Fréttablaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 72
12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR44
sport@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI „Þetta er búið að ganga
mjög vel persónulega fyrir okkur
KR-ingana,“ segir Ellert Arnarson
kátur. Ellert og Darri Hilmarsson
hafa saman skorað 34,6 stig, tekið
8,6 fráköst og gefið 7,0 stoðsend-
ingar að meðaltali í fyrstu fimm
leikjum Hamars í Iceland Express
deildinni. Þeir voru í aukahlut-
verki hjá KR síðustu ár en hafa
báðir blómstrað við að fá meiri
ábyrgð.
Hamarsliðinu var aðeins spáð 9.
sætinu í deildinni en hefur engu
að síður tekist að vinna sigra á KR
(spáð 1. sæti), Keflavík (2. sæti) og
Njarðvík (6. sæti) og það er ekki
síst vegna frábærrar frammistöðu
þeirra Ellerts og Darra.
Darri steig fyrsta skrefið með
því að skipta yfir í Hamar og Ell-
ert fylgdi síðan í kjölfarið. „Mig
langaði að prófa eitthvað nýtt og
fá að spila meira. Ég vissi líka að
Gústi [Ágúst Björgvinsson] væri
hörku þjálfari. Mér líður mjög vel
í Hveragerði og Lalli formaður
[Lárus Ingi Friðfinnsson] er fínn
karl,“ segir Darri.
„Ég þurfti að fá að spila til að
bæta mig meira. Mér fannst þetta
því vera rétta skrefið,“ segir
Darri, sem er með 17,0 stig og
5,8 fráköst að meðaltali í fyrstu
fimm leikjunum. Darri segist hafa
hringt í Ellert og beðið hann um
að koma.
„Ég var búinn að vera með KR
í sumar og spilaði með liðinu á
Hraðmóti Fjölnis. Ég var efins
um hvort ég ætti að fara í KR eða
Hamar en svo valdi ég Hamar og
sé alls ekki eftir því núna,“ segir
Ellert og bætir við: „Það var stór
partur í þessu að Darri var búinn
að skuldbinda sig að fara þang-
að og það lá svona beint við að ég
kæmi líka. Við keyrum síðan alltaf
saman á æfingar,“ segir Ellert.
Þeir Darri og Ellert spiluðu
saman með KR upp alla flokka,
alveg frá minnibolta upp í meist-
araflokk. „Við erum búnir að spila
saman síðan við vorum tíu ára. Ég
þekki því Ella eins vel og hægt er,“
segir Darri.
Darri segir að það hafi ekki
verið létt ákvörðun að fara frá
KR. „Við erum rosalega miklir
KR-ingar þannig að það var ekk-
ert auðvelt að fara frá KR. Það er
mikil samkeppni í KR og barátta
um mínúturnar. Núna fáum við að
spila og sýna hvað við getum.“
„Manni hefur fundist maður
vera tilbúinn í þetta í einhver þrjú
ár. Það er mjög fínt að fá loksins
að axla þessa ábyrgð,“ segir Ell-
ert, sem hefur farið á kostum í
leikstjórnandastöðunni en hann
er með 17,6 stig og 7,0 stoðsend-
ingar að meðaltali.
„Fyrir mig persónulega vildi ég
svara spurningunni hvort ég gæti
ekki orðið mjög góður leikmaður
í þessari deild. Kannski erum við
líka að senda lúmsk skilaboð um
að við hefðum átt að spila aðeins
meira á sínum tíma,“ segir Ell-
ert.
Darri var mjög ánægður með að
fá Ellert til sín í Hamarsliðið.
„Það er mjög gaman að spila
með honum. Hann er alveg hörku
varnarmaður og svo er hann búinn
að vera flottur núna í sókninni og
kominn með bullandi sjálfstraust.
Ég átti kannski ekki von á því að
hann myndi skora svona mikið en
ég vissi alveg að hann gæti þetta.
Hann hefur bara ekki fengið tæki-
færi til að sýna það,“ segir Darri.
Ellert hrósar líka Darra. „Hann
er búinn að vera frábær og er að
fá þennan spilatíma sem hann á að
fá í efstu deild. Hann er líka búinn
að bæta sig mikið í sínu líkamlega
atgervi,“ segir Ellert. Ellert var
með 22,5 stig og 7,5 stoðsending-
ar í síðustu tveimur leikjum þar
sem Hamar vann bæði Reykjanes-
bæjarliðin.
„Liðinu virðist ganga betur
þegar ég tek af skarið og er að
reyna meira í sókninni,“ segir Ell-
ert og bætir við: „Darri er búinn
að vera skjóta því á mig að ég sé
hættur að gefa boltann en þá bendi
ég honum bara á tölurnar.“
Ellert hefur samt gaman af því
að vera búinn að skora þremur
stigum meira en Darri á tímabil-
inu (0,6 í leik). „Ég verð eiginlega
að láta hann heyra það áður en það
breytist. Ég verð að nýta þennan
montrétt,“ segir Ellert hlæjandi.
ooj@frettabladid.is
Blómstra í blómabænum
Vinirnir og jafnaldrarnir Ellert Arnarson og Darri Hilmarsson hafa sprungið
út í fyrstu fimm leikjunum sínum með Hamri þar sem liðið hefur unnið þrjú
stórlið. „Núna fáum við að spila og sýna hvað við getum,“ segir Darri.
