Kylfingur - 24.04.1989, Síða 29
KYLFINGUR
29
Heimsókn til Sundridge Park.
Þegar Jóhann Sigurðsson lét af
störfum forstjóra skrifstofu Flug-
leiða i London, þá stofnsetti hann
fyrirtæki, sem hann nefndi Anglo-
Icelandic Golfing Consultants til efl-
ingar samskipta íslendinga og Eng-
lendinga í golfi. Jóhann er sjálfur
áhugasamur kylfingur og meðlimur
í Sundridge Park GC í Bromley, í
suðurhluta London.
Jóhann, sem lætur sér annt um
unglinga, beytti hann sér fyrir því, að
Flugleiðir gáfu sex unglingum far-
seðla til London, fann fyrir þá
heimili þar og kom þeim í kennslu
hjá mjög færum kennara, Bob
Cameron, í tvær vikur i Sundridge
Park. Það er ómetanlegt fyrir unga
kylfinga að fá slíkt tækifæri, sem
Jóhann hefur skapað þessum ungu
mönnum, sem fóru í þessa ferð.
Vissa er fyrir því, að um framhald á
þessum ferðum verður að ræða.
Tveir ungir menn úr Golfklúbbi
Reykjavikur fengu tækifæri til þátt-
töku í þessu. Voru það Ástráður Þ.
Sigurðsson og Ingvi Már Pálsson.
Létu þeir mjög vel af dvöl sinni
þarna og lærðu mikið.
Til að kynnast öllum aðstæðum í
Sundridge Park fóru fjórir íslenskir
kylfingar i boði Flugleiða, Jóhanns
og fleiri aðila til London í byrjun mai
á sl. ári. Flogið var til London að
morgni miðvikudags og komið aftur
heim síðla kvölds á fimmtudegi.
Þátttakendur voru Konráð R.
Bjarnason, forseti GSÍ, Karl Jó-
hannsson, Hannes Guðmundsson og
Björgúlfur Lúðvíksson.
Þegar komið var til London var
rennt við á Bromley Court Hotel, þar
sem flestir gista sem koma til
London til golfleiks á vegum Jó-
hanns. Hótel þetta er meðalstórt,
ákaflega þægilegt, með einstaklega
hlýlegu starfsfólki og örskot frá golf-
vellinum. Skipt var um föt og síðan
haldið beint út á völl.
Sundridge Park Golf Club hefur
yfir að ráða tveimur mjög góðum
golfvöllum. West Course eða Vestur-
völlur er sérlega skemmtilegur völlur,
mjög mishæðóttur og þröngur skóg-
arvöllur. Par vallarins er 68 og hann
er um 5500 m að lengd af bakteigum
en 5200 m af klúbbteigum. Það þarf
talsverða nákvæmni til að skora vel
á þessum velli og auðvelt að fá
,,sprengjur“. East Course eða Aust-
urvöllur er hins vegar opnari og slétt-
ari en engu að síður mjög góður völl-
ur í talsverðu skóglendi. Par hans er
70, og hann er 5800 m langur af bak-
teigum, 5600 m af klúbbteigum en
5100 m af framteigum. Ekki þarf að
taka fram, að báðir vellirnir eru ein-
staklega vel hirtir,og flatir þeirra eru
mjög góðar. Klúbbhúsið er gamalt
og mjög notalegt og greinilega ríkt
af hefðum. Þá er mjög góð golfversl-
un á staðnum.
Staðsetning vallarins er einkar
þægileg, því segja má, að hann sé
inni í London. í björtu veðri sjá
menn vel til St. Paul’s dómkirkju, en
Bromley er í suðurhluta London með
250 þús. íbúa. Það tekur ekki nema
15 mín. með lest inn til miðborgar-
innar, og það kostar ekki meira en
um 12 sterlingspund með leigubil að
fara þessa leið, þannig að þeir sem
dveljast þarna geta notið allra lysti-
semda London, á meðan á dvöl
þeirra stendur.
Tekið var einstaklega vel á móti
þeim fjórmenningum. Forystumenn
klúbbsins voru mættir á staðinn til
leiks, og var Vesturvöllur leikinn
fyrri daginn. Um kvöldið var þeginn
kvöldverður heima hjá Jóhanni og
hans elskulegu konu, Dorothy,
ásamt sendiherrahjónum íslands í
London þeim Ólafi Egilssyni og
Rögnu Ragnars.
Næsta morgunn var haldið
snemma út á völl og nú var Austur-
völlur leikinn. Að leik loknum bauð
klúbburinn til ríkulegs hádegisverð-
ar, og siðan var haldið heim til eins
af eldri liðsstjórum þeirra Sundridge-
manna, Victors Sturdee. Áttu menn
þar ánægjulega stund, en siðan
UV) /8. flölina á IVesl Course. F. v.: Hannes, Karl, Denis, Konráð, Jóhann, Victor og Björgúlfur.