Kylfingur - 01.01.1944, Side 23
KYLFINGUR
21
vel, en þó fauk þakið af honum í öðru ofsaroki, sem gerði
í vetur. Var hann þá rifinn niður og hafa verið gerðar ráð-
stafanir til þess að byggja hann að nýju, helmingi stærri
en áður.
Stjórn klúbbsins var skipuð eftirtóldum mönnum •
Þórhallur Gunnlaugsson, formaður,
Einar Guttormsson, varaformaður,
Hinrik Jónsson, ritari og
Viggó Björnsson, gjaldkeri.
Félagatala var í árslok 59.
Georg Gíslason.
Kylfingabrúðkaup.
Hinn vinsæli golfkennari, st.sgt. Robert Waara, hefur gengið að
eiga Ólafíu Sigurbjörnsdóttur, fyi’rverandi golfmeistara kvenna í Reykja-
vík, ok eru þau farin til Ameríku. Vér árnum brúðhjónunum allra
heilla og vonum að þeim verði afturkomu auðið til Islands, til lengri
eða skemmri dvalar. Jafnframt teljum vér oss skylt, að vara unga og
ókvænta kylfinga við þeirri yfirvofandi hættu, að missa þannig úr
landi allt hið unga og ógefna kvenkylfingaval vort, því að slíkt brott-
nám er ekktrt einsdæmi í golfsögu vorri.