Fréttablaðið - 06.01.2011, Blaðsíða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Fimmtudagur
skoðun 20
6. janúar 2011 FIMMTUDAGUR
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Sirrý Svöludóttir heldur úti bloggsíðu um allt sem viðkemur heilsu og heilbrigði, svo sem hollt mataræði, umhverfisvænar snyrtivörur og lífrænan lífsstíl í skref-um, svo fátt eitt sé nefnt. Vefslóðin að bloggi Sirrýjar er svoludottir.wordpress.com.
Jana Maren Óskarsdóttir, verslunarstjóri í Gyllta kettinum, er sparidama.
Elskar allt loðið
É g er svolítið sparileg, alltaf í kjólum og háum hælum og elska allt sem er loðið, pelsa og loð-húfur,“ segir Jana Maren Óskarsdóttir, verslun-arstjóri í Gyllta kettinum, þegar Fréttablaðið forvitnast um fatastíl hennar. Á myndinni klæðist hún gamalli slá sem búið er að hressa upp á.„Þetta var gólfsíð slá sem við fundum uppi á lofti. Hún var stytt og rúnnuð til og bætt á hana hettu og skinni og breyttist við það í æðislega flík. Mjög spari-leg, fyrir leikhúsferð eða fínt út að borða. Svo er ég í kjól frá Gyllta kettinum innan undir.“Spurð um uppáhaldsbúðir segist Jana helst nota tæki-færið þegar hún ferðast til útlanda til að kaupa föt. Top Shop og Primark eru meðal hennar uppáhaldsverslana og svo kaupir hún mikið af „second hand“-fatnaði.„Ég þræði „vintage“-verslanir bæði í útlöndum og hér heima. Það er til dæmis alltaf gaman að gramsa í Kolaportinu.“
heida@frettabladid.is
Fr í r prufut ími
SÉRBLAÐ
í Fréttablaðinu
Allt
veðrið í dag
6. janúar 2011
4. tölublað 11. árgangur
Pakistanskt í tíu ár
Aamir Uz-Zaman hefur átt
og rekið veitingastaðinn
Shalimar í áratug.
tímamót 28
Opið til 21
í kvöld
Suðurlandsbraut 16 108 Reykjavík
Sími 5880500
Við höfum enga stjórn á veðrinu. En við
getum skaffað hita á rétta verðinu! 2000W
hitablásari með hitastilli. Áður kr 4.990
Yfir 400 útsöluvörur á rafha.is
ÚTSALA
SPARAÐU SV
IMANDI UPPH
ÆÐIR
OPIÐ ALLA N
ÆSTU HELGI
Verð nú 40%
2.990
AFSLÁTTUR
Hitablásari
Róbert Örn Hjálmtýsson:
Semur lag fyrir
strákana okkar
FÓLK Róbert Örn Hjálmtýs-
son, forsprakki hljómsveitar-
innar Ég, hefur samið HM-
lag til íslenska landsliðsins
í handbolta. Þar gefur hann
landsliðinu góð ráð hvern-
ig þeir geti náð yfirburða-
stöðu á vellinum en lagið
verður frumflutt í þætti
Loga Bergmanns á föstu-
dagskvöld.
Róbert á sér sjálfur for-
tíð í handboltaheiminum,
lék með yngri flokkum ÍR
og fékk nýverið að kynnast
kröftum Ingimundar
Ingimundarsonar lands-
liðsmanns í áramótaleik
félagsins. - fgg / sjá síðu 46
Spáð velgengni
BBC spáir Árna Hjörvari
Árnasyni og hljómsveit hans
góðu gengi á þessu ári.
fólk 40
SLÆMT NA-TIL Í dag verða víða
norðan 10-18 m/s. Éljagangur
N- og A-lands en bjart syðra.
Hvassviðri eða stormur NA- og A-til
í nótt. Frost 5-15 stig.
VEÐUR 4
-8
-8
-10
-10
-11
UMHVERFISMÁL Strangar reglur Evr-
ópusambandsins um sorpbrennslu
má meðal annars rekja til kröfu-
gerðar íslenskra stjórnvalda um
takmarkanir við losun eiturefna
árið 1992. Þegar tilskip-
un ESB var innleidd
hér árið 2003 fengu
stjórnvöld undanþágu
frá reglunum að kröfu
sveitarfélaganna.
Magnús Jóhannes-
son, ráðuneytisstjóri í
umhverfisráðuneytinu,
segir að á alþjóðaráð-
stefnu um umhverfi og
þróun sem haldin var í
Rio de Janeiro árið 1992
hafi Ísland haft frum-
kvæði að því að koma
á alþjóðlegum reglum.
Ísland hafi því í raun
fengið undanþágu frá
ströngum reglum sem
stjórnvöld hafi barist
fyrir að yrðu settar.
Kostnaður við að uppfylla skil-
yrðin um sorpbrennslu var ástæða
þess að sótt var um undanþáguna.
„Sveitarfélögin sem í hlut áttu
og Samband sveitarfélaga sóttu
það fast að slík undanþága feng-
ist,“ segir Magnús. Hann bend-
ir jafnframt á að strangt reglu-
verk ESB sé fyrir margfalt stærri
sorpbrennslur en eru hér. Smæð
sorpbrennslnanna hérlendis hafi
verið grundvöllur þess að fallist
hafi verið á beiðni Íslendinga um
undanþágu.
