Fréttablaðið - 06.01.2011, Síða 54
46 6. janúar 2011 FIMMTUDAGUR
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
„Núna er ég að horfa á allt
Supernatural. Ég hef alltaf verið
mikið fyrir hryllingsmyndir og
þessir þættir eru hæfileg blanda
af spennu og hryllingi. Þættirnir
eru góð og strákaleg útgáfa af
Charmed.“
Emmsjé Gauti, rappari.
„Ég átti von á þeim fyrr en það kom eitthvað upp
á hjá þeim úti. En jú, ég reikna með því að hitta
þá þegar þeir koma,“ segir Gestur Valur Svansson
leikstjóri. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær er
Klovn-tvíeykið væntanlegt til Íslands í dag til að
kynna kvikmynd sína Klovn: The Movie. Gesti Val
og Casper Christensen varð ágætlega til vina síðasta
sumar þegar þeir fóru saman á fund Adams Sandler
í Los Angeles til að kynna nokkrar hugmyndir að
kvikmyndum sem Gestur hafði sett niður á blað.
Gestur Valur er reyndar búinn að sjá Klovn-
myndina, fór út til Danmerkur á forsýningu hennar
14. desember síðastliðinn og var síðan með Klovn-
dúettinum í eftirpartíi. Forsýningin var ansi skraut-
leg því samkvæmt dönskum fjölmiðlum sprönguðu
fáklæddar stúlkur um ganga kvikmyndahússins
og hláturtaugarnar voru rækilega kitlaðar þegar
þeir Frank og Casper stigu á svið og sögðu frá
uppákomum við tökur kvikmyndarinnar.
Leikstjórinn, sem frumsýnir leikna
þáttaröð á RÚV þegar Eurovision hefur
runnið sitt skeið, er síðan á leiðinni til
Los Angeles síðar í þessum mánuði þar
sem hann mun sitja fjóra fundi með ein-
hverjum stórlöxum úr kvikmyndaborg-
inni. Hann vildi ómögulega upplýsa hverjir
ættu eftir að sitja þennan fund en sagð-
ist ætla að nýta tækifærið og heim-
sækja tökustað Baltasars Kor-
máks í New York sem þá verður
byrjaður á Contraband með
Mark Wahlberg og Kate Beck-
insale í aðalhlutverkum.
- fgg
Á bókaða fjóra fundi í Hollywood
Á ÚTLEIÐ Gestur Valur
Svansson er á leiðinni til
Los Angeles. Hann ætlar þó
fyrst að hitta góðvini sína
úr Klovn-tvíeykinu sem eru
væntanlegir til landsins í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég fagna því á þessum krepputímum að við skul-
um fá fimm milljónir inn í Airwaves,“ segir Grím-
ur Atlason, framkvæmdastjóri tónlistarhátíðar-
innar Iceland Airwaves.
Hátíðin fékk í sinn hlut fimm milljónir króna úr
ríkissjóði á fjárlögum 2011 sem voru ákveðin fyrir
jól. Þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin fær styrk úr
ríkissjóði en undanfarin ár hefur hún fengið styrk
frá Reykjavíkurborg, sem á síðasta ári
nam sex milljónum króna.
„Allar sambærilegar hátíðir á
Íslandi hafa verið á fjárlögum í
dálítinn tíma. Það var eitt af fyrstu
verkefnum mínum að sækja um
þetta og leiða að því sjónir að þessi
hátíð væri að skila það miklu að
það væri mikilvægt að mynd-
arlegir styrkir kæmu frá hinu
opinberlega til hennar,“ segir
Grímur. „Auðvitað erum við
þakklát fyrir þetta en þetta eru engar stór-
ar upphæðir í heildarsamhenginu. Það er
alltaf gott að fá eitthvað sem tryggir ein-
hvers konar lágmarksrekstur. Styrkurinn
frá Reykjavíkurborg og þessi styrkur eru
mjög góðir fyrir okkur.“
Lengi hefur verið barist fyrir því að stjórn-
völd veiti meiri styrki til Airwaves. Leiða má
að því líkur að jákvæð skýrsla Tóm-
asar Young um þá miklu veltu
sem hefur skapast í kringum þá
erlendu gesti sem koma á hátíð-
ina hafi átt sinn þátt í að opna
augu stjórnvalda og um leið
budduna.
