Kylfingur - 24.04.1989, Page 34
34
KYLFINGUR
Landsmót 1988
Landsmót í golfi 1988 fór fram á
Grafarholtsvelli. Að þessu sinni voru
skráðir keppendur'í upphafi móts
309, og var það í fyrsta skipti, sem
keppendafjöldi fór yfir 300. Móts-
stjóri var Eyjólfur Jónsson.
Keppnin í meistarflokki karla var
mjög skemmtileg og barátta mikil
eins og endranær. Á fyrsta degi tók
Tryggvi Traustason GK forystuna og
var á 74 höggum. í 2. sæti var Sig-
urður Sigurðsson GS á 75, og jafnir
i 3. sæti voru Eiríkur Guðmundsson
GR og Úlfar Jónsson GK, sem átti
titil að verja.
Nokkuð hvasst var á 2. degi í
meistaraflokki, eins og reyndar einn-
ig var á 1. degi, og setti það mjög
svip á leik manna. Sigurður Sigurðs-
son lék vel og náði forystunni, var
samtals á 151 höggi. Þrír kylfingar
voru höggi lakari, Tryggvi Trausta-
son, Úlfar Jonsson og Sveinn Sigur-
bergsson GK, sem náði besta skori
dagsins eða 74 höggum. Nokkuð bil
var í næstu menn, sem voru Ingi
Jóhannesson GR og Eiríkur Guð-
mundsson.
EUsabet Á. Möller, sigurvegari í 2. ftokki
kvenna.
Á 3. degi lék Sigurður enn betur
og jók forystu sína. Hann lék á 73
höggum og var samtals á 224. 3
höggum á eftir honum í 2. sæti
var Úlfar Jónsson á 227. Sveinn
Sigurbergsson var í 3. sæti og
Tryggvi Traustason í því 4. Besta
skori dagsins náði Óskar Sæ-
mundsson GR, er hann lék á 72
höggum.
Sigurður lét engan bilbug á sér
finna síðasta daginn og lék manna
best, var á 72 höggum, og sigraði því
á 296 höggum samtals. Varð hann í
lokin 6 höggum á undan næsta
manni, sem var Sveinn Sigurbergs-
son, en hann lék á 302 höggum. Öll-
um á óvart náði Úlfar Jónsson ekki
nema 3. sæti á 304 höggum, en flestir
ef ekki allir höfðu spáð honum
næsta auðveldum sigri í mótinu. En
svona er golfið, það getur allt gerst
í þessari íþrótt. Jafnir í 4. sæti urðu
síðan Hannes Eyvindsson GR og
Tryggvi Traustason.
í meistaraflokki kvenna urðu
miklar sviptingar frá degi til dags. Á
fyrsta degi var Ragnhildur Sigurðar-
dóttir GR með mikla forystu eða 7
högg, en hún lék á 78 höggum þann
dag. f 2. sæti var Steinunn Sæ-
mundsdóttir GR á 85. Ásgerður
Sverrisdóttir GR var í 3. sæti á 86
höggum, og Karen Sævarsdóttir GS
var á 87. Hins vegar var íslands-
meistarinn frá fyrra ári, Þórdís
Geirsdóttir GK, í 5. sæti á 88 högg-
um.
Steinunn Sæmundsdóttir gerði
betur en að vinna upp forskot Ragn-
hildar á 2. degi í rokinu. Hún lék á
80 höggum og tók forystuna á 165
höggum samtals. Ragnhildi gekk illa
og lék á 88 höggum og var þannig á
166 höggum samtals. Þessar konur
voru nokkuð i sérflokki, því að í 3.
sæti var Karen Sævarsdóttir á 173
höggum. Ásgerður var í 4. sæti
ásamt Öldu Sigurðardóttir GK,
báðar á 174 höggum. Alda náði besta
skori dagsins ásamt Steinunni, 80
högg.
Steinunn Sæmundsdóttir jók for-
ystu sína á 3. degi og var samtals á
249 höggum. Karen Sævarsdóttir lék
best allra þennan dag, var á 78
höggum, og skaust upp i 2. sætið,
samtals á 251 höggi. Ragnhildur var
íslandsmeistarar karla og kvenna: Sigurður Sigurðsson og Steinunn Scemundsdóttir.