Kylfingur - 01.01.1944, Qupperneq 11
KYLFINGUR
9r-
að sjaldan eða aldrei hefur völlurinn verið jafn ágætur til
leiks sem s. 1. sumar, enda miklu til hans kostað. En fyrst
og fremst ber þetta að þakka dugandi vallarstjórn og góðri
vallarvörzlu.
Þessar keppnir voru háðar á leikárinu:
1. Bogey-kepvni, sunnudaginn 30. apríl. Þátttakendur
voiii 15. Fyrstu verðlaun hlaut Benedikt S. Bjarklind og
jafnaði hann við völlinn.
2. Blindkeppni, þriðjudaginn 9. maí. Þátttakendur voru
22. Eftirtaldar holur voru dregnar út: 3-5-7-11-15-18. Þessir
fjórir keppendur urðu jafnir: Daníel P'jeldsted, Sigmundur-
Halldórsson, Sigurður Guðjónsson og Þorvaldur Ásgeirsson,
allir með 21 högg nettó. Kepptu þeir til úrslita og voru þá
dregnar út þessar holur: 3-5-7-12-13-14. Enn urðu þeir Daníei'
og Þorvaldur jafnir með 23 högg nettó. Og enn kepptu þeir
til úrslita og voru þá dregnar út eftirtaldar holur: 1-2-9-11-
14-17. Fóru leikar svo að Daníel bar sigur úr býtum með 23
högg nettó og hlaut því 1. verðlaun og þótti vel hafa til
þeirra unnið, en það hafa menn fyrir satt, að aldrei hafi í
sögu ldúbbsins verið barizt jafn mikið í blindni.
3. Fjórboltaleikur, þriðjudaginn 16. maí. Þátttakendur
voru 24. Sigurvegarar: Árni Egilsson og Karl Jónsson með
145 högg nettó.
4. Hvítasunnukeppni. Hófst hún með undirbúnings-
keppni þriðjudaginn 23. maí. Þátttakendur voru 34. í undir-
búningskeppninni sigraði Þorvaldur Ásgeirsson með 74 högg-
um nettó. I framhaldskeppninni lék Jóhannes G. Helgason til
úrslita við Halldór Magnússon og sigraði Jóhannes með 2-1.
5. Flaggkepni, þriðjudaginn 16. maí. Þátttakendúr voru
27. Sigurvegari: Halldór Hansen, átti eitt högg eftir óslegið
eftir 18 holur.
6. Fjórleikur, þriðjudaginn 13. júní. Þátttakendur voru
12. Sigurvegarar: Benedikt S. Bjarklind og Hafliði Andrés-
son með 64 högg nettó.
7. Einkylfukeppni, þriðjudaginn 20. júní. Þátttakendur •
voru 26. Sigurvegari: Hilmar Garðarsson með 70 högg nettó.
8. Bogey-keppni, þriðjudaginn 27. júní. Þátttakendur ■
voru 21. Sigurvegari: Jón Magnússon með 1 holu unna.