Kylfingur - 01.01.1944, Page 4
o
KYLFINGUR
Gunnlaugur Einarsson
Minningarorð.
Gunnlaugur Einarsson, aðalstofnandi Golfklúbbs Is-
lands, golfs á íslandi og formaður klúbbsins fyrstu 9t4 árin,
er fallinn í valinn. Hans nýtur ekki lengur við, En minning
hans mun lifa, og Kylfingi er það ljúft og skvlt að geyma um
hann nokkur minningarorð.
Gunnlaugur er fæddur 5. ágúst, 1892, á Eiríksstöðum
í Jökuldal, sonur Einars Eirikssonar, bónda og hreppstjóra
þar, og konu hans Steinunnar Vilhjálmsdóttur Odd.sen. Hann
lauk stúdentsprófi 1912, prófi í læknisfræði 1918 og settist
að í Reykjavík sem sérfræðingur í háls- nef- og eyrnarsjúk-
dómum, árið 1921.
Gunnlaugur var maður vel menntaður í sinni fræðigrein.
Hann stundaði framhaldsnám erlendis og fdr oft utan til
þess að sitja læknafundi og kynna sér nýjungar í starfi sínu.
En honum var ekki atvinna læknisins aðalatriðið, heldur
hollustuhættir og heilbrigði þjóðarinnar. Hann lét sig því
varða allt, er snerti heilbrigðismál, hreinlæti, líknarstarf-
semi og líkamlega þjálfun. Hann lét sig varða þessi mál
svo um munaði, því hann var hamhleypa, þar sem hann
gekk til vinnu. Hann ræddi rnálin, skrifaði um þau og fram-
kvæmdi það, sem gera þurfti, enda hlóðust fljótt á hann
trúnaðarstörf í ótal félögum og stofnunum, umsvifamikil og
tímafrek. Skal ég sem dæmi nefna formennsku í Rauðakrossi
íslands, Læknafélagi Reykjavíkur, Ferðafélagi fslands, ís-
lenzk-sænska félaginu Svíþjóð, Garðstjórn, Sænsku vikunni
1936, auk margs fleira.
Sumarið 1934 voru þeir læknarnir Gunnlaugur Einars-
son og Valtýr Albertsson utanlands á læknafundi og við
framhaldsathuganir 1 fræðigreinum sínum, og kynntust
þá meðal annars golfleik og lærðu hann nokkuð. Sáu þeii’