Kylfingur - 01.01.1944, Qupperneq 5
KYLFINGUR
3
þegar, að hér var leikur til að draga kyrrsetumenn bæj-
anna, og þó einkum Reykjavíkur, lút í guðs græna náttúr-
una, í hreint loft og hæfilega erfiða likamlega og andlega
þjálfun. Eftir heimkomuna beittu þeir sér fyrir stofnun golf-
klúbbs hér, og var hann stofnaður 14. desember það ár.
Gunnlaugur heitinn var kosinn fyrsti formaður klúbbsins,
og var hann formaður hans til dauðadags, 5. apríl, 1944.
Það var margs að gæta og margt, sem þurfti að útvega
handa hinum nýja klúbbi, og víst er um það, að hann hefði
ekki komist jafn skjótt til starfa og náð þegar í byrjun jafn
öruggri fótfestu hér og hann gerði hefði ekki Gunnlaugs
heitins notið við, sem hins sívakandi formanns, er ails gætti
og ávallt var á ferli viðvíkjandi málefnum klúbbsins. Það
var óhemju verk sem Gunnlaugur vann fyrir klúbbinn fyrstu
þegar, að hér var leikur til að draga kyrrsetumenn bæj-
árin, meðan hann var að komast á öruggan fót. Hann vann
mikið fyrir hann alltaf, þegar hann var í bænum og heiil
heilsu, en mest fyrstu árin. Receptablokkina sína hafði hann
að sjálfsögðu í vasanum, en hann notaði hana ekki síður
fvrir sjálfan sig og Golfklúbbinn en aðra, því hann skrifaði
dagleg recept handa klúbbnum og sá síðan um, að það sem
á receptinu stóð, yrði útvegað eða framkvæmt. Ég hefi í
fórum mínum nokkur af þessum receptum (lyfseðlum) og
sýna þau, að hann hugsaði um allt, sem útvega þurfti, frá
gólfþurku upp í golfkennara, alls sem gera þurfti, hið smæsta
sem hið stærsta, og fylgdist með og leit eftir starfi allra
nefnda og starfsmanna í klúbbnum. Oft var hans fyrsta
verk á morgnana, að skjótast á bílnum sínum inn á völl
eða í klúbbhúsið, til eftirlits, og hann var ekki í rónni fyrr
en allt, sem áfátt var, hafði verið lagað eða ráðstafanir gerð-
ar til þess að kippa því í lag. Hann var sérstaklega frjór
og hugkvæmur á allt, er gat orðið klúbbnum og golfi hér á
landi til eflingar, og opin augu fyrir vallarmöguleilaim, hvar
sem hann fór. Hann fékk kylfinga í „picnic“ með sér út á
Álftanes og útbjó völl á Bessastöðum, annan setti hann upp
á Kjóavöllum, þriðja á Eiríksstöðum í Jökuldal, og fjórða á
Vífilsstöðum o. s. frv.
Gunnlaugur var fríður maður sýnum, hár og herða-