Fréttablaðið - 12.11.2010, Qupperneq 2
2 12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
VÍSINDI Eðlisfræðingurinn Páll
Theodórsson telur sannað að
fyrstu landnámsmennirnir hafi
sest að á Íslandi löngu fyrir árið
870, eins og almennt er gengið
út frá. Þetta kemur fram í grein
Páls í nýjasta tölublaði Skírnis,
sem kom út í gær.
Þessi kenning hefur, að sögn
Páls, mætt andstöðu fræðimanna.
Hann telur þó að með nýrri rann-
sóknaraðferð, örkolagreiningu, sé
hægt að sanna að landnám hófst
í Kvosinni löngu fyrir 870, og
rannsóknir víðar í Reykjavík og
í túngarði í Krýsuvík styðji það.
Frekari rannsókna sé þó þörf til
að ákvarða upphaf búsetu með
meiri nákvæmni. - þj
Fræðigrein í Skírni:
Landnám hófst
löngu fyrir 870
STJÓRNMÁL Einar K. Guðfinsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, segir að Ásmundur Einar Daða-
son, þingmaður Vinstri grænna, hafi varpað nýju
ljósi á atkvæðagreiðsluna á Alþingi í júlí 2009
þegar samþykkt var að sækja um aðild að Evrópu-
sambandinu.
Ásmundur Einar sagði í umræðum á Alþingi í
gær að Jóni Bjarnasyni, sjávarútvegs- og landbún-
aðaráðherra, hefði verið hótað við atkvæðagreiðsl-
una. Ef hann myndi ekki styðja tillögu utanríkis-
ráðherra yrði hann ekki lengi ráðherra.
Ásmundur sagði enn fremur: „Daginn sem
atkvæðagreiðslan var í þinginu þá var enginn
annar en hæstvirtur forsætisráðherra sem sat hér
og kallaði hvern þingmann Vinstri grænna á fætur
öðrum inn á teppið til sín og sagði þeim hinum
sömu að ef þeir samþykktu að fram færi tvöföld
þjóðaratkvæðagreiðsla og það væri samþykkt væri
fyrsta vinstristjórnin sprungin.”
Einar segir málið afar alvarlegt þar sem
atkvæðagreiðslan hafi farið fram með ólýðræðis-
legum hætti. „Það sem blasir við er að það var í
raun og veru meirihluti þingmanna á móti því að
samþykkja aðildarumsókina að Evrópusamband-
inu,“ sagði Einar. „Niðurstaðan var fengin með hót-
unum og kúgunum.“
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknar-
flokksins, segir Jóhönnu Sigurðardóttur forsætis-
ráðherra stunda hótunarstjórnmál. Hún segir graf-
alvarlegt að þjóðþingið skuli hafa verið þvingað til
að taka afdrifaríka ákvörðun í atkvæðagreiðslunni
um aðildarumsókn að Evrópusambandinu í júlí á
síðasta ári
Hvorki náðist í Jón Bjarnason sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra né Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra í gær. - mmg / þj
Forsætisráðherra sakaður um hótanir vegna aðildarviðræðna við ESB:
Niðurstaðan fengin með hótunum
ÁSMUNDUR EINAR
DAÐASON
EINAR K.
GUÐFINNSSON
JÓN BJARNASON
SPURNING DAGSINS
SVAR VIÐ BRÉFI HELGU EFTIR BERGSVEIN BIRGISSON
★★★★★
Jón Yngvi, Fréttablaðið
★★★★
Einar Falur, Morgunblaðið
„dásamlega fallega
skrifuð ...fyndin
og sorgleg.“
Þórdís Gísladóttir,
Druslubækur og doðrantar
TILNEFNDURTIL ÍSLENSKU BÓKMENNTA- VERÐLAUNANNA 2003
Guðrún, er þetta ekki óþarf-
lega mikið fjaðrafok?
„Nei, er lífið ekki eitt fjaðrafok?. Ég
vona að þær fari ekki hænufet.“
Guðrún Þura Kristjánsdóttir þarf að
berjast fyrir því við borgarráð Reykjavíkur
að fá að halda fjórar landnámshænur í
garðinum sínum.
FRAMKVÆMDIR „Þetta er bara kjaft-
æði. Það er búið að segja þetta
svo oft.“
Þetta eru viðbrögð Hilmars
Konráðssonar, forstjóra Magna
verktaka, við tíðindum um að
vegagerð fyrir tugi milljarða sé
í sjónmáli.
