Fréttablaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 66
38 12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
„Ég er með venju
lega
gólfdrauga inni h
já
mér. Þeir eru und
ir
rúmi og reyna
stundum að hrey
fa það.”
Fíasól
krakkar@frettabladid.is
Krakkasíðan er í helgar-
blaði Fréttablaðsins
1.995,-
Erlendar bækur
í miklu úrvali!
Úrval er breytilegt eftir verslunum.
folk@frettabladid.is
Kynlífssérfræðingurinn
Tracey Cox er stödd hér á
landi til að kynna nýjustu
bók sína, Lostaleiki. Daður-
drottningin Tobba Marinós
hefur lengi haft mætur á
Tracey og því ákvað Frétta-
blaðið að sameina þessar
tvær drottningar og ræddi
við þær um karlmenn, kyn-
líf og íslenska deitmenn-
ingu.
„Það er svo mikil mýta að allar
konur geti fengið fullnægingu ein-
ungis við samfarir. Það er í raun-
inni bara fáránlega lágt hlutfall
sem nær því,“ segir kynlífssér-
fræðingurinn Tracey Cox, sem
er hér á landi að kynna bók sína
Lostaleiki. „Konan þarf að kunna
á sig og geta sagt rekkjunauti
sínum hvaða svæði þurfi að örva
og hvað hann eigi að gera. Flest-
ar konur virðast samt ekki geta
talað um þetta og því er ekkert
við karlmennina að sakast. Þeir
þurfa bara leiðbeiningar.“ Tracey
segir líka aðra algenga mýtu vera
þá að karlmenn vilji stöðugt kyn-
líf. „Það er svo mikið bull. Þegar
karlmenn eru í kringum fertugt
minnkar áhuginn á kynlífinu til
muna. En samt fara þeir á barinn
með strákunum og tala endalaust
um kynlíf.“
Ömurleg deitmenning
Þegar talið berst að íslensku deit-
menningunni er ljóst að margt
þarf að laga samkvæmt daður-
drottningunni Tobbu Marinós.
„Hér er bara farið á rúntinn og
Laugavegurinn keyrður aftur
og aftur,“ segir Tobba, en bætir
við að einstaka strákur leggi það
á sig að bjóða í bíó. Tracey verð-
ur gjörsamlega orðlaus og spyr
hvers vegna ekki sé hægt að bjóða
í hádegismat eða fara út og fá sér
drykk. „Ástæðan er sú að íslensk-
um strákum finnst þeir vera að
reyna of mikið með því að bjóða
stelpunni eitthvað fínt,“ segir
Tobba.
Hún segir líka marga stráka
vilja sleppa deitinu. „Þeir tékka
kannski á stelpunni um kvöldið og
athuga hvort hún sé að djamma.
Svo sendir hann henni SMS seinna
um nóttina og vill þá hitta hana.
Svo vaknar stelpan bara um morg-
uninn heima hjá honum og allt í
rugli,“ segir Tobba og bætir við að
ef strákurinn hafi einhvern áhuga
á stelpunni yfirleitt geti hann bara
fundið eitthvað almennilegt fyrir
þau að gera.
Regla um síðasta söludag
Tracey segir konur oft búa sér
til óraunhæfar væntingar þegar
komi að karlmönnum. „Konur
eru mjög duglegar við að búa til
tálsýn af því sem er fyrir fram-
an þær. Þær vonast til að maður-
inn geti orðið eitthvað sem hann
er bara alls ekki. Svo verða þær
fyrir vonbrigðum þegar lengra
er komið í sambandinu.“ Tobbu
finnst líka fáránlegt að vinkon-
ur geti ekki farið í sama gaur-
inn með áralöngu millibili. „Mér
finnst að það ætti að vera regla
hérna í íslensku samfélagi sem
segir til um að þó svo að einhver
vinkona þín hafi deitað gaur fyrir
tíu árum megir þú fara í hann.
Það hlýtur bara að vera einhver
„síðasti söludagur“.“
En hvað eiga íslenskar stelpur
þá að gera til að koma í veg fyrir
stefnumótaklúður? „Stelpur eiga
að vera duglegri að segja „nei“ og
láta ekki bjóða sér á svona asna-
leg deit,“ segir Tobba og Tracey
er henni fullkomlega sammála.
„Þið getið allavega byrjað á því
að hætta þessum fáránlegu rúnt-
um,“ segir hún og hlær.
