Fréttablaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 69
FÖSTUDAGUR 12. nóvember 2010 41
Enska hljómsveitin Hurts spil-
ar í Vodafone-höllinni í Reykja-
vík 20. mars á næsta ári. Hurts
spilaði í Hafnarhúsinu á síðustu
Airwaves-hátíð og þótti standa
sig með mikilli prýði. Tónleikarn-
ir í Vodafone-höllinni eru liður í
kynningu á plötunni Happiness,
sem hefur fengið góðar viðtök-
ur. Lagið Wonderful, sem er þar
að finna, hefur komist á topp vin-
sældalista víða um heim. Liðs-
menn Hurts eru mjög hrifnir af
Íslandi, enda tóku þeir upp mynd-
band við nýjasta smáskífulagið
sitt, Stay, hér á landi. Miðasala á
tónleikana hefst 1. desember.
Hurts aftur
til Íslands
HURTS Hljómsveitin Hurts spilar í Voda-
fone-höllinni 20. mars á næsta ári.
Söngkonan Lady Gaga hefur
fengið nálgunarbann sett á brjál-
aðan aðdáanda sem sendi henni
óhugnanlegt bréf. Þar skrif-
ar rússneski neminn Anastasia
Obukhova að draumur hennar
sé að deyja með Gaga. „Þú ert í
draumum mínum. Mig langar að
deyja og ég vil deyja með þér. Ég
er ekki Mark Chapman [morð-
ingi Johns Lennon]. Þú ert ekki
sú eina sem mun deyja. Ég mun
skjóta mig í höfuðið líka.“ Sam-
kvæmt dómsúrskurðinum má hin
26 ára Obukhova, sem býr í New
York, ekki koma nær Gaga en
tæpa fimm hundruð metra.
Aðdáandi
ógnar Gaga
LADY GAGA Gaga hefur fengið nálg-
unarbann sett á brjálaðan rússneskan
aðdáanda.
Átta stúlkur sem setið hafa nám-
skeiðið Sýningagerð og sýninga-
stjórnun setja upp sýningu í dag
en þær leituðu til almennings eftir
hugmyndum að verkum sem þær
síðan framkvæmdu. Á námskeið-
inu voru bæði nemendur í listfræði
við Háskóla Íslands og nemendur
Listaháskóla Íslands.
„Þetta var verkefni sem við
fengum úthlutað en við fengum
frjálsar hendur um hvernig ætti
að framkvæma það. Við ákváð-
um að fara nokkuð óhefðbundna
leið og taka listamanninn úr jöfn-
unni og í staðinn fá fyrirmæli frá
almenningi um hvernig verkin á
sýningunni eiga að vera,“ útskýr-
ir Lilý Erla Adamsdóttir, ein átt-
menninganna.
Stúlkurnar fóru á Kaffivagninn
og fengu fyrirmæli frá gestum
staðarins. „Sumir sögðu bara nokk-
ur orð, einn sagði til dæmis orðin
æðislegt, bjart og fólk. Annar var
nákvæmari og sagðist vilja fá mál-
verk af laxi í neti. Nú vinnum við
hörðum höndum að því að búa til
þessi verk handa þeim.“ Lilý Erla
segir fólk hafa tekið misvel í þetta
en að yfirleitt hafi mönnum þótt
gaman að fá að taka þátt í sköp-
unarferlinu.
Sýningin hefst í dag klukkan
17.00 í gallerí Kaffistofu við Hverf-
isgötu. - sm
Gerðu verk eftir fyrirmælum
Breska leikkonan Rachel
Weisz hefur sagt skilið við
barnsföður sinn, leikstjórann
Darren Aron ofsky, en parið
hefur verið saman í níu ár og
á saman soninn Henry.
Ástæða skilnaðarins er sögð
vera sú að Weisz hafi átt í ást-
arsambandi með leikaranum
Daniel Craig við tökur kvik-
myndarinnar Dream House,
en þar leika þau hjón. Craig
er sjálfur trúlofaður framleið-
andanum Satsuki Mitchell.
„Rachel og Daniel náðu mjög
vel saman meðan á tökum
stóð,“ var haft eftir heimild-
armanni.
Eldheitt samband
HEIT ÁST Rachel Weisz er orðin einhleyp
á ný. Sögusagnir eru um að hún hafi átt í
ástarsambandi við leikarann Daniel Craig.
NORDICPHOTOS/GETTY
Glæsilegar gjafabækur
í Bókabúð Máls og menningar
Opið til
22:00
öll kvöld
9.990 kr.
Verð áður 11.980 kr.
9.990 kr.
Verð áður 13.890 kr.
12.990 kr.
Verð áður 15.990 kr.
5.990 kr.
Verð áður 8.990 kr.
3.990 kr.
Verð áður 5.490 kr.
9.090 kr.
Verð áður 15.990 kr.
Gleðileikurinn guðdómlegi +
Ummyndanir - 2 góðar saman
Kjarni málsins
Fleyg orð á íslensku
Alheimurinn
Leiðsögn í máli og myndum
Veiðimenn norðursins
Ragnar Axelsson
Íslenzkir þjóðhættir
Jónas Jónasson
Sturlunga saga
3 bindi í öskju
LISTRÆNN HÓPUR Stúlkurnar unnu
listaverkin út frá fyrirmælum gesta Kaffi-
vagnsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON