Kylfingur - 01.01.1944, Side 34

Kylfingur - 01.01.1944, Side 34
32 KYLFINGUR ráðgjafi kappleikanefndar um allt það, er að keppninni laut. Eins og áður er getið hófst mótið hinn 22. júlí. Þáttíak- endur voru 29 að tö!u, frá öllum hinum þremur sambands- klúbbum. Gisting og beini hafði þeim verið fenginn á Sauð- árkróki, Holtsmúla, Varmahlíð og Völlum. Voru þeir flestir mættir til leika, föstudaginn hinn 21., en þann dag var þeim heimilað að leika tvær umferðir á vellinum, hverjum og einum, til reynslu. Laugardagurinn rann upp, heiður og fagur, og drifu leikendur að vellinum á afliðnu hádegi. Gat þar að líta marg- Lagt vpp ú „EySimörkina“. Til vinstri sér út á Héraðsvötn. an vaskan dreng, vel vopnaðan og vígdjarfan. Fagui’t var um að litast af vellinum, um hið glæsta og söguríka hérað, hvert sem augum var litið — „suður til heiða frá sæbotni skáhöllum, sólheimur ljómandi, varðaður bláfjöllum". Og í öllum áttum blasa við sögustaðirnir frægu. Vestan Vatnanna, beint á móti, blikar á kirkjuna á Flugumýri. Nokkru sunnar blasir Haugsnes við sjónum og suður með Blönduhlíðarfjalli hillir undir sauðagerðið á Örlygsstöðum. Þarna hafa verið háðar tvær hinar mannskæðustu orustur á íslandi. Og enn er fylkt liði í Skagafirði. Þórhallur Eyja-jarl reiðir til höggs og orustan er hafin. Var barizt af miklum

x

Kylfingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.