Stórt stökk í tölfræðinni hjá Darra og Ellerti
Darri Hilmarsson
KR 2009-10 Hamar 2010-11
Stig 6,0 17,0
Fráköst 3,4 5,8
Framlag 8,5 15,6
Mínútur 17,5 33,1
Leikir Hamars í vetur
Tap fyrir Haukum (Ellert 17 stig - 6
stoðsendingar, Darri 17 stig)
Sigur á KR (Darri, Ellert 16 stig,
Darri 15 stig)
Tap fyrir Fjölni (Darri 22 stig,
Ellert 10 stig)
Sigur á Keflavík (Ellert 27 stig
- 7 stoðsendingar, Darri 12 stig)
Sigur á Njarðvík (Darri 19 stig - 8
fráköst, Ellert 18 stig - 8 stoðsend-
ingar)
Ellert Arnarson
KR 2008-09* Hamar 2010-11
Stig 1,5 17,6
Stosendingar 1,9 5,0
Framlag 3,3 16,6
Mínútur 8,4 35,1
* Lék ekki síðasta vetur
Við erum rosalega
miklir KR-ingar þannig
að það var ekkert auðvelt
að fara frá KR. Það er mikil
samkeppni í KR og barátta
um mínúturnar. Núna fáum
við að spila og sýna hvað við
getum. DARRI HILMARSSON
PAUL MCSHANE skrifaði í gær undir tveggja ára samning við Pepsi-deildarlið Grindavíkur og snýr því aftur til Grindavíkur
þar sem hann lék í áratug frá 1998 til 2007. Hann lék með Fram í tvö ár og svo með Keflavík í sumar. Paul McShane er
fimmti leikjahæsti leikmaður Grindavíkur í efstu deild en hann á alls að baki 191 leik í úrvalsdeild karla.
FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson,
landsliðsþjálfari í fótbolta, hefur
þurft að gera þriðju breytinguna á
hópnum sínum fyrir vináttulands-
leikinn í Ísrael á miðvikudaginn
kemur.
Ólafur hefur kallað á Blikann
Arnór Svein Aðalsteinsson en hann
kemur inn í hópinn í stað Grétars
Rafns Steinssonar sem meidd-
ist í leik með Bolton í fyrrakvöld.
Arnór hefur leikið 8 landsleiki og
alla undir stjórn Ólafs.
Áður höfðu þeir Stefán Logi
Magnússon og Steinþór Freyr Þor-
steinsson komið inn fyrir þá Árna
Gaut Arason og Rúrik Gíslason
sem glíma einnig við meiðsli. - óój
Þriðja breytingin á íslenska landsliðshópnum:
Kallaði á Arnór Svein
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson,
kylfingur úr GKG, endaði í fjórða
sæti á Condado Open-mótinu á
Spáni sem lauk í gær.
Birgir Leifur var í fimmta sæti
fyrir lokadaginn og hækkaði sig
því um eitt sæti með góðri spila-
mennsku í gær. Birgir Leifur lék
hringina þrjá á 212 höggum, fjór-
um höggum undir pari. Hann var
fjórum höggum á eftir sigurveg-
ara mótsins og aðeins einu höggi
frá öðru sætinu.
Birgir Leifur lék frábærlega á
fyrri níu holunum í dag, þar sem
hann lék á þremur höggum undir
pari eftir að hafa meðal annars
fengið örn á níundu holunni.
Birgir Leifur varð fyrir áfalli á
13. holu þegar hann lék hana á sjö
höggum og fékk tvöfaldan skolla.
Birgir hafði fengið fugl á þessari
sömu holu á fyrstu tveimur hring-
unum. Birgir Leifur paraði næstu
tvær holur og fékk síðan fugl
á þeirri sextándu. Hann tapaði
síðan höggi á 17. holu og endaði
hringinn á 71 höggi, einu höggi
undir pari.
Arnar Snær Hákonarson úr GR
fylgdi á eftir góðum öðrum degi
með því að leika annan daginn í
röð á 73 höggum, einu höggi yfir
pari. Arnar hækkaði sig upp í 29.
sæti en hann lék hringina þrjá á
sjö höggum yfir pari. - óój
Birgir Leifur Hafþórsson endaði í fjórða sæti á Condado Open-golfmótinu:
Bara einu höggi frá öðru sætinu
FJÓRUM HÖGGUM UNDIR PARI Birgir
Leifur Hafþórsson. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Meðal annars efnis:
Ekki missa af Fréttablaðinu um helgina
„Ekki spyrja eins og kjáni“
– Sofi Oksanen er ekki sú fyrsta sem reiðist íslensku fjölmiðlafólki.
Söngvarinn Lou Reed lét blaðamann heyra það.
Engin eftirsjá að þessu spillta kerfi
– Guðni Th. Jóhannesson um ævisögu Gunnars Thoroddsen
og íslenska samtímasögu.
Skyr er ekki bara skyr
– Gömlu hráefnin hafin til vegs í nýjum búningi.
Hátíðlegt og heimagert
– Kræsingar til að gefa og gleðja um jólin.