Árni Finnsson, formaður Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands, segir
að síðustu tvo áratugi hafi íslensk
stjórnvöld lagt mikla áherslu á
alþjóðlegt samstarf til að draga
úr mengun sjávar af völdum þrá-
virkra lífrænna efna á borð við
díoxín og fúran. „Í aðdraganda Ríó-
ráðstefnunnar árið 1992
lagði Ísland mjög mikla
áherslu á að ná fram
ákvæði um alþjóðleg-
ar aðgerðir gegn meng-
un frá landstöðvum,
sem þá var talin nema
um 70-80 prósentum af
þeirri mengun sem berst
til sjávar. Einkum lagði
Ísland áherslu á að gert
yrði lagalega bindandi
samkomulag á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna um
bann við losun þrávirkra
lífrænna efna, þar með
talið díoxín. Í ljósi þessa
er afar einkennilegt að
stjórnvöld hafi sótt um
undanþágu frá strang-
ari ákvæðum ESB fyrir mengun
frá sorpbrennslustöðvum.“
Umhverfisstofnun kom upplýs-
ingum til ráðuneytisins eftir að nið-
urstöður díoxínmælinga lágu fyrir.
Magnús segir að ráðuneytið hafi
ekki íhugað að greina almenningi
frá niðurstöðum mælinganna þar
sem Umhverfisstofnun hafi ekki
gert neinar tillögur þar um. Sem
sérfræðistofnun ráðuneytisins hafi
það verið í þerra verkahring.
Kristín Linda Árnadóttir, for-
stjóri UST, sagði í viðtali við Rúv í
gær að vel megi halda því fram að
umhverfisráðuneytið, sem og stofn-
unin sjálf, hafi brugðist í málinu.
- shá / sjá síðu 12
Ísland stóð
ekki undir
eigin kröfum
Rekja má strangar reglur ESB um sorpbrennslu til
baráttumáls Íslendinga frá 1992. Þrýstingur sveitar-
félaga varð til þess að stjórnvöld fengu undanþágu
frá reglunum þegar tilskipunin var innleidd hér.
Í ljósi þessa er
afar einkenni-
legt að íslensk
stjórnvöld hafi
sótt um undan-
þágu …
ÁRNI FINNSSON
FORMAÐUR
NÁTTÚRUVERNDAR-
SAMTAKA ÍSLANDS
SÖGULEGT KJÖR Á ÍÞRÓTTAMANNI ÁRSINS Alexander Petersson sést hér með
styttuna eftir að hann var kosinn íþróttamaður ársins í gær. Alexander átti frábært ár,
bæði með íslenska landsliðinu og með liðum sínum í Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÍÞRÓTTIR Handboltamaðurinn Alex-
ander Petersson var í gær kjörinn
íþróttamaður ársins 2010 í veg-
legri athöfn á Grand Hóteli en
þetta er í 55. sinn sem kjörið fór
fram. Kjör Alexanders var sögu-
legt því hann er fyrsti íþrótta-
maður ársins frá upphafi sem er
af erlendu bergi brotinn. Alexand-
er fæddist í Lettlandi árið 1980 en
hefur verið íslenskur ríkisborgari
frá árinu 2004.
„Þetta er bara frábært og kom
mjög mikið á óvart. Ég bjóst alls
ekki við þessu. Ég er enn að átta
mig á þessu og því að allir séu að
óska mér til hamingju með að vera
íþróttamaður ársins. Þetta er stór-
kostleg stund í mínu íþróttalífi,“
sagði Alexander.
Kosningin var mjög jöfn og
munaði aðeins 24 stigum á Alex-
ander og knattspyrnumanninum
Gylfa Þór Sigurðssyni sem varð
annar. Hópfimleikakonan Íris Mist
Magnúsdóttir varð síðan í þriðja
sæti sem er besti árangur fim-
leikakonu frá upphafi í kjörinu.
Alexander átti stóran þátt í
því að íslenska landsliðið vann
brons á EM í Austurríki og þá
hefur hann farið fyrir liði Füch-
se Berlin sem er í öðru sæti þýsku
úrvalsdeildarinnar og búið að slá
topplið deildarinnar út úr þýsku
bikarkeppninni.
Alexander er hinn fullkomni
liðsfélagi, frábær varnarmaður
sem lætur verkin tala inni á vell-
inum og er ávallt tilbúinn að fórna
bæði skrokknum og sviðsljósinu
fyrir velgengni liðsins.
„Þetta er stórkostlegt fyrir
mig að fá svona titil og klapp á
bakið. Ég get núna sýnt strákun-
um mínum að ég var einu sinni
íþróttamaður ársins. Ég er samt
ekki að fara að hætta núna því ég
ætla að gera meira og nú er bara
að setja stefnuna á að vinna titilinn
aftur,“ segir Alexander.
- óój / sjá íþróttir síðu 42
Íþróttamaður ársins var útnefndur í 55. sinn í gær:
Alexander sá besti
Í tómu rugli
Bæði Liverpool og Chelsea
töpuðu leikjum sínum í gær.
sport 42