Kylfingur - 01.01.1944, Blaðsíða 47
KYLFINGUR
45
nefndrar Sandgryfju. Fyrst var að þurka landið og þurfti
til þess um 1,2 km. af opnum skurðum og nær 8—9 km.
af holræsum og stokkræsum. Síðan þurfti að plægja, herfa,
bera mikinn áburð á 'landið, sá í það grasfræ, valta, laga
skurðkanta, veita vatni úr sandgryfjunni og gera hana gang-
færa vegna stórgrýtis eða aurbleytu, girða landið, gera ak-
vegi, gangvegi, bílastæði, teiga á vellinum og flatir o. s. frv.
Og ég get fullvissað ykkur um það, lesndur góðir, að ef við
hefðum ekki haft Gunnlaug heitinn Einarsson, sem for-
mann á þessu tímabili, og ef hann hefði ekki verið þeim
áhuga og atorku gæddur, sem raun bar vitni, og sýnt jafn-
mikla fórnfýsi og lipurð í stjórn og eftirliti með þessum
framkvæmdum og hann gerði, þá hefðum við ekki fengið
völlinn til leika, sumarið 1937.
Eftir að við höfðum verið reknir af Sogamýrarvellin-
um, lágu leikar niðri um hríð, .meðan nýi völlurinn var að
gróa það vel. að jarðvegurinn þyldi berserksgang kylfinga,
þegar þeim yrði hleypt á gi’aslendið.
En þótt landið væri vel girt, stóðst sú girðing ekki
ásókn golffénaðarins lengur en til 20. júlí, þá hófu menn
æfingar á hinum nýja velli. Fyi’sti kappleikurinn á þeim
velli var háður, 8. ágúst og var að sjálfsögðu blindkeppni.
En formlega vígslu fékk hann ekki fyrr en 1. ágúst 1938,
enda ekki fullgróinn fyrr. Fi’amkvæmdi Helgi Eiríksson þá
vígslu með tveim fallegum teigskotum eftir tilmælum for-
manns og að viðstöddum Friðriki krónprins og Ingiríði
ki’ónprinsessu og mörgum öðrum gestum.
Á þessum velli eru nú 9 holur. Er það miðparturinn
úr hinum teiknaða framtíðarvelli á Bústaðahálsi, sem einnig
er áætlaður 9 brauta völlur, en brautirnar miklu lengri og
erfiðari, en nú er. Komist hann í framkvæmd verður hann
mjög skemmtilegur völlur og hæfur leikvangur fyrir góða
kylfinga.
Klúbbhús.
I Austurhlíð fékk klúbburinn lánaða skúrbyggingu, sem
áður hafði víst verið notaður sem sumarbústaður, og útbjó
hana sem klúbbhús. Þui’fti húsið talsverðra viðgerða en lítilla