Fréttablaðið - 12.11.2010, Qupperneq 32
2 föstudagur 12. nóvember
núna
✽ Ekki missa af
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon og Álfrún Pálsdóttir Forsíðumynd Stefán Karls-
son Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Hallgrímsdóttir
sigridurh@365.is sími 512 5432 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
blogg vikunnar
Í Föstudegi s íðustu viku
gleymdust upplýsingar um
skyrtuna sem konurnar í Ein
flík, þrjár konur klæddust.
Skyrtan fæst í Vero Moda og
kostar 4.990 krónur. Beðist er
velvirðingar á þessu.
UPPLÝSINGAR SEM GLEYMDUST:
Ein skyrta,
þrjár konur
P abbi byrjaði að kalla mig fröken fix þegar ég var ung, vegna þess að ég var alltaf að breyta til í her-
berginu mínu. Henda öllu út og raða upp á nýtt. Þegar
ég ákvað að stofna mitt eigið fyrirtæki lá þetta nafn því
beinast við,“ segir Sesselja Thorberg vöruhönnuður en
hún hefur stofnað ráðgjafafyrirtækið Fröken Fix og sér-
hæfir sig í innanhúss- og skipulagsráðgjöf fyrir heimil-
ið. Sesselja er menntaður vöruhönnuður en hefur allt-
af haft brennandi áhuga á öllu sem tengist innanhúss-
arkitektúr.
„Ég hef verið að gefa fólki ráð í langan tíma en er
fyrst núna að búa til fyrirtæki í kringum þetta,“ segir
Sesselja en hún ætlaði ekki beint að leiðast út í fyrir-
tækjarekstur en eftir að hún varð fyrir barðinu á hóp-
uppsögn hjá arkitektastofu nýtti hún tækifærið til að
kýla á gamlan draum. „Kreppan skapar marga mögu-
leika og ég er alsæl með að hafa tekið stóra skrefið,“
segir hún og bætir við að þrátt fyrir að vera ný af nál-
inni séu margir farnir að nýta sér þjónustuna. Flest-
ir viðskiptavinir hennar eiga það sameiginlegt að vera
orðnir leiðir og vilja breyta til heima hjá sér en vita
ekkert hvernig þeir eiga að snúa sér. „Ég sérhæfi mig
í að nýta það sem fólk á fyrir inni á heimilinu. Í þessu
árferði er það nauðsynlegt og flestir verða samdauna
heimilum sínum eftir langan tíma og sjá ekki alveg
möguleikana sem húsin og húsgögnin búa yfir. Þar
kem ég með nýja sýn en ég sé alltaf einhverja mögu-
leika,“ segir Sesselja glöð í bragði en hægt er að nálg-
ast allar upplýsingar varðandi þjónustuna á vefsíðunni
frokenfix.is. En hvaða rými er það sem henni finnst
skemmtilegast að taka að sér? „Ég er algjört skipu-
lagsfrík svo mig klæjar alveg í puttana þegar ég fæ að
hanna og skipuleggja þvottahús og geymslur upp á
nýtt. Finnst það æði,“ segir Sesselja hlæjandi. - áp
Sesselja Thorberg sér möguleika í hverju rými:
SKEMMTILEGAST AÐ
SKIPULEGGJA GEYMSLUR
Fröken Fix Sesselja Thorberg er vöruhönnuður og innanhússráðgjafi sem sérhæfir sig í að hjálpa fólki að
nýta dótið sem það á fyrir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Eftir að hafa legið í dvala undanfarin ár eru
eyrnalokkarnir að komast aftur inn á sjónar-
sviðið. Því stærri og meira áberandi því betra
segja tískuspekingar. Þessir tvílitu og síðu
kögureyrnalokkar eru úr smiðju Elvu Dagg-
ar Árnadóttur og fást í mörgum litasam-
setningum. Eyrnalokkarnir eru til í Mýr-
inni og kosta 7.300 krónur. Tilvalið við
jólakjólinn eða í jólapakkann fyrir þá
sem farnir eru að huga að jólum.
- áp
Síðir eyrnalokkar eru heitir í vetur:
Eyrnakonfekt
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU
Svíi bloggar
Bloggsíðan www.carolinesmode.
com er sænskt tískublogg sem
haldið er úti af hinni ungu og glys-
gjörnu Caroline. Hún blandar
saman myndum af sínum
eigin fatastíl og mynd-
um sem veita henni
innblástur. Fötin sem
hún klæðist eru oft
á tíðum djörf og
samsetningarnar
stundum skrítn-
ar, en þrátt fyrir
það er gaman að
renna í gegnum
síðuna og skoða
tískuna.
Parísartískan
Www.leblogdebetty.com er tísku-
blogg Parísardömunnar Betty. Þar
skrásetur stúlkan daglegan klæðn-
að sinn og segir stuttlega frá hverri
flík, hvar þær fást og af hverju
þessi samsetning varð fyrir valinu.
Betty skrifar á ensku og því ættu
flestir að geta skilið bloggfærsl-
urnar.
Tískuþenkjandi mæðgur
Íslenska tískubloggið www.war-
drobe-wonderland.blog-
spot.com hefur hlotið
nokkra umfjöllun, enda
skemmtilegt blogg hér
á ferð. Mæðgur halda
úti síðunni og er
þar góð blanda
af þeirra eigin
stíl og almennri
tískuumfjöllun.
EINFALT OG LÉTT Íslenska kokkalandsliðið
heldur utan í næstu viku til að keppa í heimsmeist-
aramótinu í matreiðslu. Í tilefni þess gáfu kokkarn-
ir út þessa skemmtilegu matreiðslubók, en þar má
finna margar góðar uppskriftir sem innihalda aðeins
fjögur hráefni. Góð eign fyrir alla áhugakokka.
NÝGIFT Russell Brand og söng-
konan Katie Perry létu nýverið pússa
sig saman og er þetta í fyrsta sinn
sem þau sjást saman opinberlega
eftir brúðkaupið. Kjóll Perry vakti ekki
mikla lukku meðal tískuunnenda.