Fréttablaðið - 12.11.2010, Page 68
12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
Bíó ★★★
Mínus
Leikstjórar: Frosti Runólfsson og
Haraldur Sigurjónsson.
Heimildarmyndin Mínus, um
samnefnda hljómsveit, hafði
aðeins einu sinni komið fyrir augu
almennings þegar hún var sýnd í
Bíó Paradís á miðvikudagskvöld.
Mér gæti þó skjátlast. Áður en
myndin hófst sögðu leikstjórarnir
Frosti Runólfsson og Haraldur Sig-
urjónsson að myndin væri ókláruð.
Þeir fengu einfaldlega ekki leyfi á
sínum tíma til að ljúka við mynd-
ina, sem bar þess að mörgu leyti
merki. Þráðurinn var oft á reiki og
sérstaklega í byrjun var ekki alltaf
nógu skýrt hvar í sögunni maður
var staddur.
Myndin er blanda af heimild-
armynd af gamla skólanum, þar
sem áhorfandinn fylgir viðfangs-
efninu frá upphafi til enda tíma-
bils, og rokkmynda á borð við þær
sem besta þungarokkshljómsveit
allra tíma, Pantera, sendi frá sér á
tíunda áratugnum. Sá hluti mynd-
arinnar sem er af gamla skólanum
dregur myndina niður. Það hefði
mátt kafa mun dýpra ofan í hugar-
heim strákanna í Mínus, sem voru
rétt um tvítugt og upplifðu það sem
flestir geta aðeins látið sig dreyma
um. Rokkmyndahlutann leysa leik-
stjórarnir af mikilli snilld þrátt
fyrir að hafa þurft að klippa í
burtu stóran hluta djammsins. Það
var nefnilega voða lítið af kynlífi
og dópi, þó að rokkið og rólið hafi
sannarlega verið til staðar.
Að öðrum meðlimum Mínuss
ólöstuðum er bassafanturinn Þröst-
ur stjarna myndarinnar. Hann er
límið sem heldur myndinni saman
með frammistöðu sem gæti verið
skrifuð, leikin og tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna. Um miðja mynd
hringir hann í þjóðargersemina
Bjartmar Guðlaugsson (þeir
þekktust ekki) og í gegnum mynd-
ina sýnir það nýjar hliðar á Þresti,
sem virðist í fyrstu vera sáttur við
sukklífernið, en loks kemur á dag-
inn að þetta var ekki líf sem hann
vildi lifa til lengdar. Saga hans gæti
auðveldlega borið aðra heimildar-
mynd.
Mínus er góð heimildarmynd þótt
hún sé alls ekki gallalaus. Frosti
og Haraldur leika sér skemmti-
lega með klippingu og tónlist og
fara með myndina í tilraunakennd-
ar áttir sem þeir hefðu getað farið
með lengra. Myndin er þó fyrst og
fremst frábær heimild um eina af
öflugustu hljómsveitum Íslandssög-
unnar og ætti að vera sýnd oftar,
eða hreinlega koma út á DVD.
Atli Fannar Bjarkason
Niðurstaða: Frábær heimild um
magnaða hljómsveit. Hefði þó mátt
velja sér stefnu og fara alla leið í þá
átt.
Kynlíf, dóp og rokk og ról
STJARNA MYNDARINNAR Bassafanturinn
Þröstur á magnaða innkomu í heimildar-
myndinni Mínus.
Ellefta matreiðslubók
Nönnu Rögnvaldsdótt-
ir, Smáréttir, er komin út.
Bækur hennar hafa selst í
um sjötíu þúsund eintökum.
Matreiðslubækur Nönnu Rögnvalds-
dóttur hafa verið gríðarvinsælar á
undanförnum árum og selst í um
sjötíu þúsund eintökum. Sú ellefta í
röðinni, Smáréttir, er nýkomin út.
„Fólk er alltaf að leita að ein-
hverjum hugmyndum að frekar
einföldum og fljótlegum mat. Ég
hef, held ég, orð á mér fyrir að
vera með dálítið af svoleiðis upp-
skriftum,“ segir Nanna, spurð um
skýringarnar á þessum vinsældum.
„Ég er líka með alls konar nýstár-
legar hugmyndir, kannski af því
að ég les svo mikið af matreiðslu-
bókum og fæ hugmyndir alls stað-
ar að. Mér þykir vænt um að heyra
fólk segja að þegar það eldi upp-
skriftirnar mínar sé það eins og
mamma þeirra standi fyrir aftan
það og horfi á. Mitt markmið hefur
líka verið að leiðbeina fólki að vera
sjálfstæðara í eldhúsinu og ekki ríg-
binda sig við uppskriftir.“
Þegar Nanna fær fjölskyldu sína
í heimsókn fá gestirnir að velja það
sem verður í matinn. Oftast verða
þá heimilislegir réttir fyrir val-
inu eins og kjöt í karríi. Hún segir
barnabörnin sína hörðustu gagnrýn-
endur. „Barnabörnin hika ekki við
að segja: „Amma, þetta er ógeðs-
lega vont“,“ segir hún og hlær.
Nanna hélt í fyrradag sitt fyrsta
útgáfuhóf, þar sem hún eldaði ofan
í gestina hina ýmsu smárétti, þar á
meðal 250 smápitsur og annað eins
af kjötbollum. Hún segist lengi
hafa ætlað að gera bók um smá-
rétti. „Matreiðslubók Nönnu [sem
hefur selst í um fjórtán þúsund ein-
tökum] átti að vera pinnamatsbók
en svo varð hún allt annað. Í þetta
skipti tókst mér hins vegar að gera
pinnamatsbók.“
freyr@frettabladid.is
Sjötíu þúsund bækur seldar
MEÐ KÖKUKEFLIÐ Á LOFTI Ellefta matreiðslubók Nönnu er komin út. Bækur hennar hafa selst í um sjötíu þúsund eintökum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Miðasalan hefur gengið mjög vel og það stefnir allt
í að það verði uppselt á frumsýninguna,“ segir Olga
Margrét Cilia, formaður Stúdentaleikhússins, en á
laugardaginn frumsýnir leikhópurinn verkið Réttar-
höldin eftir Franz Kafka.
„Sýningin fjallar um mann sem þarf að sæta rétt-
arhöldum fyrir eitthvað sem hann veit ekki hvað er.
Hann reynir síðan að komast að því hver sekt hans
er og leitar til hinna ýmsu aðila sem gætu hjálpað,“
segir Olga en hún leikur sjálf hlutverk í sýningunni.
Spurð að því hvers vegna ákveðið var að setja upp
Réttarhöldin en ekki eitthvert annað verk, segir Olga
leikstjórann hafa fengið að ráða. „Hann langaði að
setja upp eitthvað eftir Kafka,“ segir Olga, en leik-
stjóri verksins er Friðgeir Einarsson. Friðgeir lék til
að mynda í Húmanimal sem sló öll aðsóknarmet.
Fyrir þá sem ekki vita er Stúdentaleikhúsið
áhugaleikfélag nemenda í Háskóla Íslands, en þrátt
fyrir að tilheyra háskólanum þarf ekki endilega
að stunda nám við skólann. „Það er öllum frjálst
að vera með en við miðum við að fólk sé komið af
menntaskólaaldrinum,“ segir Olga.
Þeim sem hafa áhuga á að kaupa miða á sýning-
una er bent á heimasíðu Stúdentaleikhússins, www.
studentaleikhusid.is. - ka
Réttarhöldin í Norðurpólnum
RÉTTARHÖLDIN ÆFÐ Kristín Rós Birgisdóttir og Ólafur Ásgeirs-
son í hlutverkum sínum. MYND/JAKOB VEGERFORS
FRUMSÝND
12. NÓV.
VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM. 149 KR/SKEYTIÐ.
MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.
SENDU SMS SKEYTIÐ
ESL 3DJ Á NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA!
VILTU VINNA
MIÐA?
FULLT AF VINNINGUM:
MIÐAR FYRIR 2 Á JACKASS 3D
TÖLVULEIKIR - DVD MYNDIR - GOS OG FLEIRA!
10. HVERVINNUR!
SJÁÐU JACKASS
EINS OG ÞÚ HEFUR
ALDREI SÉÐ ÁÐUR!
FYNDNARI OG FÁRÁNLEGRI EN
NOKKURN TÍMANN ÁÐUR,
TEKIN Í FLOTTUSTU
ÞRÍVÍDDARTÆKNI SEM VÖL ER Á!