Fréttablaðið - 12.11.2010, Qupperneq 60
32 12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
BAKÞANKAR
Bergsteins
Sigurðs-
sonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. sál, 6. skóli, 8. hljóð svína, 9.
umfram, 11. átt, 12. heimting, 14.
skellur, 16. málmur, 17. sigti, 18. fest-
ing, 20. golfáhald, 21. þurrka út.
LÓÐRÉTT
1. umstang, 3. númer, 4. sprengiefni,
5. sóða, 7. drullusokkur, 10. óvild, 13.
viðmót, 15. korn, 16. spíra, 19. 2000.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. anda, 6. ma, 8. rýt, 9. auk,
11. na, 12. krafa, 14. hlamm, 16. ál,
17. sía, 18. lím, 20. tí, 21. afmá.
LÓÐRÉTT: 1. ómak, 3. nr, 4. dýnamít,
5. ata, 7. aurhlíf, 10. kal, 13. fas, 15.
maís, 16. ála, 19. mm.
Hvaða
lykt er
þetta?
Hm,
kannski
ég hafi
zleppt
einum!
Í gegnum
eyrun?
Þú hefur
verið að
nota þessa
hármixt-
úru!
Ókei,
það er
rétt. Ég
verð
bara að
prófa!
Þú ert
veikur lítill
Þjóðverji
Günther!
Góða
nótt!
Góða nótt!
Þetta var
einn lítill sem
ég „zleppti“
meðan ég
man!
Kærar
þakkir
Elza!
Vá, ég er búinn að
sitja til borðs og
spjalla við foreldra
mína í klukkutíma.
Hvað ætli þau
hafi verið að
tala um?
Draumur að búa
á meðal
vísunda, ha?
Hæ
pabbi.
Ég lærði
nýtt orð í
skólanum
í dag.
Hvaða orð
er það?
Stjörnufræð-
ingur! Það er
gaur sem horfir
á stjörnur og
þannig!
Flott! Allt í lagi,
þetta var gott orð.
Eitt af öndvegisverkum kvikmyndasög-unnar komst óvænt í Kastljósið á mánu-
dagskvöld, þegar Jón Gnarr líkti sér við
óvættinn úr kvikmyndinni Predator. Della,
sagði Brynja Þorgeirsdóttir, en dokum við
– þegar betur er að gáð reynist þessi líking
hafa heilmikið kjöt á beinunum. Fyrir utan
það að borgarstjórinn misskilur hlutverk
sitt innan hennar.
PREDATOR fjallar um hóp úrvalshermanna
sem undir forystu Arnolds Schwarzenegger
er sendur inn í frumskóg í Mið-Ameríku til
að uppræta eiturlyfjahring. Fljótlega verða
kapparnir varir við óvætt frá framandi
plánetu, sem situr um þá. Hefst þá leikur
kattarins að músinni.
ALGENGT ER að líkja frumskógi við borg.
Í þessu samhengi táknar óvætturinn sem
hefur hreiðrað um sig þar hið pólitíska
vald; báknið sem gleypir þá sem hætta
sér inn fyrir mæri þess. Besti flokkur-
inn er því augljóslega schwarzneggska
sérsveitin, sem ryðst inn í skóginn og
storkar valdajafnvæginu. (Það dreg-
ur síst úr mætti líkingarinnar að
tveir hermannanna eru leiknir
af skemmtikröftum sem síðar
komust til metorða í stjórn-
málum; Schwarzenegger
varð ríkisstjóri Kaliforn-
íu og Jesse Ventura varð
ríkisstjóri Minnesota).
SÉ LÍKINGUNNI haldið til streitu öðlast
atburðarás myndarinnar hugsanlegt spá-
dómsgildi. Eftir að geimveran hefur kvistað
niður alla aðra úr hópnum, flegið þá lifandi
og rifið úr þeim hauskúpuna, verður það
Arnold óvænt til lífs að maka á sig drullu
sem skepnan sér ekki í gegnum og í kjölfar-
ið nær hann undirtökunum.
Í EPÍSKUM lokabardaga fellir óvætturinn
(valdið) loksins grímuna og sýnir sitt rétta
andlit. „You‘re one ugly motherfu***er,“
mælir þá Arnold en skrímslið svarar með
sömu orðum. Hér verður ákveðin spegl-
un og vöðvafjallið áttar sig á að ef til vill
er ekki ýkja mikill munur á því og dýrinu.
Þegar geimveran sér sæng sína upp reidda
ræsir hún litla kjarnorkusprengju á úlnliðn-
um og grandar sér og öllu kviku í kring en
Arnold á fótum fjör að launa.
ÞETTA ER kannski sú staða sem Gnarr og
Besti flokkurinn standa frammi fyrir: að
eina leiðin til að sigra hefðarvaldið sé að
kasta sér ofan í hið pólitíska svað og velta
sér upp úr því. Um leið þarf að hafa hugfast
að gamla valdabáknið eirir engu þegar það
sér fram á eigin endalok.
ÁGÆTT framtak borgarstjórnar var að
opna listabíó í gamla Regnboganum. Hvern-
ig væri að sýna Predator fljótlega? Svona
fyrir þá sem vilja glöggva sig á borgarmál-
um.
Gnarrzenegger