Fréttablaðið - 12.11.2010, Síða 8
8 12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
NÝSKÖPUN Alþjóðlega athafnavikan á Íslandi
hefst á mánudaginn næstkomandi. Að vikunni
koma um 100 lönd og er þetta í annað sinn
sem vikan er haldin á Íslandi og í þriðja sinn
á heimsvísu.
Árið 2009 voru um fimmtíu samstarfsaðil-
ar sem tóku þátt hér á landi, yfir 5.000 gestir
og um 120 viðburðir. Ísland fékk viðurkenn-
ingu fyrir að vera með flesta viðburði miðað
við höfðatölu og lenti í 14. sæti yfir flesta við-
burði yfir allt.
Þórhildur Birgisdóttir, framkvæmdastjóri
Athafnavikunnar á Íslandi, segir allt stefna í
að þátttakan verði jafn góð og jafnvel betri en
í fyrra.
„Þetta er stærsta hvatningarátak í heimi
á sviði nýsköpunar,“ segir Þórhildur. „Við
viljum hvetja fólk til þess að láta hugmynd-
ir sínar verða að veruleika og minna á gildi
athafnasemi.“
Hver sem er getur haldið viðburð í vikunni,
einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og
stofnanir. Margir af helstu leiðtogum heims
eru talsmenn vikunnar, meðal annars Hillary
Clinton og Nicholas Sarkozy. Hér á landi eru
þær Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningar-
málaráðherra, meðal talsmanna. Iðnaðarráð-
herra setur hátíðina í Nauthóli á mánudaginn
klukkan 17.
Dagskrá og skráningu er að finna á heima-
síðu Athafnaviku, www.athafnavika.is. - sv
Alþjóðleg athafnavika verður sett í annað sinn hér á landi á mánudag í Nauthóli:
Stærsta átak í heimi á sviði nýsköpunar
ÞÓRHILDUR BIRGISDÓTTIR Framkvæmdastjóri Athafna-
viku segir vikuna vera hvatningu til fólks til að láta
hugmyndir sínar verða að veruleika.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1 Hver var markahæstur í N1-
deild karla í handbolta eftir sex
umferðir?
2 Hversu háa sekt geta fyrirtæki
fengið fyrir að skila ekki reikning-
um til Ársreikningaskrár?
3 Hvað heita landnámshænurnar
sem mega ekki búa á Hjallavegi í
Reykjavík?
SVÖR
1.Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK. 2. 250
þúsund krónur. 3. Lukka, Gríma, Bíbí
og Gæfa.
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
19
69
1
0/
10
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
1
6
2
6
0
9
/1
0 Hjúkrunarþjónusta
í Lyfju Lágmúla
Veitum ýmsa sérhæfða þjónustu,
m.a. aðstoð við léttar sáraskiptingar
og við að fjarlægja sauma.
Þjónustan er opin virka daga frá kl. 8 -17.
EFNAHAGSMÁL „Það er alveg klárt
að aðild að Evrópusambandinu og
evrusvæðinu myndi leysa mynt-
vandann sem birtist í fjármála-
kreppunni hér, bæði frá sjónarhóli
verðstöðugleika og frá sjónarhóli
fjármálastöðugleika,“ sagði Már
Guðmundsson seðlabankastjóri á
hádegisfundi Félags viðskipta- og
hagfræðinga (FVH) um peninga-
mál í gær. Um leið áréttaði hann að
landið gæti samt komið sér í vanda-
mál varðandi fjármálastöðugleika
eftir öðrum leiðum.
