Fréttablaðið - 12.11.2010, Side 51
FÖSTUDAGUR 12. nóvember 2010
Kaffitími er alþjóðlegt fyrirbæri sem
fólk í hverskonar verslun, þjónustu og
iðnaði nýtir sér til að taka stutta
hvíld frá störfum og hlaða rafhlöðurnar.
Talið er að allt frá 1951 hafi kaffitími
verið skráður í kjarasamninga.
Kaffitíminn er í dag nánast heilög
stund, líka utan vinnutíma.
Angan af
kaffi kemur
bragðlauk-
unum af stað
og ilmurinn
segir til um
ríkt bragðið
af BKI kaffi.
Helltu upp
á gott BKI
kaffi.
BKI Classic
Njóttu lausnar frá amstri hversdagsins
með góðu BKI kaffi. Finndu hvernig þú
hressist með rjúkandi bolla af BKI kaffi. Nýttu
tækifærið. Gefðu þér smá hvíld. Fáðu þér BKI
kaffi. Njóttu kaffiilmsins, hitans og bragðsins
og taktu svo daginn með trompi.
Það er kominn tími fyrir BKI kaffi.
Taktu þér kaffitíma núna
Fangaðu
kaffitímann
með BKI kaffi
Það er kaffitími núna
Kauptu BKI
fyrir kaffitímann
Sérvaldar baunir frá
þekktustu kaffisvæðum
heimsins tryggja hið
mjúka bragð, lokkandi
ilminn og fersklegt
eftirbragðið.
BKI Extra
Snöggristað við háan hita.
Þannig næst fram ríkara
kaffibragð við fyrsta sopa
en léttur og mjúkur keimur
fylgir á eftir. Kíktu á bki.is
Kauptu gott kaff
i í dag
á góðu verði
Einnig til 250 gr á
ennþá betra ver
ði
á meðan birgðir
endast
Þrátt fyrir nafnið á Nýja kaffi-
brennslan á Akureyri sér langa
sögu. Forverar hennar eru Kaffi-
brennsla O. Johnson & Kaaber hf.
og Kaffibrennsla Akureyrar, sem
gengu í eina sæng árið 2000. Nýja
kaffibrennslan framleiðir fjölda
kaffitegunda undir ýmsum vöru-
merkjum og fer framleiðslan að
öllu leyti fram á Akureyri en Heild-
sala O. Johnson & Kaaber sér um
sölu og dreifingu sunnan heiða.
Helgi Örlygsson, framkvæmda-
stjóri Nýju kaffibrennslunn-
ar, segir hafa orðið vatnaskil í
íslenskri kaffiframleiðslu þegar
þessir fornu höfuðandstæðing-
ar sameinuðust og Nýja kaffi-
brennslan fór að framleiða bæði
gulan Braga og Ríó, sem áður
höfðu bitist um forystuna á mark-
aðnum. Kaffibrennsla Akureyrar
var einmitt þekktust fyrir Braga-
kaffið sem hafði lengi yfirburða-
stöðu á markaðnum, að minnsta
kosti fyrir norðan. „Gulur Bragi
fór í framleiðslu 1958 og var vin-
sælasta kaffið á landinu á seinni
hluta áttunda áratugarins,“ segir
Helgi, „en nú hefur hann hopað af
þeim stalli. Í þeim gula var Bras-
ilíukaffi en svo þegar við komum
með þann græna, sem er Kólumb-
íukaffi, varð hann gífurlega vin-
sæll hér fyrir norðan og er enn.“
Nýja kaffibrennslan framleið-
ir líka þrjár gerðir af Rúbinkaffi
og tvær af Kaaberkaffi, en nýj-
asta framleiðsla þeirra er Bauna-
blanda Valdísar. „Valdís er ættuð
frá Akureyri og er í söluteyminu
hjá O. Johnson og Kaaber,“ segir
Helgi. „Hún er mjög mikil kaffi-
manneskja og blandaði alltaf
tveimur tegundum saman, þannig
að við létum þær bara saman í
blöndu sem orðin er tölu-
vert vinsæl í dag.“
Lengi var talað um
það að Norðlending-
ar vildu bara Braga-
kaffi og Sunnlendingar
Kaaber. En er munur
á kaffimenningu Norð-
lendinga og Sunnlend-
inga í dag? Eru lattélepjandi
lopatreflar líka fyrir norðan?
