Fréttablaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 64
 12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR Bækur/ ★★★★ Ljósa Kristín Steinsdóttir Vaka-Helgafell Ævi sveitakonunnar Pálínu Jóns- dóttur, sem alltaf er kölluð Ljósa, frá barnæsku til dauðadags er viðfangsefni skáldsögu Kristín- ar Steinsdóttur og ber nafn sögu- hetjunnar. Ljósa elst upp í íslenskri sveit á fyrri hluta síðustu aldar, er hreppstjóradóttir og dekur- barn sem á unglingsárum veikist af geðhvarfasýki sem hún glím- ir við til æviloka. Framan af ævi er líf hennar þó nokkuð venjulegt, hún fær ekki þann sem hún elskar, giftist öðrum, eignast fimm börn, býr manni sínum fallegt heimili og fúnkerar nokkuð eðlilega. Sérlund- uð reyndar, en skemmtileg og glað- lynd. En geðhvarfasýkin hremmir hana smám saman og síðustu árin er hún meira og minna á valdi henn- ar. Úthrópuð af sveitungum, vina- laus og bókstaflega eins og dýr í búri. Kristín vinnur mikið þrekvirki með þessari sögu. Þótt söguefn- ið sé dimmt er sagan skemmtileg og stílfærni höfundarins gerir það að verkum að nánast ómögulegt er að leggja bókina frá sér fyrr en að lestri loknum. Sveitin afskekkta lifnar fyrir augum lesandans og Ljósa er frábærlega unnin persóna sem grípur lesandann heljartök- um og sest að í hjarta hans. Örlög hennar eru þyngri en tárum taki og hræra lesandann til djúprar með- aumkunar. Ást hennar á sínum kvensama föður, sem á börn með konum á öðrum hverjum bæ að fornum hreppstjórasið, er leiðarstef í lífi hennar og í raun vex hún aldrei upp úr því að vera augasteinninn hans pabba, þótt hann bregðist henni á ögurstundu. Á köflum detta manni í hug kvenhetjurnar úr skáldsög- um Huldu sem dreymir um fegurð og fjarlægar borgir á meðan þær þrá í leynum listamanninn svikula sem stoppaði í dalnum um stund, en Ljósa er þó mun betur dregin per- sóna en þær og nærfærnar og sann- færandi lýsingar á geðhvarfasýk- inni fullkomlega trúverðugar. Þetta er persóna sem lesandinn elskar með öllum hennar kostum og göll- um. Sama má segja um aðrar per- sónur bókarinnar, þær stíga upp af síðunum og verða raunveruleg- ar í huga lesandans eins og bestu persónur Laxness. Senan í fjárhús- unum er snilldarleg vísun í kind- ardráp Rósu í Sjálfstæðu fólki og ekki síður áhrifamikil. En það er ekki bara persónusköp- unin og söguefnið sem gera þessa bók eftirminnilega. Mál, stíll og bygging haldast í hendur og skapa sterka og krefjandi sögu sem held- ur athygli lesandans frá upphafi til enda, vekur spurningar og slær á alla strengi tilfinningaskalans. Friðrika Benónýsdóttir Niðurstaða: Vel stíluð og vel byggð saga með frábærri persónusköpun. Saga sem spannar allan tilfinninga- skalann og ómögulegt er að leggja frá sér. Komdu með mér inn í skuggann HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Föstudagur 12. nóvember ➜ Tónleikar 21.00 Hljómsveitirnar Valdimar, Fu Kaisha og Benjamín og helvítis jazz- ararnir koma fram á 21. Grapevine grass roots kvöldi sem haldið verður í kvöld. Dagskrá hefst kl. 21. Ókeypis inn. 22.00 Hljómsveitin Myrká verður með tónleika í Frystiklefanum í Sláturhúsinu á Egilsstöðum í kvöld. Tónleikarnir hefj- ast kl. 22 og er aðgangur ókeypis. 23.00 Tónleikar til heiðurs bandarísku rokksveitinni Pearl Jam verða haldnir í kvöld á Sódóma Reykjavík. Hljómsveit- irnar Elsu Sultan og Vintage Caravan koma fram. Tónleikarnir hefjast kl. 23 og er aðgangseyrir 1.500 krónur. ➜ Leiklist 20.00 Leiktu betur, árleg spunakeppni framhaldsskólanna fer fram í kvöld í Tjarnarbíói. Dagskrá hefst kl. 20.00. 23.00 Leikritið „Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan“ verður frum- sýnt í Valaskjálf, Egilsstöðum í kvöld kl. 23. Leiksýningar standa út nóvember. Miðaverð er 2.000 kr og 1.700 kr fyrir eldri borgara. Miðapöntun í síma 867 1604 ➜ Opnanir 16.00 Sýningin Grýlukerti verður opnuð á skörinni, á efri hæð í Fógeta- húsinu/Kraum að Aðalstræti 10, í dag. Opnunin stendur frá 16-18. ➜ Sýningar 17.30 Ritlistarnemar við Háskóla Íslands opna ljóðasýningu á Háskóla- torgi (neðri hæð). Sýning ber heitið STOPP og verður opin frá 17.30-19.30. Gestir og gangandi velkomnir. ➜ Síðustu forvöð 20.00 Síðustu sýningar á Græna kallin- um eru í dag og á morgun. Sýningarnar byrjar kl. 20 báða dagana og eru fyrir alla aldurshópa. Miðapantanir á mida- sala@kopleik.is og í síma 554-1985. ➜ Málþing Málþing á vegum Alþjóðamálastofnun- ar Háskóla Íslands, Oslóarháskóla og Háskólans Turku í Finnlandi verður hald- ið í fundarsal Landsbókasafns Íslands í dag frá 9-17. Fjallað verður um við- brögð, stöðu og þátttöku Norðurland- anna í Evrópusamruna. Þátttaka öllum opin, skráning á ams@hi.is ➜ Listamannaspjall 12.00 Listamennirnir Ethan Hayes- Chute og Magone Sarkovska sýna myndir og spjalla um eigin verk í Skaft- felli, Seyðisfirði, í dag kl. 12. ➜ Fyrirlestrar 12.30 Tíundi fyrirlesturinn í fyrir- lestraröðinni „Eilífðarvélin“ sem Þjóð- málastofnun og EDDA - öndvegissetur standa fyrir verður haldin í dag. Magnús Sveinn Helgason fjallar um nýfrjáls- hyggjuna. Hefst kl. 12.30 og er haldinn í Háskóla Íslands, Háskólatorgi stofu 104. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. KORPUOUTLET, KORPUTORGI Opið mánudag til laugardags frá 11 til 18. Sunnudaga frá 12 til 18 • S. 578 9400. Next vörur frá kr. 500 - 2.000 Úrval af jakkafötum frá kr. 9.995 - 19.995 NORTH ROCK ÚLPA, F/ FULLORÐNA Outlet verð kr. 15.000 KULDASTÍGVÉL, F/ DÖMUR Outlet verð kr. 6.000 CATMANDOO ÚLPA, F/ DÖMUR Outlet verð kr. 8.000 CATMANDOO ÚLPA, F/ BÖRN Outlet verð kr. 8.000 Stærsti lagermarkaður landsins MEIRI SNJÓ MEIRI SNJÓ Seljavegur 2 - 101 Reykjavík www.jogastudio.is - jogastudio@hotmail.com Nýtt námskeið í meðgöngujóga í boði verður að taka einn, tvo eða þrjá mánuði og eru verðin eftirfarandi: Einn mánuður – 10.000,- Tveir mánuðir – 18.000,- Þrír mánuðir – 22.000,- Skráning hjá Ágústu í síma 772-1025. Eða á jogastudio.is Nú er að fara af stað nýtt námskeið í meðgöngujóga hjá okkur. Við förum í öndun og slökun, losum um mjaðmir og styrkjum kvið og bak. Sleppum taki á hræðslu og lærum að slaka á milli hríða. Við tengjum okkur við okkur sjálfar og fóstrið. Jóga stuðlar á betri meðvitund á líkama sál og huga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.