Kylfingur - 01.01.1944, Side 10
8
KYLFINGUR
þar afburða snjalla og skemmtilega ræðu. Aðrir ræðumenn
voru: Formaður klúbbsins, Hallgrímur Fr. Hallgrímsson,
forseti G. S. í., Helgi H. Eiriksson, bændurnir, Jóhannes G.
Helgason og Þorvaldur Ásgeirsson og golfkennarinn, Robert
Waara.
Á árinu afhenti formaður Golfsambandsins Golfklúbbi
íslands minningarsjóð um Gunnlaug heitinn Einarsson, að
upphæð kr. 5.653.13. Fjárhæð þessi varð til í samskotum
þegar Gunnlaugur heitinn varð fimmtugur og skyldi henni
varið til að láta gera eirmynd af honum. Kona hans, frú
Anna Kristjánsdóttir, hafði hinsvegar óskað eftir þessari
sjóðstofnun, en sjóðurinn á að vinna að bættri vallargerð
Golfklúbbs Islands, einkum flatargerð. Stjórnin fól í þessu
sambandi formanni Golfsambandsins, í samráði við frú Önnu,
að láta gera málverk af Gunnlaugi heitnum, er skyldi vera
í eigu konu hans.
„Gjafir eru yður gefnar“ — og svo hefur orðið raun á
um Golfklúbb íslands á liðnu ári. Félaginu hefur borizt tveir
silfurbikarar og ein bók. Bikararnir eru: ,,Nýliðabikarinn“,
gefinn af nokkrum félögum, sem nefna sig „Fluid Drive
klúbburinn", og bikarinn „Berserkur", gefinu af þeim Árna
Egilssyni og Benedikt S. Bjarklind, á 10 ára afmælisdegi
klúbbsins. Bókina, sem heitir „The Chronicle of the Royal
Burgess Golfing Society of Edinburgh, 1735—1935“, gáfu
fjórir golfunnendur erlendis, þeir Mc. Arthur, A. J. Redley,
Albert Boström og Sigursteinn Magnússon, allir í Edinborg.
Jón Eiríksson, skipstjóri á Brúarfossi, flutti klúbbnum
gjöfina.
Stjórnin færir öllum þessum gefendum alúðarþakkir
klúbbsins og fagnar þeim vinarhug í garð félagsins, er þeir
sýna.
Leikárið var að þessu sinni óvenju gott, enda aldrei fyrr
jafn rnargir virkir félagar. Kom berlega í ljós á s. 1. sumri,
að óðum þrengist á leikvellinum, og naumast þarf að nefna
það mikla spávísi, þótt sagt sé. að ekki muni líða á löngu
þar til félagið sprengir utan af sér fötin. Það þarf því að
vinda bráðan bug að því, að auka og bæta við völlinn, með
öllum hugsanlegum ráðum. Hitt er um leið óhætt að segja,