Kylfingur - 01.01.1944, Side 60

Kylfingur - 01.01.1944, Side 60
-58 KYLFIXGUR 4. Að gera tillögur um hindranir á vellinum og auglýsa greinilega í klúbbhúsinu hverjar þær séu. 5. Önnur atriði, sem í golfklúbbnum yfirleitt heyra undir vallarnefnd, eins og takmörkun vallarafnota o. s. frv. Reglugerð um Nýli^abikar Golfklúbbs íslands. 1. gr. Bikarinn heitir „Nýliðabikar Golfklúbbs Islands“. 2. gr. Tilgangur bikars þessa er sá, að örfa og auka áhuga nýliða innan Golfklúbbs íslands fyrir golfíþróttinni og hvetja þá til þess að ná sem fyrst og bezt árangri í íþróttinni. 3. gr. Nýliðar Golfklúbbs Islands á fyrsta og öðru ári, sem þeir leika golf, hafa einir rétt til að keppa um bikarinn, en engum er heimilt að keppa um hann oftar en tvisvar sinnum. 4. gr. Bikarinn er farandgripur, sem aldrei vinnst til eignar. Um hann skal háð forgjafarkeppni, samkvæmt þeirri for- gjöf leikmanna, sem forgjafarnefnd Golfklúbbs íslands ákveður. Kappleikanefnd Golfklúbbs íslands skal sjá um bikarkeppni þessa og skipuleggja hana. Úrslitaleikur (final) skal ávallt vera 36-holu keppni. Séu keppendur þá jafnir, skulu næstu 18 holur skera úr o. s. frv. 5. gr. Keppni um bikar þenna, skal háð í septembermánuði ár hvert og skal henni lokið íyrir 20. september.

x

Kylfingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.