Fréttablaðið - 12.11.2010, Síða 78
50 12. nóvember 2010 FÖSTUDAGUR
Handboltahetjan Dagur Sigurðsson,
knattspyrnukappinn Pétur Hafliði
Marteinsson og athafnamaðurinn
Kristinn Vilbergsson hafa skrifað
undir fimmtán ára leigusamning á
húsnæðinu sem eitt sinn hýsti kex-
verksmiðjuna Frón við Skúlagötu.
Þar hyggjast þremenningarnar
opna ódýrt gistiheimili fyrir erlenda
ferðamenn. Pétur, Kristinn, vinir
og vandamenn hafa að undanförnu
hamast við að rífa niður veggi og
breyta og bæta eins og þurft hefur.
„Við erum gamlir félagar úr
Versló, reyndar erum við Dagur
gamlir vinir úr sextán ára lands-
liðinu í fótbolta,“ segir Pétur þegar
Fréttablaðið nær tali af honum.
Hann segir þá hafa verið að skoða
möguleika á samstarfi og þá ramb-
að á gamla kexverksmiðjuhúsnæð-
ið sem var nánast að hruni komið.
„Þarna var engin starfsemi nema á
neðstu hæðinni sem hýsir Nýlista-
safnið. Við vildum athuga hvort
það væri ekki hægt að bjarga þessu
húsi frá því að vera rifið, enda stað-
setningin frábær.“ Pétur segir hug-
myndina hafa verið nefnda fyrst í
gríni en svo þegar þeir hafi byrjað
að kasta henni eða sparka á milli sín
hafi hún alltaf orðið betri og betri
og nú séu þeir bara í vinnugallanum
á fullu. Það er að segja allir nema
Dagur. „Helvítið hann Dagur. Hann
þykist bara vera að þjálfa eitthvað í
Þýskalandi,“ segir Pétur en Dagur
er þjálfari Füchse Berlin í þýsku
úrvalsdeildinni í handbolta og er
með liðið í toppbaráttunni. „En um
leið og það fer að halla undir fæti
hjá honum verður hann kallaður
heim og beðinn um að rífa niður
nokkra veggi.“
Pétur segir mikla möguleika
fyrir hendi hvað nýtingu húsnæðis-
ins varðar, þeir vilji vera með kaffi-
hús og menningaratburði. „Þannig
að þetta verður ekki bara ódýr gisti-
aðstaða fyrir erlenda ferðamenn
heldur líka eitthvað sem Íslending-
ar geta nýtt sér.“ Pétur segir þá ætla
að halda í gamla kexverksmiðjuand-
ann og þess vegna hafi þeir meðal
annars ákveðið að nefna það Kex
Hostel. Þeir ætli sér að fara varlega,
reksturinn sé ekki byggður á lántök-
um. freyrgigja@frettabladid.is
FÖSTUDAGSLAGIÐ
„Ég skrifaði fyrsta uppkastið í sumar, þá kasólétt og
maður er jú aldrei viðkvæmari en einmitt þá. En bókin
fjallar líka um konur og maður er aldrei meiri kona en
með nýfætt barn,“ segir Nanna Kristín Magnúsdóttir
leikkona.
Hún hefur skrifað uppkast að kvikmyndahandriti
eftir bók Steinars Braga, Konur, sem hlaut einróma lof
gagnrýnenda árið 2008. Bókin þótti líka dökk og næst-
um hryllileg og Nanna Kristín viðurkennir að það hafi
tekið svolítið á að skrifa handritið. „Ætli ég komi ekki
með þetta kvenlega „touch“ á þetta. Annars gaf Steinar
Bragi mér ákveðið frjálsræði.“
Nanna Kristín er nú í fæðingarorlofi, sem er einmitt
tíminn þegar flestar mæður svífa um á bleiku skýi yfir
nýjasta fjölskyldumeðlimnum. Leikkonan hyggst hins
vegar nýta sitt fæðingarorlof í að skrifa næsta uppkast
að handritinu eftir þessari bók sem Páll Baldvin, þáver-
andi gagnrýnandi Fréttablaðsins, lýsti þannig að hún
kæmi á endanum illa við sálartetrið og ekki síður lík-
amlega við lesendur. „Ottó Geir Borg ætlar að vinna
þetta með mér og við gerum þetta í sameiningu, það er
kominn styrkur frá Kvikmyndamiðstöðinni en ekki leik-
stjóri,“ segir Nanna Kristín en það er framleiðslufyrir-
tækið ZikZak sem á kvikmyndaréttinn að bókinni.
