Kylfingur - 01.01.1944, Side 24
22
KYLFINGUR
Þingtíðindi
Frá Golítinginu 1944.
Þriðja þing Golfsambands Islands hófst hinn 23. júlí
s. 1. að Varmahlíð í Skagafirði.
Hér á eftir verður gerð grein fyrir helztu störfum
þess og ákvörðunum.
Mættir fulltrúar voru þessir: Fyrir Golfklúbb íslands,
Reykjavík: Halldór Hansen dr. med., Gísli Ólafsson stud.
med. & chir., Jóhannes Helgason, kaupmaður og Helgi Her-
mann Eiríksson, verkfræðingur. Fyrir Golfklúbb Akureyrar:
Jóhann Þorkelsson, héraðslæknir og Helgi Skúlason, angn-
læknir. Fyrir Golfklúbb Vestmannaeyja: Þórhallur Gunn-
laugsson, símstjóri og Einar Guttormsson, læknir. Á þing-
inu var og mættur Georg Gíslason, kaupmaður í Vestmanna-
eyjum, en hann á sæti í stjórn sambandsins. Auk þess fjöldi
þátttakenda í landsmótinu.
Forseti sambandsins, Helgi H. Eiríksson, setti þingið
og hóf hann mál sitt með minningarorðum um Gunnrlaug
heitinn Einarsson, lækni, formann G. I. og hinn mikla braut-
ryðjanda golfíþróttarinnar hér á landi. Fulltrúar vottuðu
minningu hins látna virðingu sína með því að rísa úr sætum.
Þá bauð forseti fulltrúa og gesti velkomna til þings og
og leika í Skagafirði. Fór hann nokkrum orðum um erfið-
leika þá, er við var að etja, að þing og mót mættu verða
háð í Skagafirði, og bar fram þakkir til þeirra, er að því
studdu að svo gat orðið.
Þar næst bar forseti fram tillögu þess efnis, að for-
seta íslands, herra Sveini Björnssyni, yrði send kveðja og
þakkir þings og landsmóts. Var það einróma samþykkt og
honum sent svohljóðandi símskeyti:
„Golfþing Islands og landsmót í golfi, er hefst í Skaga-
firði í dag, sendir yður hlýjar árnaðaróskir og fagnar því,