Kylfingur - 01.01.1944, Page 41
KYLFINGUR
39
Meðal ræðumanna í hófi þessu var sr. Gunnar Gíslason í
Glaumbæ. Þakkaði hann kylfingum komuna í Skagafjörð
og kvað þá ætíð velkomna þangað aftur.
Að morgni héldu kylfingar hver til síns heima, eftir
stutta en ánægjulega dvöl í hinum fagra og sögufræga Skaga-
firði. Þaðan höfðu þeir með sér gnægð góðra endurminn-
inga og ósk um það, að eiga afturkvæmt þangað með kylfur
sínar, vitandi að þar eiga þeir vinum að mæta og að þar
er gott að vera.
Að lokum viljum vér þakka öllum þeim Skagfirðing-
um, sem greiddu götu vora. Er þar fyrstan að nefna Harald
bónda á Völlum og heimilisfólk. hans, þá starfsfólkið á gisti-
húsinu í Varmahlíð og Hótel Tindastól og heimilisfólkið í
Holtsmúla. Öllu þessa ágæta fóiki flytjum vér hér með þakk-
ir vorar og kærar kveðjur. Einnig viljum vér þakka öllum
þeim Skagfirðingum, sem á vegi vorum urðu og fylgdust
með keppninni af áhuga og skilningi. Þeir vísuðu þannig á
bug illspám þeim, er ýmsir höfðu að oss beint, að vér yrðum
hafðir að háði og spotti fyrir þá léttúð og firru, að flykkj-
ast norður í land til þess að slá fánýtar kúlur í slægjulónd-
um bænda, um há annatímann, meðan þeir sjálfir sveittust
við að slá gras. Engu að síður fórum vér, í trausti þess að
mæta skilningi, og hann brást ekki — enda ekki við öðru
að búast í héraði „sæluvikunnar“.