líf
mannsins kunni að vera fyrirfram ráðið í höfuðatriðum,
er þó rúm fyrir frjálsan vilja til breytinga á útkomunni.
Mér er kunnugt t. d. urn mann, sem fékk draumvitrun
um langa röð samfelldra atburða í lífi sínu, sem enduðu
á því, að hann fór niður í kolanámu. Nokkurum mánuð-
um síðar lifði hann alla þessa viðburðarás, nákvæmlega
á sama hátt og honum hafði vitrazt, en þegar að kola-
námunni kom sagði leiðsögumaður hans við hann: ,,Ég