Kylfingur - 01.01.1944, Page 6
4
KYLFINGUR
breiður og mikill að vallarsýn og það sópaði að honum,
hvar sem sem hann kom. Hann var gleðimaður mikill, ræð-
inn og viðfeldinn í viðmóti og því vinsæll með afbrigðum.
Hann hafði yndi af að taka á móti gestum og skemmta
þeim. Stjórnar- og nefndarfundi gerði hann jafnan að gleði-
fundum, þrátt fyrir það, að þar voru oftast rædd alvarleg
mál, og menn ekki ávallt á eitt sáttir. Lipurð hans og
léttur hlátur eyddi jafnan broddum ágreiningsins hjá deilu-
aðilum, enda leiddi hann meðferð málanna með velvilja og
festu. sem venjulega hélt umræðum um mál manna innan
takmarka rökræðna um skoðanamuninn.
Gunnlaugur heitinn var svo hispurslaus í framkomu og
góðlegur í viðmóti, að hann laðaði .menn að sér við fyrstu
sýn, enda tilkomumikill og höfðinglegur sýnum. Hann var
einn af þeim mönnum, sem allstaðar var aufúsugestur og
enginn gat gleymt, sem einu sinni hafði kynnst honum.
Kylfingar, jafnt og aðrir, munu geyma minningu þessa
tápmikla, horfna foringja með djúpri virðingu og hlýjum
huga, og gera nokkuð til þess að hún geymist, einnig eftir
daga kunningja hans.
Helgi H. Eiríksson.