Fréttablaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 16
16 12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR FRÉTTASKÝRING: Aðdragandi stuðningsyfirlýsingar við innrás í Írak Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson vissu ekki í hvaða tilgangi átti að nota listann yfir viljugar þjóðir. Þeir ákváðu að Ísland skyldi vera á listanum tveimur dögum fyrir innrás Bandaríkjanna og bandalagsríkja í Írak. Þjóðréttar- fræðingur utanríkisráðuneytisins taldi innrásina ólöglega og lét ráðherra vita af því sama dag og innrásin hófst. Vissu ekki til hvers átti að nota listann ■ Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra, og Halldór Ásgrímsson, þáverandi utanríkisráðherra, tóku einir ákvörðun um stuðning Íslands við innrás Bandaríkjamanna og Breta í Írak 18. mars 2003. ■ Ekkert samráð var haft við Alþingi eða utanríkismálanefnd Alþingis áður en ákvörðun um stuðning var tekin. ■ Það kom íslenskum stjórnvöldum í opna skjöldu þegar listi yfir ríki sem studdu innrásina var birtur opinberlega seinna sama dag og Davíð og Halldór ákváðu að Ísland myndi styðja innrásina. ■ Þjóðréttarfræðingur utanríkisráðuneytisins taldi innrásina brot á alþjóða- lögum. Hann ráðlagði stjórnvöldum að tala ekki um að fyrir hendi væri „ótvíræður lagalegur grundvöllur“ fyrir beitingu vopnavalds í Írak. Aðdragandi stuðningsins í hnotskurn ÁKVÁÐU STUÐNING Skjöl utanríkisráðuneytisins sýna að hvorki Davíð Oddsson né Halldór Ásgrímsson vissu hvernig bandarísk stjórnvöld ætluðu að nota lista yfir ríki sem studdu innrás þeirra í Írak fyrr en listinn var birtur opinberlega. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI Alls voru 30 þjóðir á lista yfir bandalag viljugra þjóða þegar hann var gerður opinber á blaðamannafundi í bandaríska utanríkisráðuneytinu 18. mars 2003. Eftirtaldar þjóðir voru á listanum: Viljugar þjóðir ■ Afganistan ■ Albanía ■ Aserbaídsjan ■ Ástralía ■ Bretland ■ Danmörk ■ Eistland ■ El Salvador ■ Erítrea ■ Eþíópía ■ Filippseyjar ■ Georgía ■ Holland ■ Ísland ■ Ítalía ■ Japan ■ Kólumbía ■ Kórea ■ Lettland ■ Litháen ■ Makedónía ■ Níkaragva ■ Pólland ■ Rúmenía ■ Slóvakía ■ Spánn ■ Tékkland ■ Tyrkland ■ Ungverjaland ■ Úsbekistan Skjöl sem utanríkisráðuneytið birti í gær bregða nýju ljósi á aðdrag- anda þess að Ísland komst á lista yfir viljuga bandamenn Bandaríkj- anna tveimur dögum fyrir innrás- ina í Írak árið 2003. Þar er staðfest að það var ákvörð- un tveggja manna að setja Ísland á listann, þeirra Davíðs Oddsson- ar, þáverandi forsætisráðherra, og Halldórs Ásgrímssonar, þáverandi utanríkisráðherra. Í skjölunum kemur enn fremur fram að afar stuttur fyrirvari var að því að Ísland var sett á listann, og þegar það var gert vissu þeir Davíð og Halldór ekki til hvers listinn yrði notaður. Davíð vildi ekki veita Fréttablað- inu viðtal vegna málsins. Í svari hans, sem barst með tölvupósti, segir aðeins: „Ekkert bitastætt í þessu.