„Kaffimenningin hefur þróast
mjög mikið undanfarin ár, en
sala á kaffi fyrir espressovélar
dróst mikið saman 2009 og 2010.
Þetta eru dýrar vélar og fólk spar-
ar þetta við sig í kreppunni. Ég
finn ekki mun á því eftir því hvar
á landinu fólk býr,“ segir Helgi.
Hvaða kaffi er vinsælast?
„Rauður Rúbín er langvinsæl-
astur hjá okkur, en svart-
ur Rúbín og grænn Bragi
fylgja fast á eftir. En við
framleiðum líka margar
mismunandi kaffitegund-
ir fyrir stóru verslanakeðj-
urnar,“ segir Helgi.
fridrikab@frettabladid.is
Gulur Bragi, rauður Rúb-
ín eða kannski blár Ríó
Nýja kaffibrennslan á Akureyri framleiðir fjölda kaffitegunda undir ýmsum vörumerkjum og fer fram-
leiðslan að öllu leyti fram á Akureyri. Í eina tíð var Kaffibrennsla Akureyrar þekktust fyrir Bragakaffið.
Gulur Bragi hefur verið framleiddur síðan 1958 og er enn vinsæll að sögn Helga
Örlygssonar, framkvæmdastjóra Nýju kaffibrennslunnar. PEDROMYNDIR/ÞÓRHALLUR
Kaffibaunir bárust frá norðaust-
urhluta Afríku út um allan heim.
Kaffibaunir eru í rauninni ekki
baunir heldur fræin í berjum kaffi-
trésins en talið er að ástæðan fyrir
því að þau eru kölluð kaffibaunir
sé að kaffi á arabísku er qahwa
og ber bunn. Í hverju beri eru
tvö fræ sem eru þurrkuð og
ristuð til þess að hægt sé að
mala þau og búa til
kaffi úr þeim.
Kaffitréð
eða Coffea
arabica er
upprunnið í
norðausturhluta
Afríku þaðan sem
það barst til Arabíu
og var fyrsta kaffi-
hús heims opnað í
Mekka í kringum
1511. Um 1554 hafði
kaffi borist til Istanbúl
og var þá opnað kaffi-
hús þar. Evrópubúar
komust fyrst í kynni
við kaffi í Istanbúl
en það barst ekki
til Evrópu fyrr en á
sautjándu öld og var
þá fjöldi kaffihúsa
opnaður í hinum
ýmsu löndum. Eitt
af fyrstu kaffihús-
unum í Evrópu var
opnað í Oxford í kringum 1650 og
var það strax vel sótt.
Íslendingar komust töluvert
seinna á bragðið en aðrar þjóðir
en talið er að kaffi hafi ekki bor-
ist hingað fyrr en seint á átjándu
öld og var það ekki drukkið að ráði
hér á landi fyrr en á nítjándu öld.
Til að byrja með vafðist það eitt-
hvað fyrir Íslendingum hvernig
best væri að hella upp á
kaffi og sam-
kvæmt gam-
a l l i upp -
skrift átti
að sjóða það
í einhvern
t íma með
fiskroði til
þess að bragð-
ið yrði sem
best. Nú eru
Íslendingar hins
vegar engir eftir-
bátar annarra þjóða í
kaffidrykkju og uppá-
hellingum og kaffi-
baunir af öllum gerð-
um eru fluttar hingað
til lands. Fullkomnar
kaffivélar eru komn-
ar inn á flest heim-
ili og margir mala
baunirnar sjálfir svo
að kaffið sé ferskt,
en þannig er það
náttúrulega langbest.
Frá Afríku til Íslands
Heitir og kryddaðir súkkulaði-
drykkir eru bæði bragðgóðir og
hressandi.
Mexíkóskur súkkulaðidrykkur
50 g suðusúkkulaði
1 1/4 dl vatn
4 dl mjólk
salt á hnífsoddi
5 dl gott sterkt kaffi
Setjið kaffi og súkkulaði í pott
og hitið við vægan hita þar til
súkkulaðið bráðnar. Bætið mjólk
og salti út í og hitið að suðu.
Bragðbætið hvern bolla með 1-2
tsk. sykri og 2-3 tsk. af rommi.
Berið fram með þeyttum rjóma.
Súkkulaði og kaffi
HEITIR SÚKKULAÐIDRYKKIR YLJA Á
KÖLDUM KVÖLDUM.