Aldrei við Íslending kennd
Þegar Tracey kom til landsins
fyrir sex árum voru uppi sögu-
sagnir um að hún ætti vingott við
íslenskan mann. Er eitthvað hæft
í þeim orðrómi? „Nei, almáttug-
ur. Þessi maður hitti mig í mið-
bænum og spurði mig hvort mig
langaði að setjast inn á einhvern
veitingastað og fá mér að borða.
Þóra, bókaútgefandinn minn, var
með mér og þar af leiðandi gerði
ég mér enga grein fyrir því að
þetta væri stefnumót. Þegar við
vorum búin að borða rölti hann
með mér að hótelinu og spurði
hvort hann mætti koma upp, en
ég náttúrulega neitaði því,“ segir
Tracey, sem hefur því aldrei
verið við íslenskan karlmann
kennd. „Íslenskir karlmenn eru
gullfallegir en ég er ekki alveg
á lausu núna,“ segir Tracey og
gerir því út um allar vonir ein-
hleypu íslensku karlmannanna.
kristjana@frettabladid.is
Íslenskir karlar gullfallegir
HITTI ÁTRÚNAÐARGOÐIÐ Tobba Marinós vísar oft í Tracey Cox í bókum sínum og var
því ánægð með áritað eintak frá kynlífssérfræðingnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
MYNDIR VERÐA FRUMSÝNDAR Í KVIKMYNDAHÚSUNUM Í KVÖLD;
Easy A, Unstoppable, Artúr 3, Baaria, Jackass 3D og Gnarr, sem fjallar um kosningabaráttu
Besta flokksins.
„Ég er bara mjög ánægður með
þetta,“ segir rapparinn Ástþór
Óðinn. Hann lenti í þriðja til
þrettánda sæti í evrópsku laga-
keppninni I-Mego með lag sitt
Mamma. Mörg hundruð lög voru
send í keppnina og lag Ástþórs,
sem er bæði sungið á íslensku
og ensku, var valið úr þeim hópi.
„Þetta kom mér á óvart. Ég
hlustaði á hin lögin og þau voru
virkilega góð.“
Lagið fjallar um mömmu hans
sem lést fyrir fimmtán árum.
Þar skrifar Ástþór henni bréf
og segir frá því hvernig líf hans
er í dag. „Hún hefði brosað,“ segir rapparinn, spurður hvað henni
hefði fundist um árangurinn ef hún hefði verið á lífi.
Ástþór fær í verðlaun hljóðnema og heyrnartól sem munu nýtast
vel í hljóðveri sem hann rekur í Kópavogi ásamt félögum sínum.
Bandaríska útgáfufyrirtækið Expat Records heyrði lagið Mamma
og ætlar að gefa plötu Ástþórs, Both Ways út. Hann er um þessar
mundir að þýða lögin Mamma og Í gegnum tímans rás yfir á ensku
fyrir bandarísku útgáfuna, sem er væntanleg næsta vor. „Þetta
lítur allt bara mjög vel út,“ segir rapparinn. - fb
Mamma hefði brosað
ÁSTÞÓR ÓÐINN Rapparinn komst í eitt
af efstu sætunum í evrópsku lagakeppn-
inni I-Mego. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Dansstúdíó World Class stendur
fyrir danshátíð í dag og á morg-
un með heimsþekktum dansara
frá Los Angeles. Sonny Freddie
Peder sen heitir hann og kenn-
ir meðal annars hiphop-dans og
hefur sérstakur stíll hans vakið
mikla athygli. Hann
starfar nú sem dans-
höfundur Nicole
Scherzinger, söng-
konu PussyCat
Dolls, en hefur
einnig unnið með
Paulu Abdul úr
American Idol
og söngvar-
anum Chris
Brown. Hátíð-
in er ætluð
öllum og
kostar 5.900
krónur. Hægt
er að skrá sig
hjá World Class.
Dansar með
stjörnunum
Þungarokkssveitirnar Sólstaf-
ir og XIII halda fjölskyldu- og
unglingatónleika á laugardaginn
kl. 16 á Sódómu Reykjavík. „Við
höfum fengið fjölda fyrirspurna
um að halda tónleika fyrir þá sem
hafa ekki aldur til að komast inn
á skemmtistaði,“ segir Aðalbjörn
Tryggvason, söngvari Sólstafa. „Um
leið erum við að gefa helgar pöbbum
færi á að gera eitthvað uppbyggilegt
með börnunum sínum.“
Rokka fyrir
fjölskyldur
SÓLSTAFIR Rokka
fyrir unglinga á
laugardaginn.
6