“ Ekki náðist í Halldór. Utanríkisráðuneytið birti í gær tæplega 300 síðna skjalabunka um aðdraganda stríðsins. Þar eru sam- tals 67 aðgreind skjöl úr skjalasafni ráðuneytisins. Ráðuneytið ákvað að birta ekki 25 vinnuskjöl eða skjöl sem varða sam- skipti við önnur ríki. Þau eru sam- tals um 100 síður á lengd. Heimilt er samkvæmt upplýsingalögum að hafna því að veita aðgang að þess konar gögnum og ákvað ráðuneytið að nýta þá heimild. Hér má sjá feril málsins: Bandaríkin, Bret- land og Spánn hættu við að leggja fram til- lögu í öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna þar sem lagt var til að ráðið veitti heimild til innrásar í Írak. Ríkjunum hafði mistekist að afla tillögunni stuðnings. Þjóðirnar þrjár lýstu því yfir að þær væru tilbúnar til að beita vopnavaldi til að koma Saddam Hussein frá völdum í Írak. George W. Bush Bandaríkjaforseti veitti Hussein tveggja sólarhringa frest til að gefast upp og yfirgefa Írak. Þá hvatti hann Íraka til að snúast gegn Hussein, og íraska herinn til að leggja niður vopn. Fram kemur í minnisskjali um Íraksmálið, sem aðeins er auðkennt sem „Skjal nr. 35“, að fulltrúi banda- rískra stjórnvalda hafi óskað eftir því að Ísland bættist á lista yfir ríki sem styddi „aðgerðir“ Bandaríkj- anna og Bretlands. Ríkisstjórn Íslands fundaði, eins og venjulega á þriðjudögum. Á dagskrá fundar- ins var liðurinn „ófriðarhorfur“ sem utanríkisráð- herra er skrifaður fyrir. Ekki kemur fram hvað var rætt á fundinum, og því ekki ljóst af gögnunum hvort sú ákvörðun að setja Ísland á listann var rædd þar eða ekki. Í áðurnefndu „Skjali nr. 35“ kemur fram að fulltrúi bandaríska sendiráðsins á Íslandi hafi afhent starfsmönnum utanríkisráðuneyt- isins lista yfir 23 ríki sem studdu hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna og Bretlands í Írak. Í skjalinu segir: „Listinn hafði verið afhentur forsætisráðuneyti í morgun og fulltrúi forsætisráðherra segist hafa borið hann undir utan- ríkisráðherra. Samkvæmt því hafi verið samþykkt að Ísland bætist í hóp þeirra 23 ríkja sem þegar voru á listanum.“ Þar segir að listinn sé „algjört trúnaðarmál“, en vakin er athygli á því að þar vanti dygga stuðnings- menn Bandaríkjanna í málinu fram að þeim tíma, til dæmis Ástralíu, Japan og Portúgal. Í „Skjali nr. 35“ kemur fram að sendiráð Bandaríkjanna hér á landi muni láta vita með hvaða hætti væri ætlunin að nota listann, og hvort fleiri ríki myndu bætast á listann. „Þá var og rætt hvað það þýddi fyrir ríki að vera á listanum, og fulltrúa sendiráðsins gert ljóst að hér væri um pólitískan stuðning að ræða eingöngu. Ísland sem herlaust ríki gæti ekki stutt hernaðaraðgerð- ir,“ segir í skjalinu. Strax sama dag var blaðamönn- um í Washington tilkynnt um 30 ríki sem hefðu lýst sig fylgjandi fyrir- hugaðri árás á Írak á blaðamanna- fundi í utanríkisráðuneytinu. Þar var lesinn upp listi með ríkjunum 30, og var hann birtur í fjölmiðl- um. „Hvert ríki mun leggja sitt af mörkum eins og þeim þykir við- eigandi. Sum þessara ríkja, eða öll þeirra reikna ég með, hafa rætt opinberlega um það sem þau eru að gera,“ sagði talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins við fjöl- miðlamenn, eftir að hann hafði lesið upp lista yfir ríkin 30. Alþjóðaskrifstofa utanríkisráðu- neytisins sendi utanríkisráð- herra minnis- blað þar sem farið var yfir stöðu mála og mögulega réttlætingu fyrir því að gera árás á Írak. Í skjalinu kemur fram að listi yfir 30 ríki sem styðji aðgerðirn- ar hafi verið „lesinn upp í fréttum á CNN-sjónvarpsstöðinni“ kvöldið áður. „Þá höfðu, þrátt fyrir beiðni íslenskra stjórnvalda, ekki bor- ist upplýsingar frá bandarískum stjórnvöldum um það hvernig þau hygðust nota listann eða hvenær og með hvaða hætti hann yrði gerður opinber,“ segir þar. „Enn vantar upplýsingar um það frá bandarískum stjórnvöldum hvað felist í því að vera á þessum 30 ríkja lista. Fátt hefur verið um svör í þeim efnum og virðist sem það sé banda- rískum stjórnvöldum ekki fullljóst sjálfum,“ segir þar enn fremur. Af þessu má ráða að þeir Davíð og Halldór hafi ekki haft möguleika á að vita í hvaða tilgangi ætti að nota lista yfir þjóðirnar, hvort á annað borð ætti að gera hann opinberan og þá hvenær. Sú ákvörðun bandarískra stjórn- valda að gera listann opinberan strax, án þess að ræða það frekar við íslensk stjórnvöld virðist hafa komið utanríkisþjónustunni í opna skjöldu, og má gera ráð fyrir því að það sama hafi þá átt við um ráðherr- ana tvo. Í minnisblaðinu er farið yfir stöðu málsins í sögulegu og þjóðréttarlegu samhengi. Þar kemur meðal annars fram að ekki liggi fyrir afdráttar- laus ályktun öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna sem heimili innrás í Írak. Því sé ljóst að deilt verði um lögmæti aðgerðanna. Færa megi sterk rök fyrir því að fyrri ályktan- ir öryggisráðsins feli í sér víðtækar heimildir til að fylgja eftir kröfum alþjóðasamfélagsins um afvopnun Íraks. Innrás Banda- ríkjamanna og Breta hófst. Loft- árásir og flug- skeytaárásir voru gerðar samhliða innrás frá Kúvæt. Þjóðréttarfræðingur utanríkis- ráðuneytisins sendi utanríkisráð- herra og fleirum minnisblað þar sem farið var yfir lagalegan grund- völl innrásarinnar í Írak. Í minnisblaðinu, sem merkt er sem trúnaðarmál, er rakið að meg- inregla þjóðréttar sé sú að ríki megi ekki beita önnur ríki vopna- valdi. Undantekningar á þessu séu aðeins tvær. Sú fyrri sé þegar um sjálfsvörn ríkis að ræða eða hern- aður bandalagsríkja til að verja ríki sem ráðist er á. Síðari undantekn- ingin gildir aðeins ef öryggisráð Sameinuðu þjóðanna heimili beit- ingu vopnavalds. Þjóðréttarfræðingurinn segir í minnisblaðinu að vafasamt hljóti að teljast að þær ályktanir sem örygg- isráðið hafi samþykkt fram að þeim tíma gefi innrás lögmæti. Þar er þó vísað í rökstuðning breska ríkisins fyrir innrás, þar sem byggt er á því að ályktun örygg- isráðsins frá árinu 1990, sem heim- ilaði fyrra Persaflóastríðið, hafi í raun aldrei fallið úr gildi, heldur aðeins verið frestað. „Framangreindur lagaleg- ur grundvöllur breska utanríkis- ráðuneytisins verður [...] að teljast tæpur,“ segir í minnisblaðinu. Þar er mælt með því að ráðamenn forðist eins og framast sé kostur að fullyrða að fyrir hendi sé ótvíræður lagalegur grundvöllur til beitingar vopnavalds gegn Írak. Brjánn Jónasson brjann@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.