„En auðvitað er það
þannig að þessi aðild er
óviss og á í besta falli
langt í land. Þess vegna
þarf að móta peninga-
stefnu sem getur dugað
þangað til og til fram-
búðar ef á þarf að halda,“
sagði Már. Stefnuna sem
seðlabankastjóri talar
fyrir kallar hann „verð-
bólgumarkmið plús“, en
aðrir valkostir í stjórn
peningamála segir hann
vera einhliða fastgengi,
annaðhvort hefðbund-
ið eða með myntráði,
og svo einhliða upptöku
annarrar myntar. Fast-
gengi segir Már annað-
hvort kalla á viðvarandi
gjaldeyrishöft eða öflug-
an gjaldeyrisforða svo hægt sé að
verja gengið. Báðar leiðir séu afar
kostnaðarsamar. Þá fylgi myntráði
líka vandamál sem lýsi sér í hætt-
unni á alvarlegu gengisfalli þegar
að því kemur og benti á fordæmi
Argentínu. Þá sé einhliða upptaka
evru líka hættuleg. „Þá er engin
trygging fyrir neinni lánsfjár- eða
lausafjártryggingu í þeirri mynt,“
sagði hann og kvað peningastefnu-
kerfi þurfa að þola sveiflu í báðar
áttir. „Sveiflan niður á við kemur
alltaf líka,“ sagði hann og benti
um leið á að ekkert vit væri held-
ur í að eyða gjaldeyrisforðanum í
að kaupa evrur, ef hægt væri með
samningum að skipta honum út
fyrir evrur.
Leiðin sem Má hugnast best er
verðbólgumarkmið sem tengt yrði
almennum hagtölum á betri hátt en
áður. Stuðningur frá ríkisfjármál-
um yrði að vera betri en áður, var-
úðarreglur yrðu að vera góðar og
sterkt fjármálaeftirlit. Þá þyrfti
hömlur á alþjóðlega bankastarf-
semi, svo lengi sem þjóðin væri
utan stærra myntsvæðis, auk fleiri
þátta.
Már sagði að þótt lítil fjármála-
lega samþætt hagkerfi á borð við
Ísland, Nýja-Sjáland og
fleiri lönd, gætu fræði-
lega haft fljótandi mynt
án áhættu fyrir fjár-
málastöðugleika, sýndu
rannsóknir að gengi
gjaldmiðla þeirra hefði
tilhneigingu til óþekkt-
ar, að minnsta kosti til
skemmri tíma. „Dæmi
um það er auðvitað
vaxtamunarviðskiptin,“
sagði hann.
Illugi Gunnarsson,
þingmaður í leyfi, var
einnig með framsögu á
fundinum. Hann fjallaði
líka um vaxtamunarvið-
skipti og benti á að þau
kæmu tæpast til með að
hverfa. Spákaupmenn á
gjaldeyrismarkaði störf-
uðu samkvæmt Svarta-
skólaheilkenninu sem fólk þekk-
ir úr þjóðsögum Jóns Árnasonar
af Sæmundi fróða. Skrattinn hirti
nefnilega bara þann nemanda sem
síðastur var út. Gjaldeyrisbraskar-
ar veðja allir á að þeir nái að forða
sér, en einhver annar tapi. Reynsl-
an sýndi að hér væri ekki hægt í
opnu hagkerfi að hækka vexti
mikið umfram það sem gerðist í
viðskiptalöndum okkar.
Niðurstaða Illuga var að horfast
yrði í augu við kostnaðinn af því að
halda hér úti krónu, en hann end-
urspeglaðist annaðhvort í gengis-
sveiflum eða einhvers slags höml-
um, og kostnaði sem þær hefðu í
för með sér.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
PALLBORÐ FVH Már Guðmundsson seðlabankastjóri, Illugi Gunnarsson þingmaður,
Gísli Hauksson, framkvæmdastjóri Gamma, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
og Ragnar Árnason prófessor, ræddu stjórn peningamála á Hótel Loftleiðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Aðild að ESB og upptaka
evru leysir myntvandann
Aðild að ESB er óviss og í besta falli langt í land, segir seðlabankastjóri. Hann talar fyrir nýrri nálgun í
peningamálastjórn. Illugi Gunnarsson, alþingismaður í leyfi, segir krónu annaðhvort fylgja sveiflur eða höft.
„Þegar menn búa við stórt alþjóðlegt bankakerfi og
smámynt eins og íslensku myntina þá þurfa menn að
fara varlega,“ áréttaði Ragnar Árnason prófessor í máli
sínu í pallborði á fundi FVH í gær. Þessu hafi menn
flaskað á í stjórn peningamála fyrir hrun, þegar vextir
voru hækkaðir stig af stigi, með þeim afleiðingum að
gjaldeyrir streymdi inn í landið.
