Kylfingur - 01.01.1944, Page 22
20
KYLFINGTJR
legasta, enda komu menn vígreifir af vellinum og héldu
sumir áfram að vera það.
Seinnihluta júlímánaðar fóru 10 félagsmenn til bátttöku
í Golfmóti fslands, í Skagafirði. Meðan sú för stóð yfir var
háð ,,Sódavatnskeppni“ í bændaglímu formi. Sigurveigar
voru sódavatn og öl.
Hjónin Unnur Magnússon og Hinrik Jónsson, golfmeistarar G. V.,
með verðlaunagripina, Meistarabikar karla og Meistarastyttu kvenna.
Hinn 7. apríl lék Einar Guttormsson 6. holuna í einu
höggi og hinn 19. jiiní lék Jón Ólafsson sömu holu í eínu
höggi. Loks lék Anton Bjarnasen 4. holuna í einu höggi,
hinn 14. ágúst.
Það óhapp kom fyrir, að í ofsa austanroki í haust,
flutti Golfskálinn sig af gmnninum um ca. 70 metra. Stóð
hann þar furðulítið skaddaður og höfðu tvær rúður brotn-
að í honum. Vírstrengir voru lagðir yfir þak hans og festir