Nanna Kristín hefur verið ein af fremstu leikkonum
þjóðarinnar undanfarið og hún kveðst ekki alveg vera
búin að leggja leikaraskóna á hilluna þótt hún einbeiti
sér nú að skrifum. „Þegar maður er kasólétt leikkona
eru hlutverkin ekkert á hverju strái. Og eftir kvikmynd-
irnar Börn og Foreldra langaði mig meira að skrifa og
framleiða. Ég fékk bakteríuna endanlega þegar ég vann
með Valdísi Óskarsdóttur að Sveitabrúðkaupi og Kónga-
vegi.“ - fgg
Skrifar hrylling í fæðingarorlofi
BREYTIR TIL Nanna Kristín Magnúsdóttir nýtir fæðingarorlofið
í að skrifa handrit eftir bók Steinars Braga en það er kannski
ekki fyrsta skáldverkið sem fólki dettur í hug að láta nýbakaða
mæður lesa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
PÉTUR MARTEINSSON: MIKLIR MÖGULEIKAR FYRIR HENDI
Gamlar íþróttahetjur opna
gistiheimili í kexverksmiðju
GERA ALLT SJÁLFIR Pétur Hafliði ásamt félaga sínum Viðari Þór við Skúlagötuna.
Pétur hefur verið að hamast við að brjóta niður veggi en Dagur Sigurðsson fær hins
vegar bara að þjálfa Füchse Berlin í rólegheitunum í þýsku úrvalsdeildinni enda með
liðið í toppbaráttu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Þetta er fyrirtæki sem er stofn-
að í tengslum við Wikileaks, það er
engin starfsemi hafin, við erum ekki
komnir með húsnæði og ég veit ekki
hvenær starfsemi mun hefjast. Það
hafa engir starfsmenn verið ráðn-
ir og ég veit ekki hvað við verðum
margir,“ segir Kristinn Hrafnsson
blaðamaður. Julian Assange, oftast
kenndur við Wikileaks, hefur stofnað
fjölmiðlafyrirtækið Sunshine Press
Productions hér á landi en þetta er
sama fyrirtækjanafn og rekstrarað-
ili Wikileaks notar.
Stofnendur fyrirtækisins ásamt
Assange eru Ingi Ragnar Ingason
tökumaður, Kristinn, sem hefur
verið titlaður talsmaður Wiki-
leaks í erlendum fjölmiðlum, og svo
Gavin MacFadyen en sá er prófess-
or í blaðamennsku og mikill þunga-
vigtarmaður í breskum fjölmiðlum.
Hann var meðal annars leikstjór-
anum Michael Mann innan handar
þegar hann gerði The Insider með
Al Pacino og Russell Crowe í aðal-
hlutverkum.
Það hefur lengi verið í deiglunni
að Wikileaks stofnaði útibú hér á
landi. Assange hefur verið á hálf-
gerðum hrakhólum eftir að sænsk
yfirvöld hófu að rannsaka ásakanir
um nauðgun á hendur honum. Í við-
tali við svissneska ríkissjónvarpið í
byrjun nóvember sagðist Assange
vera að velta því alvarlega fyrir sér
að sækja um hæli í Sviss en það og
Ísland væru einu löndin sem Wiki-
leaks gæti starfað í.
Kristinn vildi ekki ræða fyr-
irtækið í neinum smáatriðum við
Fréttablaðið, sagði tilgang þess vera
framleiðslu, útgáfu og dreifingu fjöl-
miðlaefnis, myndefnis og prent-
aðs máls auk annarra hluta.
- fgg
WIKILEAKS TIL ÍSLANDS? Julian
Assange hefur stofnað fjölmiðla-
fyrirtæki á Íslandi undir sama
nafni og rekstraraðili Wikileaks
notar. Með honum eru Ingi R.
Ingason, Kristinn Hrafnsson og
Gavin MacFadyen, prófessor í
rannsóknarblaðamennsku.
Assange stofnar fjölmiðlafyrirtæki á Íslandi
„Það er Pata Pata með Miriam
Makeba og eitthvað gott með
pabba á harmóníkunni.“
Linda Björk Hilmarsdóttir, framkvæmda-
stjóri líkamsræktarstöðvarinnar Hress.
