Fréttablaðið - 06.01.2011, Side 26
Natura Keratin er ný byltingar-
kennd stofumeðferð sem sléttar
hár og virkar fyrir hið krullaðasta
hár sem og allar hárgerðir og dugir
í þrjá til fimm mánuði. Nokkrar
hárgreiðslustofur hafa tekið þessa
meðferð upp og þeirra á meðal er
Salon Reykjavík á Grandagarði, en
Keratin Islandia er umboðsaðili
Natura Keratin.
„Ólíkt því sem sléttunaraðferðir
geta jafnan gert, að taka hárböndin
í sundur og setja þau aftur saman,
gerir meðferðin þveröfuga hluti
fyrir hárið. Hún gerir það mjúkt,
slétt og sterkara með hjálp fljót-
andi keratíns sem festist utan um
hvert einasta hár og myndar þannig
verndarhjúp,“ segir Arnar Tómas-
son hjá Salon Reykjavík. Arnar
segir meðferðina vera afar vinsæla
vestanhafs, í Bandaríkjunum sem
og í Brasilíu.
Meðferðin getur tekið allt frá
einni og hálfri upp í fimm klukku-
stundir. Keratín er sett í hvern ein-
asta lokk, hárið þurrkað með efn-
inu í og hver einasti lokkur hitaður
með sléttujárni til að festa kerat-
ínið utan á hárinu. Síðan má ekki
þvo hárið næstu þrjá daga á eftir.
„Sléttunarmeðferðin kemur sér-
staklega vel út fyrir þá sem eru
með þurrt, opið og slitið hár, þar
sést mestur munur. Einnig gefur
meðferðin fyllingu þannig að
hárið hangir ekki lint niður. Þeir
sem vilja svo fá liðina öðru hverju
fram geta það vel, því meðferðin
tekur liðina ekki alveg í burtu, það
þarf að fara aðeins yfir með sléttu-
járninu á hverjum degi til að fá það
alveg slétt,“ segir Arnar.
Kostinn við meðferðina segir
Arnar meðal annars vera að engin
rót kemur, líkt og í permanetti,
heldur dofnar efnið smám saman
úr hárinu. Meðferðin endist leng-
ur hjá meðhöndluðu hári en efna-
meðhöndluðu. „Það sem helst þarf
að passa upp á eftir meðferð er
að forðast sjampó með ákveðnum
efnum í, súlfötum og natríumklór-
íði, en þessi efni leysa keratínið of
hratt upp.“ juliam@frettabladid.is
Sléttunarmeðferð sem
endist í nokkra mánuði
Krullhærðir vita að það getur farið illa með þurrt og hrokkið hár að slétta það. Natura Keratin er ný
stofumeðferð sem sléttar hár án þess að taka hárböndin í sundur og endist í þrjá til fimm mánuði.
Arnar Tómasson hjá Salon Reykjavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Krullað hár fyrir Natura Keratin-meðferðina. Meðferðin er fyrir bæði kynin. Hárið orðið slétt tæpum tveimur tímum
síðar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ung stúlka smellir kossi á maltese-hundinn sinn á árlegu
hundasýningunni The Tokyo International Dog Show í
Tókýó í Japan á dögunum. Eigandi og hundur tóku þar
þátt í sérstakri keppni um flottustu hundatískuna.
ÚTSALA
30% afsláttur af
öllum barnavörum
Laugavegi 53 • s. 552 3737
Opið mánudag til föstudag 10-18, laugardag 10-17
Útsalan
í fullum gangi
ÚTSALA
30 - 70%
afsláttur