„Ég fullyrði að með þessum aðgerðum var hluta af
verðbólgunni í raun og veru sópað undir teppið í skjóli
gengishækkunar, með þeim afleiðingum að landið
varð stórlega skuldsett út á við. Og leiðrétting á þeirri skuldastöðu og þeirri
þungu vaxtabyrði sem henni fylgdi var óhjákvæmileg. Þannig að það varð
að verða verulegur afturkippur, jafnvel hrun, í íslensku hagkerfi jafnvel þótt
ekkert hefði gerst erlendis,“ sagði Ragnar og kvað Seðlabankann fyrir hrun
hafa fylgt algjörlega ósjálfbærri stefnu.
Íslenska hrunið var óumflýjanlegt
Það varð að
verða veruleg-
ur afturkippur,
jafnvel hrun, í
íslensku hag-
kerfi jafnvel
þótt ekkert
hefði gerst
erlendis.
RAGNAR ÁRNASON
HAGFRÆÐI-
PRÓFESSOR
málaráðherra, sem sat í pallborði
á fundi FVH, benti á að þær hafi
verið fáar raddirnar á árunum
fyrir hrun, 2005, 2006 og 2007,
sem haft hafi uppi gagnrýni á
stjórn peningamála og lítið á þær
hlustað. „Við erum núna meira og
minna sammála um mistökin sem
voru gerð,“ sagði hann, en kvaðst
í stórum dráttum sammála grein-
ingu Illuga og Más á þeim vanda-
málum sem nú væri staðið frammi
fyrir við stjórn peningamála.
Ýmislegt væri hægt að gera strax
til að forða líkum á öðru hruni,
svo sem að sveitarfélög skuld-
setji sig innan einhverra marka
og taki ekki erlend lán, fremur en
almenningur með tekjur í krón-
um. olikr@frettabladid.is
DÓMSMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri var í gær úrskurðaður í
áframhaldandi gæsluvarðhald til
25. nóvember að kröfu lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu.
Maðurinn, sem er erlendur rík-
isborgari og var handtekinn um
miðja síðustu viku, er grunaður
um aðild að máli sem er til rann-
sóknar hjá lögreglu og snýr að
framleiðslu fíkniefna, sölu þeirra
og dreifingu. Fjórir karlmenn til
viðbótar, sem sátu í gæsluvarð-
haldi frá 21. október vegna sama
máls, hafa verið úrskurðaðir í far-
bann til 8. desember. Gæsluvarð-
haldsúrskurður yfir þeim rann
út í gær en ekki var farið fram á
framlengingu. Fjórmenningarn-
ir, sem voru handteknir í Reykja-
vík og Grímsnesi í síðasta mánuði,
eru sömuleiðis allir erlendir rík-
isborgarar. Mennirnir eru á þrí-
tugs- og fertugsaldri. - jss
Fjórir settir í farbann:
Meintum dóp-
sölum sleppt
SAMFÉLAGSMÁL Fimm fulltrúar
voru kjörnir í fjölmenningarráð
Reykjavíkurborgar á Fjölmenn-
ingarþingi sem haldið var í Borg-
arleikhúsinu um síðustu helgi.
Þetta er í fyrsta sinn sem skipað
er í ráðið, en því er ætlað að vera
mannréttindaráði Reykjavíkur-
borgar og stofnunum borgarinn-
ar innanhandar í málefnum inn-
flytjenda. Um 200 gestir mættu á
þingið, þar sem fram fóru líflegar
umræður og kynning á þjónustu
borgarinnar. - þj
Fimm í fjölmenningarráð:
Innflytjendur
fá rödd í borg-
armálunum
FJÖLMENNING Í FYRIRRÚMI Fjölmenn-
ingarráð var skipað í fyrsta sinn um
síðustu helgi. Hér eru fjórir úr ráðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MÓTMÆLA NIÐURSKURÐI Listi með undirskriftum rúmlega 10.000 Sunnlendinga,
þar sem mótmælt var niðurskurði á fjárframlögum til heilbrigðisþjónustunnar á
svæðinu, var afhentur heilbrigðisráðherra í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEISTU SVARIÐ?