Í Fréttablaðinu á miðvikudag
var greint frá góðum gangi í við-
ræðum lífeyrissjóðanna og rík-
isins um fjármögnun vegafram-
kvæmda.
Hilmar segir ráðamenn hvað
eftir annað hafa gefið mönnum
í verktöku vonir um að eitthvað
kynni að vera að fara af stað en
aldrei hafi neitt gerst.
Meðal þeirra stórframkvæmda
sem áformað er að ráðast í, gangi
allt eftir, eru göng undir Vaðla-
heiði. Hilmar
telur þær ráða-
gerðir vitlaus-
ar við núver-
andi aðstæður.
„Sú framkvæmd
ko st a r mjög
mikið en skapar
fá störf, kannski
f i mmtíu . Það
væri miklu nær
að fara í fleiri
smærri verk-
efni sem sköpuðu
fleirum, segjum
tvö þúsund manns,
atvinnu.“
Í byrjun árs
sagði Hilmar í
samtali við Frétta-
blaðið að ástandið í
verktakabransanum væri skelfi-
legt. „Það er búið að ákveða
að taka greinina af lífi,“ sagði
hann þá. Nú, rúmum tíu mánuð-
um síðar, segir hann orð sín hafa
staðist. „Flest þeirra fyrirtækja
sem enn starfa væru komin í þrot
ef ekki væri biðstaða í dómskerf-
inu um lögmæti fjármögnunar- og
kaupleigusamninga. Lýsing og
þessi fyrirtæki geta ekki rukkað
okkur. Þess vegna er ekki meira
hrun í þessum geira en raun ber
vitni. En allir nema Ístak og ÍAV
sem eru í eigu útlendinga eru
komnir með neikvætt eigið fé.“
Hilmar segir ástandið á mark-
aðnum óheilbrigt; í þau örfáu verk
sem boðin hafi verið út að undan-
förnu hafi tilboðum allt að 50 pró-
sent af kostnaðaráætlunum verið
tekið. Það segi sig sjálft að slíkt
gangi ekki. „Ríkið er í fararbroddi
þeirra sem taka lægstu tilboðun-
um. Með því gersamlega stútar
ríkið fyrirtækjum sem hugsan-
lega gætu lifað.“ Veikburða fyr-
irtæki bjóði í örvæntingu mjög
lágt í verk en skynsamlega rekin
fyrir tæki fari ekki jafn lágt. Fyrir
vikið verði þau af verkefnum og
lognist á endanum út af.
Sjálfur horfir Hilmar fram á
endalok eigin rekstrar. „Ég var
með sextíu manns í vinnu en nú
eru sex eftir og þeir hætta eftir
áramót. Þrjátíu ára starf er ónýtt
en ég græt það ekkert, það kemur
dagur eftir þennan dag.“
bjorn@frettabladid.is
Þetta er bara kjaftæði
Forstjóri verktakafyrirtækis gefur lítið fyrir yfirlýsingar um að stutt sé í stór-
framkvæmdir í vegagerð. Sá söngur hafi heyrst of oft. Hann segir ríkið stuðla
að gjaldþrotum verktaka með því að taka tilboðum langt undir kostnaði.
FORSTJÓRINN Hilmar Konráðsson,
forstjóri Magna verktaka, segir stjórnvöld
hvað eftir annað hafa gefið verktökum
vonir um að eitthvað kynni að vera að
fara af stað en aldrei hafi neitt gerst.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓ
pr
vö
fr
en
í f
h
h
s
s
o
p
Sýn
P
vö
t
FRAMKVÆMDIR Mjög
hefur dregið
saman með kröfum r
íkisins og líf-
eyrissjóðanna um vex
ti í viðræðum
um fjármögnun sjóð
anna á vega-
framkvæmdum
fyrir á fjórða tug
milljarða króna.
Formlegar við-
ræður hafa stað-
ið frá því í júlí.
Talsvert er um
liðið síðan aðilar
náðu saman um
allar meginfor-
sendur og í nokk-
urn tíma hafa
viðræðurnar einskor
ðast við vexti.
Viðræðunefndirnar fu
nda í dag.
