Kylfingur - 24.04.1989, Síða 8
8
KYLFINGUR
fjölmargra annarra vandamála, sem
þessi stjórn hefur átt við að glíma.
M.a. hefur þetta gert eðlilegt félags-
líf útilokað. Þess vegna hef ég rakið
þessa sögu hér.
Því er hér við að bæta, að stjórnin
er sammála um, að ekki komi annað
til greina, en að klúbburinn sjái um
þennan rekstur sjálfur næsta sumar,
þannig að hér verði heimilisleg versl-
un með þjónustusinnað starfsfólk
og eðlilega verðlagningu.
Starfsmenn.
Starfsmannahald klúbbsins var
svipað og í fyrra. Eins og ég hef áður
sagt tel ég GR vera heppinn með að
hafa fengið Björgúlf Lúðvíksson til
starfa. Ég hef svo oft áður hrósað
honum fyrir vel unnin störf, að það
er nánast að bera í bakkafullan læk-
inn. Björgúlfur hefur verið ein af
forsendum fyrir veru minni í for-
mennsku hjá GR. Enda maðurinn
öllum hnútum kunnugur og sjálf-
stæður. Þvi fylgja bæði kostir og
gallar að hafa sjálfstæðan fram-
kvæmdastjóra, en ég tel kostina
mun meiri, sérstaklega þegar menn
eru 95% sammála um að hverju
skuli unnið. Ég vil benda á, að þegar
golfklúbbur er kominn í þessa stærð
eru verkefnin mörg og margvísleg og
mörg þeirra koma aldrei fyrir sjónir
félaga. Nú eru flestir félagar í ein-
hverju sambandi við framkvæmda-
stjóra. Ef hver félagi telur eðlilegt,
að framkvæmdastjóri klúbbsins gefi
sér tvisvar hálfa klukkustund á ári til
að ræða málin, sem geta verið af
hinum ólíklegasta toga, þá fara í það
eitt á niunda hundrað klukkustund-
ir. Ég ætla ekki að tina til fleiri
dæmi, en tek þetta einúngis til að
lýsa hvað verkefni, sem fæstir lita á
sem timafrek, geta tekið mikinn
tima. Nú í lok tímabils hefur stjórn-
in sest niður með framkvæmda-
stjóra og yfirfarið málefni sumars-
ins, rætt þau sem ekki gengu nægi-
lega vel og komist að samkomulagi
um, hvernig megi vinna enn betur að
málum GR.
Þá langar mig að víkja að Svan
Friðgeirssyni og hans störfum fyrir
klúbbinn. Eins og allir hér vita hefur
Svan haft afskipti af vellinum í ára-
raðir. Ég tel það ómetanlegt happ
fyrir GR, að svo hafi verið. Það er
nauðsynlegt að stefnufesta og mark-
viss framtíðarsýn séu fyrir hendi,
þegar um málefni golfvallar er að
ræða. Þó ekki væri nema til að
koma í veg fyrir, að á 18 holu velli
séu 30 teigar eins og dæmi er til um.
Ég visa einnig í sorglega reynslu
okkar af sífelldum skiptum eins og
átt hefur sér stað með veitinga-
aðila.
Ég hef fylgst með störfum Svans
hér á vellinum í sumar og fullyrði, að
það er með ólíkindum, hve áhuga-
samur og starfsamur hann er. Lík-
lega lýsir orðið hamhleypa honum
best. Svan hefur bent stjórninni á
ýmislegt sem betur má fara í um-
gengni félaga á vellinum, og fékk
hann heimild stjórnar til að ganga
eftir betri umgengni við félagsmenn,
og gekk hann fram í því eins og öðr-
um verkum, sem hann tekur að sér.
Svan hefur sagt mér, að undan þessu
vilji hann losna, þetta sé verkefni
stjórnar og framkvæmdastjóra, og
þrátt fyrir að ég sé honum sammála
um það tel ég, að hann hafi unnið
þarft verk með að ýta við stjórn um
nauðsyn á átaki í umgengnismálum.
Hefur stjórnin reyndar rætt um
lausn þessara mála fyrir næsta tíma-
bil. Báðum þessum starfsmönnum
svo og öðru starfsfólki klúbbsins
færi ég hinar bestu þakkir fyrir vel
unnin störf.
Fjármál.
Gjaldkeri klúbbsins mun víkja
nánar að fjármálunum. En ég tel að
stjórnin geti vel við unað, reikning-
arnir sýna blómlegt starf. Ljóst er,
að í hönd fer erfitt ár hvað varðar
ýmsar tekjuaflanir, sem sækja á til
fyrirtækja, þess vegna verða allir að
leggjast á eitt við þær tekjuaflanir,
sem lagt verður í.
Ég vil nota þetta tækifæri og
minna á getraunir. Nú geta þeir sem
tippa valið, hvaða íþróttafélag þeir
styðja, þ.e. 15% af andvirði seðils
renna til viðkomandi félags. Númer
GR er 131 og hvet ég alla til að leggja
númerið 131 á minnið.
Einn liður í okkar fjáröflun er
samningur okkar við Stöð 2, en
segja má, að þar hafi framkvæmda-
stjórinn átt stóran hlut að máli.
Þessi samningur var gerður á miðju
sumri, þannig að ekki vannst tími til
að vinna úr þeim samningi. Samt
sem áður gaf þessi samningur
klúbbnum 250 þúsund krónur, auk
þess sem hann er í gildi til maí 1989,
þannig að þegar golfþættir byrja
aftur í sjónvarpinu, þ.e. í febrúar,
eigum við vænlega tekjumöguleika.
Fjöldi félaga í GR.
Eins og áður hefur komið fram
verður ekki lengur haldið áfram á
þeirri braut að stækka klúbbinn. Til
takmörkunar á aðsókn á völlinn í
Grafarholti og í ljósi þessa ástands
hefur stjórnin orðið sammála um
eftirfarandi:
1. Loka Grafarholtsvelli fyrir
utanfélagsmönnum ákveðinn
tima dagsins eftir nánari
ákvörðun stjórnar.
2. I Grafarholti leika ekki utan-
félagsmenn, nema þeir hafi for-
gjöf.
3. Vegna inntöku nýrra félaga á
næsta ári gildir- sú regla, að áður
en nýliðar fái inngöngu í klúbb-
inn þurfi þeir að sækja nám-
skeið á vegum klúbbsins í golf-
reglum og siðum. Jafnframt
hafi þeir uppáskrift kennara um
lágmarkskunnáttu í golfleik,
áður en þeir fá að spila í Grafar-
holti.
4. Meðmælendur nýrra félaga
verði ábyrgir fyrir nýliða.
5. Fjölgun nýrra félaga verði ekki
meiri en 5 % og helst í sem mestu
samræmi við þann fjölda, sem
hættir í klúbbnum.
6. Enginn kylfingur fái að leika án
greiðslu vallargjalda, ef félags-
gjald hefur ekki verið greitt.
Unglingamál.
Golfskóli GR var starfræktur í
sumar 3. árið í röð. Haldin voru þrjú
1. stigs námskeið, eitt 2. stigs nám-