Kylfingur - 01.01.1944, Blaðsíða 56
54
KYLFINGUR
5. gr.
Kappleikanefnd ákveður frest kylfinga til þátttóku-
áskrifta í keppni, og festir áskriftalista upp á tilkynninga-
töflu klúbbsins í klúbbhúsinu með nægum fyrirvara. Hún
mætir í klúbbhúsinu a. m. k. x/2 stundu áður en kappleikur
á að hefjast, úrskurðar hvort honum skuli frestað sökum
óveðurs eða ónógrar þátttöku, sér um flöggun, hirðir þátt-
tökugjald, raðar mönnum saman eða flokkar þá til leiks og
tilkynnir hvenær byrja skuli, svo og röð keppenda eða keppi-
flokka. Hún úrskurðar einnig um þátttöku þeirra, er mæta
eftir auglýstan tíma (þ. e. of seint).
6. gr.
Kappleikanefnd úrskurðar ágreining keppenda í ölium
auglýstum keppnum, og einnig hvort völlurinn sé leikhæf-
ur í hvert sinn, er keppt skal, ef vafi leikur á slíku sökum
veðurs eða af öðrum ástæðum. I öllum lokakappleikum bikar-
keppna skipar hún dómara, en úrskurði hans geta keppend-
ur áfrýjað til kappleikanefndar að leik lo’knum. Rétt hefur
kappleikanefnd, ef keppendur óska, til að skipa dómara í
öðrum umferðum aðalkappleika en úrslitaumferðum.
7. gr.
Að lokinni keppni ber kappleikanefnd að sjá um:
1. að flaggið sé dregið niður.
2. að innkalla þegar öll útfyllt leikkort af öllum keppenrium
og afhenda þau eftir eigin afnot, til handikappnefndar,
eða ef hún er ekki viðstödd, þá að fá húsverði þau til
fyrirgreiðslu í lokuðu árituðu umslagi.
3. að tilkynna sigui'vegara úrslit kappleika.
4. að raða mönnum til framhaldskeppni, ef svo ber undir, og
auglýsa lokakeppni þeirra í blöðunum, þar sem því verður
við komið.
5. að vera í samvinnu við skemmtinefnd um klúbbfagnað
eftir lokakeppni kappleika og afhenda þá verðlaun ef
fært þykir.