„Það er eðlilegt að mik
ið hafi borið
í milli en menn hafa
verið að þétta
netið og töluvert he
fur áunnist,“
segir Arnar Sigurmun
dsson, formað-
ur Landssamtaka lífe
yrissjóða.
Kristján Möller, fy
rrverandi
samgönguráðherra, s
em stýrir við-
ræðunum fyrir hönd
ríkisstjórnar-
innar, tekur í sama st
reng. Að hans
sögn fékk verkefnið b
yr undir báða
vængi í síðustu viku.
„Það er engin launung
á því að við
biðum eftir síðustu v
axtaákvörðun
og funduðum ekki í tv
ær vikur fram
að henni. Ákvörðuni
n varð svo til
þess að liðka fyrir m
álum.“ Seðla-
bankinn lækkaði vext
i um 0,75 pró-
sentustig á miðvikuda
g sem varð til
þess að samkomulag
náðist við líf-
eyrissjóðina um vaxt
akjör á lánum
til framkvæmdanna.
Heildarkostnaður
er metinn
rúmir 30 milljarð
ar króna og
rúmir 38 milljarðar
með virðis-
aukaskatti.
Samhliða viðræðum
um fjár-
mögnun hefur Vegag
erðin unnið að
undirbúningi þriggj
a afmarkaðra
verka. Áætlanir miða
að því að hægt
verði að leita eftir ver
ktökum stuttu
eftir að samningar u
m verkefnið í
heild hafa náðst. Þá v
erði hægt að
efna til útboðs vegna
tveggja kafla
á Suðurlandsvegi og
forvals vegna
Vaðlaheiðarganga.
Gangi allt eftir geta f
ramkvæmd-
ir hafist snemma á n
æsta ári og er
reiknað með að þeim
ljúki um mitt
ár 2015. Hyggst ríkið
endurgreiða
lífeyrissjóðunum lá
nið, sem ekki
nýtur ríkisábyrgðar, m
eð innheimtu
veggjalda.
- bþs
Vegagerð fyrir tugi
milljarða í sjónmáli
Vel hefur miðað í við
ræðum ríkisins og lí
feyrissjóðanna um fj
ármögnun á
tugmilljarða vegafra
mkvæmdum. Megin
forsendur liggja fyrir
en ósamið er um
vexti. Vaxtalækkun S
eðlabankans í síðust
u viku liðkaði fyrir v
iðræðunum.
Verkefnin sem um ræð
ir eru tvöföldun
Suðurlandsvegar austur
fyrir Selfoss, tvö-
földun Reykjanesbrauta
r suður fyrir Straum,
lagning 2+1 vegar á Ves
turlandsvegi að
Hvalfjarðargöngum og g
öng gegnum
Vaðlaheiði.
Verkefnin
ARNAR
SIGURMUNDSSON
skiptir þá mestu að fram
rú an
undan ef sólin blindar þ
á skyndilega.
LÖGREGLUMÁL Meint fórnarlamb
svikamyllu Helgu Ingvarsdótt-
ur og Vickrams Bedi segist hafa
orðið fyrir barðinu á „margbrotnu
ráðabruggi svikahrappa af verstu
sort“. Þetta kemur fram í yfirlýs-
ingu sem hinn svikni sendi frá
sér í gær. Hann hafði fram að því
verið þögull og ekki látið fjölmiðla
ná í sig.
Fórnarlambið heitir Roger Dav-
idson og er vellauðugur djasspían-
isti og erfingi olíurisa. Hann mun
hafa greitt parinu um 20 milljón-
ir dollara á sex ára tímabili fyrir
að vernda tón-
list hans fyrir
hondúrískum
tölvuvírus og
líf hans fyrir
valdasjúkum
pólskum prest-
um úr Opus Dei-
reglunni.
Parið er grun-
að um að hafa
kokkað upp söguna til að féfletta
Davidson en Bedi hefur þvertekið
fyrir það og sagt Davidson ofsókn-
aróðan.
Davidson segir í yfirlýsingu
sinni að Bedi og Helga séu ekki
hefðbundnir tölvuviðgerðarmenn,
heldur hafi þau vingast náið við
hann í því skyni að svíkja af
honum stórfé. Hann kveðst vera
samvinnuþýður við saksóknara-
embættið í Westchester í von um
að fólkið fái makleg málagjöld og
hann endurheimti hugsanlega hluta
fjárins. Að lokum biður Davidson
um frið á erfiðum tímum.
