Kylfingur - 01.01.1944, Síða 25
KYLFINGUR
23
að íslenzka þjóðin bar gæfu til þess að fá yður sem fyrsta
forseta hins endurreista lýðveldis. Megi henni auðnast að
fela yður það starf um mörg ókomin ár“.
Frá forsetanum barst svohljóðandi svarkveðja:
„Alúðarþakkir fyrir hlýjar kveðjur og vinsemdarvott,
út af kjöri mínu sem forseta Islands, frá golfþinginu og
landsmótinu. Með beztu árnaðai’óskum til ykkar allra,
kylfinga“.
Sveinn Björnsson
sign.
Eftir að kjörbréfanefnd hafi starfað og gengist við
öllum hinum mættu fulltrúum var gengið til kosninga á
forseta þingsins og var Helgi H. Eiríksson einróma kjörinn
til þess starfa. Ritari var kjörinn Einar Guttormsson.
Næst var lögð fram skýrsla stjórnar G. S. I. og verður
hér á eftir drepið á nokkur helztu atriði hennar:
I sambandinu eru þrír klúbbar, hinir sömu og áður.
Félagatala þeirra við síðustu áramót var sem hér segir:
I Golfklúbbi Akureyrar........ 50
I — Islands .................. 153
I — Vestmannaeyja .. 56
Alls 259
Ritara- og gjaldkerastörf á árinu annaðist Halldór
Hansen, dr. med., eins og að undanförnu.
Samkvæmt samþykkt síðasta golfþings var sótt um
upptöku í I. S. I. og var hún samþykkt á fundi sambands-
stjórnar I. S. I., hinn 27. janúar þ. á. Bréfaviðskipti hafa
farið fram milli stjórnanna, um upptökuna, læknisskoð-
un keppenda, íslenzk heiti í golfi, nafn G. I., skatt og
skýrslur til I. S. I., starfandi dómara í golfleik og imdir-
búning íþróttasýninga hinn 17. júní.
Milli klúbbstjórnanna og G. S. I. hafa og farið nokkur