Morgunn - 01.06.1959, Side 59
MORGUNN
miðilsfundi. Frumherjunum var ljóst, að þetta yrði
nokkurum erfiðleikum bundið, og gerðu ekki ráð fyrir
því, að félagið ræki miðilsstarfsemi, nema með innlendum
eða erlendum miðlum um stund í senn. Þar höfðu þeir
það í huga, að elzta sálarrannsóknafélag veraldar, hið
brezka, hefir aldrei fasta miðla í þjónustu sinni, en býður
til sín, þegar ástæða þykir til, góðum miðium um stund
og stund.
Þetta hlutverk hefir félag vort einnig reynt að rækja
cftir föngum. Erlendum miðlum hefir nokkurum sinnum
verið boðið hingað og félagsfólki veittur aðgangur að
fundum þeirra. Og innlendir miðlar hafa starfað á veg-
um félagsins flest ár, síðan það hóf starí sitt.
Miðilsgáfa í ríkum mæli er afar fágæt, og miklu fá-
gætari en menn gera sér e. t. v. Ijóst. Þegar ég hafði
stutta viðdvöl í London á liðnu sumri, buðust félagi voru
tveir miðlar, sem vildu koma hingað og vinna íyrir fé-
lagið um stund, mánaðartíma eða svo. Annan miðilinn
þekkti ég, hafði setið fund hjá honum fyrir nokkrum
árum. Hjá hinum sat ég fund í sumar. Hvorugan þeirra
taldi ég æskilegt að fá hingað. Vér vitum ekki, hvemig
á því stendur, en staðreynd er það, að lægð virðist vera
í þessum efnum nú, þannig, að fremur sé yfirleitt fátt
um verulega góða miðla, jafnvel með tugmilljóna þjóðum.
Annað verðnr einnig að segja, og það er það, að vegna
þess, hve fjölmennt félag vort er og aðsókn félagsfólks
mikill að miðilsfundum, hefir ekki verið unnt að gera
þær athuganir og rannsóknir á miðlunum, sem æskilegt
hefði verið og sálarrannsóknafélagi ber raunar ckylda til.
Nafn félagsins leyfir oss ekki að reka félagið sem sam-
félag trúaðra spíritista. Raunar voru á sínum tíma gerð-
ar merkar tilraunir með Einar Nielsen á vegum félagsins,
er hann kom hingað í fyrsta sinn. Gáfu þær merkilegan
árangur sem mótvægi gegn hinum svokölluðu rannsókn-
um á honum í Osló á sínum tíma.
Fyrir nokkurum árum fól stjórn félagsins okkur þrem,