Helga og Bedi sitja í fangelsi
ytra. Réttarhöld í málinu hefjast
2. desember. - sh
Trúgjarna tónskáldið Roger Davidson tjáir sig um svikamylluna í fyrsta sinn:
Helga og Bedi fái makleg málagjöld
ROGER DAVIDSON
LÖGREGLUMÁL Lögreglan hefur
lokið að fullu rannsókn vegna
manndráps í Hafnarfirði í ágúst
síðstliðnum. Rannsóknargögn
vegna voðaverksins sem átti sér
stað í Háabergi 23 í Hafnarfirði
þann 15. ágúst, þar sem Hannesi
Þór Helgasyni var ráðinn bani,
hafa verið send ríkissaksóknara,
sem tekur ákvörðun um framhald
málsins. Íslenskur karlmaður á
þrítugsaldri, Gunnar Rúnar Sigur-
þórsson, hefur játað sök í málinu.
Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi
frá 27. ágúst. -jss
Rannsókn á manndrápi lokið:
Gögnin til rík-
issaksóknara
ALÞINGI Hreyfingin hefur lagt
fram tillögu á þingi um að gerð
verði rannsókn á starfsháttum
í forsætisráðuneyti, fjármála-
ráðuneyti og viðskiptaráðuneyti
í aðdraganda bankahrunsins og
langt fram á þetta ár.
Rannsóknin taki til samskipta
við önnur ráðuneyti, Seðlabank-
ann og Fjármálaeftirlitið og
ákvarðana og atburða sem tengj-
ast falli bankanna.
Segir Hreyfingarfólk ljóst
að í aðdraganda hrunsins hafi
mikilvægar ákvarðanir verið
teknar án umræðu í ríkisstjórn.
Því sé brýnt að nefnd rannsókn
fari fram. - bþs
Þingmenn Hreyfingarinnar:
Vilja rannsókn
á ráðuneytum
SAMGÖNGUR Vegtollar, 100 til
200 krónur, verða lagðir á allar
umferðaræðar til og frá höfuð-
borginni innan nokkurra ára.
Fyrirhugað er að taka upp veg-
tolla í öllu vegakerfinu. Þetta
kom fram í fréttum Stöðvar 2 í
gær.
Skammt er frá því að Alþingi
samþykkti lög um að stofna opin-
ber hlutafélög um vegagerð.
Annað er félag um breikkun vega
til og frá höfuðborgarsvæðinu;
Reykjanesbrautar, Suðurlands-
vegar og Vesturlandsvegar. Einn-
ig stendur til að stofna félag um
Vaðlaheiðargöng. Kristján Möll-
er, þingmaður Samfylkingarinn-
ar og fyrrverandi samgönguráð-
herra, ræðir nú við lífeyrissjóði
um fjármögnun þessarar vega-
gerðar fyrir hönd ríkisins.
Heimildir fréttastofu Stöðvar 2
herma að hámarksveggjald fyrir
norðan verði 800 krónur, en rætt
sé um að veggjöldin á vegunum
til og frá höfuðborginni, verði
100 til 200 krónur.
Breytingar á vegakerfinu:
Vegtollar til og
frá Reykjavík
DÓMSMÁL Hann-
es Smárason
segir að samn-
ingur sem slita-
stjórn Glitnis
komst nýver-
ið yfir sýni alls
ekki að hann
hafi haft óeðli-
leg ítök í Glitni
og getað tryggt
félögum sínum
lán. Þetta kemur fram í yfirlýs-
ingu sem birt var á vef dómstóls-
ins í New York í fyrradag.
Samningurinn er um kaup FL
Group á bréfum í Tryggingamið-
stöðinni af Hnotskurn hf. Hann-
es undirritar samninginn, og þar
segir að FL Group muni „hlut-
ast til um“ að Glitnir láni FL 250
milljónir. Hannes segir þetta
ekki sýna fram á nein ítök hans í
bankanum.
Þá bendir hann á að Katrínu
Pétursdóttur hafi ekki verið
stefnt í málinu, þótt hún hafi
setið í stjórn Glitnis og skrifað
upp á lánveitingu til eigin félags,
Hnotskurnar. - sh
Samþykkti að lána sjálfri sér:
Hannes bendir
á ítök Katrínar
KATRÍN
PÉTURSDÓTTIR