Fréttablaðið - 12.11.2010, Síða 12
12 12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært nítján ára stúlku fyrir
ofbeldi og hótanir gegn lögreglu.
Í ákæru segir að aðfaranótt
sunnudagsins 30. maí síðastliðins
hafi stúlkan ráðist með ofbeldi
að tveimur lögreglumönnum sem
voru við skyldustörf, sparkað í
hægri sköflung annars þeirra og
í hægra læri hins. Atvikið átti sér
stað fyrir utan skemmtistaðinn
Manhattan í Reykjanesbæ.
Jafnframt er stúlkunni gefið að
sök að hafa í lögreglubifreið á leið
á lögreglustöð með ógnandi hætti
hótað öðrum lögreglumannanna
líkamsmeiðingum og ofbeldi með
því að láta þau orð falla að hún
ætlaði að drepa fjölskyldu hans.
Þá hefur ríkissaksóknari ákært
tvítugan mann fyrir að hafa á sama
stað í apríl síðastliðnum ráðist
með ofbeldi á lögreglumann, sem
þar var við skyldustörf og spark-
að í hægri fótlegg hans með þeim
afleiðingum að lögreglumaður-
inn hlaut bólgu og eymsli í hægri
ökkla. Einnig hafi hann, í lög-
reglubíl á leið á lögreglustöð, með
ógnandi framkomu ítrekað hótað
tveimur lögreglumönnum, sem þá
voru við skyldustörf, lífláti.
Bæði málin eru rekin fyrir Hér-
aðsdómi Reykjaness. - jss
Ríkissaksóknari ákærir stúlku og ungan mann fyrir brot gegn lögreglu:
Hótuðu ítrekað ofbeldi og lífláti
LÖGREGLAN Fólkið hótaði lögreglu-
mönnum ítrekað á leið á lögreglustöð.
NÝTUR VIRÐINGAR Þurrkað af ljósmynd
af Suu Kyi í höfuðstöðvum flokks henn-
ar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BÚRMA, AP Talið er að herfor-
ingjastjórnin í Búrma muni fljót-
lega láta Aung San Suu Kyi lausa
innan skamms, nú þegar umdeild-
um þingkosningum er lokið.
Í gær tapaði Suu Kyi dóms-
máli, en hún hafði áfrýjað því að
stofufangelsi hennar var lengt
um átján mánuði eftir að banda-
rískur maður komst inn á heimili
hennar, þar sem hún hefur verið
höfð í stofufangelsi meira og
minna í nærri tvo áratugi.
Þrátt fyrir að Aung San Suu
Kyi sé enn þekktasti leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í Búrma
gat hún ekki tekið þátt í kosning-
unum og stuðningsmenn henn-
ar hvöttu fólk til að greiða ekki
atkvæði. - gb
Suu Kyi tapar dómsmáli:
Verður líklega
samt látin laus
MAHMOUD BARZANI Leiðtogi Kúrda
verður áfram forseti Íraks. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÍRAK, AP Með bráðabirgðasam-
komulagi um framhaldslíf
stjórnar Nouri Al-Malikis í Írak
er komið í veg fyrir að súnní-
múslimar fái meiri ítök í stjórn-
inni, þrátt fyrir að bandalag
þeirra hafi unnið sigur í þing-
kosningunum í mars.
Bandaríkjastjórn hefur lýst
áhyggjum af því að fái súnní-
múslimar ekki meiri ítök geti
uppreisnarhreyfing þeirra gegn
stjórnvöldum styrkst.
Samkvæmt samkomulaginu
verður Ayad Allawi, leiðtogi
bandalags súnnía, yfirmaður nýs
öryggisráðs, en hlutverk þess er
enn óljóst. - gb
Erfiðri fæðingu að ljúka:
Íraksstjórn fær
að tóra áfram
VERKALÝÐSMÁL Steingrímur J. Sig-
fússon fjármálaráðherra tók nýver-
ið við yfirlýsingu frá Alþjóðaverka-
lýðshreyfingunni (Global Unions) í
höfuðstöðvum BSRB.
