Morgunn - 01.06.1959, Page 47
MORGUNN
41
þessi öfl megi nota i þjónustu réttvísinnar á jörðunni með
góðum árangri. Hér er dæmi, sem sannar það:
Bræður tveir, Eugene og Paul Dupont, áttu heima
fyrir um það bil fimmtíu árum í Rue St. Honoré í París-
arborg. Eugene var bankastjóri, Paul var menntamaður.
Þá bar svo til að Eugene hvarf, og hvernig sem leitað
var, varð ekkert uppvíst um afdrif hans, lögreglan í París
gafst upp við málið. Paul, bróðir hans vildi ekki gefast
upp, og með vini sínum, Laporte, leitaði hann til Madame
Huerta, sem var kunnur skyggnimiðill, og bað hana
hjálpar.
Ekki er kunnugt, hvort henni var fenginn í hendur
hlutur úr eigu Eugene Dupont, til þess að koma henni
í samband við hann eða örlög hans, hvort hér hefir þannig
verið um ,,psychometrie“, hlutskyggni, að ræða eða ekki,
en fljótlega náði Madame Huerta í þráðinn og komst
í samband við fortíð bræðranna eftir að þeir höfðu hitzt
að miðdegisverði í síðasta sinn. Hún lýsti Eugene og
rakti feril hans frá þeirri stundu, er hann gekk út úr
veitingahúsinu unz hún „sá“ hann fara inn í hús nokk-
urt, sem auðvelt var að þekkja, þótt hún gæti ekki nefnt
nafnið á götunni, sem það stóð við. Nú lýsti hún því,
hvernig Eugene Dupont hefði átt fund inni í þessu húsi
með tveim mönnum, sem hún lýsti einnig, hvernig hann
hefði undirskrifað eitthvert skjal og fengið í staðinn
búnka af bankaseðlum. Því næst „sá“ hún Eugene Du-
pont lcoma út úr húsinu og mennina halda í humátt á
eftir honum, og því næst aðra tvo menn slást í för með
þeim. Að lokum „sá“ hún þessa fjóra menn ráðast á
Eugene Dupont, myrða hann og fleygja líkinu síðan í ána
Signu.
Paul Dupont var sannfærður um, að skyggna konan
hefði séð þetta, en vinur hans, Laparte, hélt þetta vera
tóman heilaspuna og tilbúning. En þegar, er þeir komu
heim, fréttu þeir, að lik Eugene Dupont væri fundið og
hefði verið dregið upp úr Signu. Lögreglan vildi helzt