Fim 11.11. Kl. 20:00 8. sýn
Fös 12.11. Kl. 20:00
Fös 19.11. Kl. 20:00
Lau 20.11. Kl. 20:00
Sun 21.11. Kl. 15:00 br. sýn.t.
Lau 27.11. Kl. 20:00
Sun 28.11. Kl. 20:00
Lau 4.12. Kl. 20:00
Sun 5.12. Kl. 20:00
Lau 13.11. Kl. 13:00
Lau 13.11. Kl. 15:00
Sun 14.11. Kl. 13:00
Sun 14.11. Kl. 15:00
Lau 20.11. Kl. 13:00
Lau 20.11. Kl. 15:00
Sun 21.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 15:00
Sun 28.11. Kl. 13:00
Sun 28.11. Kl. 15:00 100 sýn.
Sun 5.12. Kl. 13:00 br. sýn.t.
Sun 5.12. Kl. 15:00
Mið 29.12. Kl. 16:00 br. sýn.t.
Fim 30.12. Kl. 16:00 br. sýn.t.
Fim 11.11. Kl. 20:00
Fös 12.11. Kl. 20:00
Lau 13.11. Kl. 20:00
Fös 19.11. Kl. 20:00
Lau 20.11. Kl. 20:00
Fös 26.11. Kl. 20:00
Lau 27.11. Kl. 20:00
Fös 3.12. Kl. 20:00
Lau 4.12. Kl. 20:00
Mið 10.11. Kl. 19:00
Sun 14.11. Kl. 19:00
Mið 24.11. Kl. 19:00 Aukas.
Fim 25.11. Kl. 19:00 Aukas.
Fös 10.12. Kl. 19:00 Aukas.
Lau 11.12. Kl. 19:00 Aukas.
Sun 12.12. Kl. 19:00 Aukas.
Lau 13.11. Kl. 20:00
Fim 18.11. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 26.11. Kl. 20:00
Fim 2.12. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 3.12. Kl. 20:00
U
U
U
Finnski hesturinn (Stóra sviðið)
Fíasól (Kúlan)
Hænuungarnir (Kassinn)
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Gerpla (Stóra sviðið)
U
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Lau 27.11. Kl. 13:00
Lau 27.11. Kl. 14:30
Sun 28.11. Kl. 11:00
Sun 28.11. Kl. 13:00
Sun 28.11. Kl. 14:30
Lau 4.12. Kl. 11:00
Lau 4.12. Kl. 13:00
Lau 4.12. Kl. 14:30
Sun 5.12. Kl. 11:00
Sun 5.12. Kl. 13:00
Sun 5.12. Kl. 14:30
Lau 11.12. Kl. 11:00
Lau 11.12. Kl. 13:00
Lau 11.12. Kl. 14:30
Sun 12.12. Kl. 11:00
Sun 12.12. Kl. 13:00
Sun 12.12. Kl. 14:30
Lau 18.12. Kl. 11:00
Lau 18.12. Kl. 13:00
Lau 18.12. Kl. 14:30
Sun 19.12. Kl. 11:00
Sun 19.12. Kl. 13:00
Sun 19.12. Kl. 14:30
Leitin að jólunum
Ö
Ö
Ö
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
U Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
Ö
U
Ö
U
U
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
U
U
Ö
Ö
U
Ö
Ö
U
Ö
Ö
Ö
U
Lér konungur (Stóra sviðið)
Sun 26.12. Kl. 20:00 Frums.
Þri 28.12. Kl. 20:00 2. sýn
Mið 29.12. Kl. 20:00 3. sýn
Lau 8.1. Kl. 20:00 4. sýn
Sun 9.1. Kl. 20:00 5. sýn
Fim 13.1. Kl. 20:00 6. sýn
Fös 14.1. Kl. 20:00 7. sýn
Fös 21.1. Kl. 20:00
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Fös 19.11. Kl. 20:00 Lau 20.11. Kl. 20:00 Sun 21.11. Kl. 14:00
Íslandsklukkan – á Akureyri (Hof, menningarhús)
U Ö Ö
„Einfaldlega besta
Artemisbókin hingað til.“
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI?
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem
setja „like“ við Vísi á Facebook geta
unnið óvænta vinninga í hverri viku.