Þessi sama yfirlýsing verður
lögð fyrir fund G20-ríkjanna sem
hófst í Seúl í gær en þar er kall-
að eftir sanngjarnara skattkerfi,
því að fjárfest sé í menntun og að
haldið verði úti öflugri almanna-
þjónustu. Skrifstofu BSRB barst
yfirlýsingin en óskað var eftir
því að henni yrði komið á fram-
færi við ríkisstjórnina. - mþl
Tillögur verkalýðshreyfinga:
Kalla eftir öfl-
ugri þjónustu
BANDARÍKIN Gerhard Schröder,
fyrrverandi Þýskalandskanslari,
segir að George W. Bush segi ekki
rétt frá samskiptum þeirra í ævi-
sögu sinni, sem kom út í vikunni.
Schröder hafnar því að hafa
lofað stuðningi Þýskalands við
innrás í Írak, en Bush segir í bók-
inni að Schröder hafi svikið það
loforð. Schröder segist hins vegar
eingöngu hafa lofað stuðningi ef í
ljós kæmi að Írakar hefðu skotið
skjólshúsi yfir þá sem báru ábyrgð
á árásunum 11. september 2001.
Þá hefur David Cameron, for-
sætisráðherra Bretlands, sagt að
ekkert sé hæft í þeirri fullyrð-
ingu Bush að Bandaríkjamönnum
hafi tekist að bjarga mannslífum í
Bretlandi með því að ná mikilvæg-
um upplýsingum með pyntingum
út úr föngum í Guantanamo-búð-
unum.
Bush viðurkennir í bókinni að
hafa gefið samþykki sitt fyrir því
að þrír fangar yrðu beittir vatns-
pyntingum. Hann segist reyndar
ekki líta svo á að vatnspynting-
ar séu pyntingar, þótt Bandarík-
in hafi til þessa jafnan kallað
það pyntingar þegar bandarískir
stríðsfangar hafa orðið fyrir þess-
ari meðferð.
„Enginn vafi leikur á því að
þetta var harkaleg aðferð, en lækn-
ar fullvissuðu leyniþjónustuna um
að hún ylli engum varanlegum
skaða,“ segir hann í bókinni.
Í ævisögu sinni viðurkennir
Bush einnig að hafa látið skipu-
leggja árás á Íran og verið við því
búinn að hrinda þeirri áætlun í
framkvæmd.
Þá viðurkennir hann einnig að
hafa íhugað hvort gera ætti árás á
Sýrland að beiðni Ísraelsstjórnar,
sem óttaðist að Sýrlendingar væru
með kjarnorkuver í smíðum.
„Við skoðuðum hugmyndina
ítarlega en leyniþjónustan CIA
og herinn komust að þeirri niður-
stöðu að það væri of mikil áhætta
fólgin í því að lauma árásarsveit
inn í Sýrland og út aftur,“ segir
Bush í ævisögunni.
Bush viðurkennir margvís-
leg mistök í ævisögu sinni, sem
kom út í gær og nefnist Decision
Points. Meðal annars segir hann
ýmis mistök hafa verið gerð í
stríðsrekstri Bandaríkjanna í
Írak. Hins vegar segist hann enn
þeirrar skoðunar að rétt hafi verið
að ráðast á Írak.
Bush segist jafnan hafa reynt
að taka vel á móti allri gagnrýni á
sig, en einhverra hluta vegna situr
í honum mótmælaskilti sem blasti
við þegar hann hitti Tony Blair,
þáverandi forsætisráðherra Bret-
lands, árið 2003 á pöbbnum Dun
Cow í smábænum Sedgefield í Eng-
landi: „Mad Cowboy Disease“ stóð
á skiltinu. gudsteinn@frettabladid.is
Bush undirbjó árás á Íran og
íhugaði að ráðast á Sýrland
Gerhard Schröder og David Cameron bera brigður á fullyrðingar í nýútkominni ævisögu George W. Bush,
fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Bush viðurkennir stöku mistök en stendur samt við flest það umdeildasta.
MISHEPPNUÐ SVIÐSETNING Bush segir það hafa verið „slæma sviðsetningu“ að stilla
sér upp fyrir framan áletrunina „Mission Accomplished“ eða „Verkefni lokið“ þegar
hann lýsti því yfir að meiriháttar hernaði í Írak væri lokið strax í byrjun maí árið 2003.
NORDICPHOTOS/AFP
LOKUÐU DYRUM RÁÐUNEYTIS Liðs-
menn Greenpeace-samtakanna lokuðu
aðgangi að dyrum sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytis Frakklands í
París með því að leggja þar litlum bíl
með eftirlíkingu af bláum túnfiski ofan
á, til að mótmæla afstöðu Frakka til
túnfiskveiða. NORDICPHOTOS/AFP