Fréttablaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 4
4 12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is Árið 1955 stóð til að reisa nýja flugstöð þar sem Hótel Loftleiðir stendur. Ekki fékkst fjár- veiting til framkvæmda. Árið 1962 réðust Loftleiðir í byggingu skrifstofa og flugstöðvar þar sem Hótel Loftleiðir stendur. Skömmu síðar fluttist millilandaflugið til Keflavíkurflugvallar og byggingin var endur- hönnuð sem hótel. 1973 var lagt til að ný 4.000 fermetra flugstöð yrði reist á suðausturhluta flugvallarsvæðisins. Fjárskortur kom í veg fyrir framkvæmdir. 1974 var lögð fram tillaga um að breyta hluta Hótels Loftleiða í flugstöð með tæplega 5.000 fermetra viðbótarbyggingu. Ekki varð af framkvæmdum. 1985 var lagt til að ný 3.400 fermetra flugstöð yrði byggð fyrir vestan og sunnan flugturn og skrifstofur Flugmálastjórnar. Ekki náðist samstaða um málið. Sama ár var lagt til að 4.000 fermetra flugstöð risi á suðausturhluta flugvallarsvæðisins. 2001 voru kynntar tillögur um flugstöð/samgöngumiðstöð í eða tengt Hótel Lofleiðum. 2005 eru lagðir til tveir kostir; nýbygging, 5.100 fermetrar að grunnfleti, á norðausturhorni flugvallarsvæðisins (skammt frá Hótel Loftleiðum og íþróttasvæði Vals) og breyting neðstu hæðar Hótels Loftleiða í samgöngumiðstöð. 2006 leggur vinnuhópur til að samgöngumiðstöð rísi á norð- austurhorni flugvallarsvæðisins. 2008 ákveður samráðshópur að miðstöðin rísi á norðaustur- horninu. Ráðgert er að byggingin verði 3.200 fermetrar í fyrsta áfanga. 2009 er samkomulag gert um bygginguna. 2010 er samgöngumiðstöð slegin út af borðinu. Samgöngumiðstöð í skoðun frá 1955 1955 1956 1957 1958 1959 1960 1961 1962 1963 1964 1965 1966 1967 1968 1969 1970 1971 1972 1973 1974 1975 1976 1977 1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 GENGIÐ 11.11.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 205,2081 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 111,38 111,92 179,78 180,66 153,02 153,88 20,527 20,647 18,917 19,029 16,446 16,542 1,3532 1,3612 174,20 175,24 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR LÖGREGLUMÁL Björgvin Björgvins- son aðstoðaryfirlögregluþjónn hefur tekið aftur við stjórn kyn- ferðisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Björg- vin óskaði eftir flutningi í starfi eftir að haft var eftir honum í DV að fórnar lömb nauðgana ættu að líta í eigin barm. Þau ummæli vöktu hörð viðbrögð. Lögreglustjóri hefur nú óskað eftir því að hann endurskoði þá ákvörðun sína. Björgvin hefur ásamt samstarfsfólki sínu byggt upp starfsemi deildarinnar „með afar góðum árangri“, segir í til- kynningu frá LRH. „Björgvin nýtur og hefur ætíð notið fyllsta trausts yfirstjórnar lögreglu.“ - jss Verður við kalli lögreglustjóra: Björgvin aftur yfir kynferðis- brotadeildinni DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt Sophiu Guðrúnu Hansen í tólf mánaða skilorðsbundið fang- elsi fyrir að hafa komið því til leiðar að rannsókn hófst gegn Sigurði Pétri Harðar- syni hjá lög- reglu. Málið varðaði undir- skrift á þremur viðskiptabréf- um að upp- hæð um 42 milljónir króna sem Sophia taldi nafn sitt falsað á og kvaðst gruna Sigurð Pétur um það. Málið var kært til lögreglu árið 2007. Rannsókn sænskra rit- handarsérfræðinga leiddi í ljós að sennilega skrifaði Sophia sjálf undir viðskiptabréfin. - jss Sakfelld fyrir rangar sakargiftir: Dómur þyngd- ur yfir Sophiu VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 22° 15° 10° 10° 13° 10° 10° 10° 22° 14° 21° 15° 26° 1° 15° 17° 6°Á MORGUN Sums staðar strekkings- vindur. SUNNUDAGUR Hægur eða fremur hægur vindur. -6-6 -4 -10 -11 -1-2 -2 -3 -1 -3 -3 -4 -3 -2 -1 -3 -4 -1 -8 13 10 14 14 18 5 8 11 8 15 12 9 7 15 0 KULDALEG HELGI Það má búast við vaxandi frosti á landinu nú um helgina og á sunnudag nær frostið væntanlega tveggja stafa tölu inn til landsins en verður minna með ströndum. Það snjóar norðan til í dag og austan- lands á morgun en á sunnudag verður víða bjart veður. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður FRAMKVÆMDIR „Það er ánægjuefni að niðurstaða sé komin,“ segir Árni Gunnarsson, framkvæmda- stjóri Flugfélags Íslands. Borgarstjóri og samgönguráð- herra hafa ákveðið að samgöngu- miðstöð rísi ekki í Vatnsmýri. Rætt hefur verið um slíka fram- kvæmd í áratug og undirbúning- ur staðið í sex ár. Á meðan hefur Flugfélagið setið og beðið og farþegar þess mátt gera sér lúinn og þröngan húsakostinn við Reykjavíkurflug- völl að góðu. Sem dæmi um ástand mála var hluti af starfsemi félagsins rek- inn í gámum síðastliðið sumar. Árni segir að þar sem yfir- völd hafi áformað byggingu samgöngumiðstöðvarinnar hafi ekki verið ráðist í kostnaðar- samar endurbætur á húsakynn- um félagsins og þaðan af síður í nýbyggingu. Nú sé ný staða uppi. „Nú förum við í gegnum málið og ég sé fyrir mér bæði endurbæt- ur á núverandi húsnæði og við- byggingu,“ segir Árni. Einnig verði hugað að öðrum þáttum, líkt og malbikun bílastæðis sem ekki þótti borga sig að ráðast í vegna yfirvofandi flutninga í samgöngumiðstöðina. „Já, já, alveg hiklaust,“ svarar Árni spurður hvort aðrir flugrek- endur fái inni í stærri og endur- bættum húsakynnum Flugfélags- ins. Í hönd fara viðræður við skipu- lagsyfirvöld um mögulegar fram- kvæmdir. bjorn@frettabladid.is Flugfélagið er sátt og ætlar að byggja sjálft Framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands er ánægður með að áralöngum vanga- veltum um samgöngumiðstöð í Vatnsmýri sé lokið. Félagið hyggst bæta húsa- kost sinn við Reykjavíkurflugvöll og býður aðra flugrekendur velkomna. SVEITARSTJÓRNIR Gunnar Ingi Birg- isson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokks í Kópavogi, segir Guðríði Arnardóttur, fulltrúa Samfylk- ingar og formann bæjarráðs, hafa „látið kjósa sig í urmul af nefnd- um“ á vegum Sambands íslenskra sveitarfélags. Því sé ljóst að for- mennska í bæjarráði Kópavogs telj- ist ekki tímafrekt starf. Þetta bók- aði Gunnar á bæjarstjórnarfundi. „Undirrituð bendir á að Gunn- ar Ingi Birgisson sat á Alþingi á sama tíma og hann gegndi for- mennsku í bæjarráði,“ svaraði Guð- ríður. Gunnar sagði það aldrei hafa komið niður á starfi sínu sem for- manni bæjarráðs. „Bendi einnig á að Guðríður Arnardóttir er í fullu starfi sem framhaldsskólakennari með öðrum störfum sínum,“ sagði Gunnar. - gar Önnum kafnir bæjarfulltrúar: Deilt um byrði aukastarfanna UMFERÐ Nær tíundi hver ökumað- ur í Reykjavík talar í síma undir stýri án handfrjáls búnaðar. Álíka margir nota ekki bílbelti. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnun- ar sem tryggingafélagið VÍS gerði í október. Kannaðir voru 26.186 bílar. Fylgst var með umferðinni tvisv- ar sinnum á fyrirfram ákveðnum stöðum við stofnbrautir á höfuð- borgarsvæðinu. Einungis voru þeir bílar taldir þar sem sjá mátti með vissu hvort notað væri bílbelti og hvort ökumaður var að tala í far- síma án handfrjáls búnaðar. Sigrún A. Þorsteinsdóttir, for- varnafulltrúi VÍS, segir niðurstöð- urnar koma á óvart. „Það er undar- legt að allir skuli ekki framkvæma eins einfalda athöfn og að spenna á sig beltið þegar þeir setjast undir stýri,“ segir Sigrún. - sv Atferli ökumanna í Reykjavík: Um tíu prósent nota ekki belti LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Suður- nesjum náði afritum af fótsporum þjófa sem grunaðir eru um allmörg innbrot í umdæminu. Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms um gæsluvarðhald mannanna. Um er að ræða tvo menn sem eru grunaðir um að hafa stolið umtalsverðum verðmætum með því að brjótast inn í íbúðarhús- næði. Þeir eru báðir af erlend- um uppruna. Lögreglan segir rökstuddan grun um að þeir séu við riðnir umfangsmikla og skipu- lagða þjófnaðarstarfsemi. - jss Tveir þjófar áfram inni: Afrit náðust af fótsporunum SVÍÞJÓÐ Peter Mangs, 38 ára Svíi sem handtekinn var um síðustu helgi grunaður um eitt morð og nokkrar skotárásir í Malmö und- anfarið ár, er einnig talinn sekur um fleiri óupplýst morð frá fyrri árum. Þar á meðal er hann grunað- ur um morð á tveimur mönnum í Malmö árið 2003, en þeir voru báðir af erlendum uppruna rétt eins og fólkið sem hann hefur skotið á undanfarið. Saksóknaraembættið í Malmö hefur gagnrýnt fjölmiðla fyrir að birta myndir af manninum. Þar með verði tilgangslítið að biðja vitni um að bera kennsl á manninn. Hann neitar enn allri sök þannig að málatilbúnaður gegn honum þarf að byggja á öðrum sönnun- argögnum. Samkvæmt sænskum fjölmiðlum hefur lögreglu tekist að tengja að minnsta kosti aðra af tveimur byssum, sem hald var lagt á á heimili mannsins, við eina eða fleiri af þeim skotárásum, sem hann er grunaður um. Maðurinn, sem er 38 ára, hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald og mun einnig gang- ast undir geðrannsókn. - gb Saksóknari í Malmö gagnrýnir fjölmiðla fyrir myndbirtingu af byssumanninum: Grunaður um fleiri morð HINN GRUNAÐI Peter Mangs kom fyrir dómara í vikunni og var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. NORDICPHOTOS/AFP 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 FLUGSTÖÐ TIL FRAMTÍÐAR Flugfélag Íslands hyggst ráðast í endurbætur á húsakosti sínum við Reykjavíkurflugvöll í ljósi ákvörð- unar yfirvalda um að ekkert verði af nýrri samgöngumiðstöð. SOPHIA HANSEN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.