Morgunn


Morgunn - 01.06.1959, Page 71

Morgunn - 01.06.1959, Page 71
MORGUNN 65 með fögnuði, en bað mig um leið að fylgja sér svo langt inneftir kirkjunni, sem leyfilegt var undir slíkum kring- umstæðum, og bíða sín þar. Gerði ég það fúslega. Að lokinni athöfninni gengum við út. Mér virtist eins og fé- lagi minn vera glaðari í bragði, kannske var það ímynd- un ein. Ég spurði hann, hvort hann gengi daglega í kirkju. Hann kvað svo vera, ef nokkurt færi væri á því, og bætti við, að hann hefði hálfkviðið fyrir því, að sér gæfist ekki kostur á kirkjugöngu þenna rnorgun, og því þætti sér nú stórum betur, þótt ekki hefði verið um messugerð að ræða. Einum tveimur stundum síðar kvöddumst við. Nafni hans hef ég gleymt, og varla mundi ég þekkja hann aft- ur, þótt fundum okkar bæri saman, en þetta litla atvik verður mér samt ógleymanlegra flestum smáatvikum, sem fyrir koma á langri ferð. En hversvegna? mun ein- hver spyrja. Því er auðsvarað. Ég kynntist þarna viðhorfi til kirkju- rækni og trúariðkana, svo gjörólíku því, sem ég hafði vanizt, eða þekkt áður í umgengni við samferðamenn mína í lífinu. Mér varð þá þegar hvarflað í huganum til íslenzkrar skólaæsku og ekki sízt stúdenta, sem ég bykist hafa haft nokkur kynni af fyrr og síðar. Á mínum skólaárum að minnsta kosti, hefði sá maður verið vand- fundinn í vorum hópi, sem hefði látið það verða fyrsta verk sitt í fyrsta sinn, er hann kom til ókunnugrar stór- borgar, að fara í kirkju og taka þátt í kirkjulegri at- höfn. Og ég held satt að segja, að við hefðum flestir haldið að eitthvað væri bogið við þann mann, sem svo kynduglega hefði hagað sér. Og mig grunar, að eitthvað hkt mundi mega segja um unga menn enn í dag. En um leið hlýtur þeirri spurningu að skjóta upp í hugann, hvaða vald það sé yfir huga manns, sem knýr hann til þessa viðhorfs og athafna. Ifvort það sé ein- ungis vald vanans, af því að honum hafi verið kennt þetta frá barnæsku. Mai’gir munu segja, að svo sé, og 5
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.