„Þetta er svo mikilvægt,
því að þetta skilar sér. Þarna
er verið að fjárfesta aura og
græða tugi króna,“ segir
Grímur. - fb
„Ég er búinn að semja lagið og
það verður frumflutt í þættinum
hans Loga Bergmanns á föstu-
dagskvöldið,“ segir Róbert Örn
Hjálmtýsson, forsprakki hljóm-
sveitarinnar Ég. Hann hefur
samið nýtt lag fyrir íslenska
landsliðið í handbolta sem á að
blása strákunum okkar baráttu-
anda í brjóst þegar þeir leika
fyrir hönd þjóðarinnar í Svíþjóð.
Róbert segir lagið vera samið af
þekkingu um íþróttina en sjálfur
á hann „glæstan“ feril að baki í
íþróttinni.
En fyrst að laginu. Róbert veit
ekki hvort það sé hægt að lýsa
laginu sem stuðlagi en síðasta
lag landsliðsins, Gerum betur,
var vissulega stuðlag enda eftir
Stuðmanninn Valgeir Guðjóns-
son. „Lagið er eins og að spila
handbolta, það er „aggressívt
með mikilli snilld í, gítarsólóum
og öðru slíku,“ útskýrir Róbert.
Í textanum vildi hann svo ausa
úr sínum viskubrunni; það sé til
að mynda gott að vippa yfir mark-
manninn því þá fari hann úr stuði.
„Og svo vildi ég útskýra fyrir
mönnum hvað samskeytin eru og
að vörnin er besta sóknin. Þetta
er svona attitjúd-lag um hvernig
maður eigi að vinna handbolta-
leik; að berja á andstæðingnum
og vera snjall.“
Róbert á sjálfur leynda fortíð
í handboltanum. Hann var liðs-
maður feikiöflugs ÍR-liðs í yngri
flokkunum sem varð Íslands-
meistari á sínum tíma en þar
mátti finna kempur á borð við
Sverri Þór Sverrisson, Sveppa,
og Ólaf Örn Josephsson, betur
þekktan sem Stafrænan Hákon,
fyrrverandi landsliðsmanninn
Ragnar Óskarsson og núver-
andi silfurdreng, Ingimund
Ingimundarson.
„Ingimundur var svona trölla-
barn. Og ég spilaði einmitt ára-
mótaleik um daginn á móti honum
með ÍR um daginn og þá komst ég
að því að hann er ómennskur. Ég
er ansi hræddur um að hann sé
búinn til inni á einhverri tilrauna-
stofu.“ freyrgigja@frettabladid.is
RÓBERT ÖRN HJÁLMTÝSSON: INGIMUNDUR ER TRÖLLABARN
HLJÓMSVEITIN ÉG SEMUR
HM-LAG FYRIR LANDSLIÐIÐ
HM-LAG Róbert Örn Hjálmtýsson í hljómsveitinni Ég hefur samið HM-lag fyrir íslenska landsliðið. Hann á sjálfur „glæstan“ feril að
baki í handboltanum með ÍR. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Airwaves fær fimm milljónir
GRÍMUR ATLASON Framkvæmdastjóri Iceland
Airwaves er ánægður með milljónirnar fimm.
SKAPANDI SKRIF
me orvaldi orsteinssyni (Skilabo askjó an, Blí finnsbækurnar,
Vasaleikhúsi , Vi fótskör meistarans, And Björk of Course…)
Aukanámskei in í
október og nóvember
seldust strax upp!
Umsagnir átttakenda;
“Frábært nesti til lífstí ar.”
“Meiriháttar upplifun, - opnar óendanlega möguleika.”
“Fær mann til a hugsa upp á n tt.”
“Hvort sem ú ert a feta ín fyrstu skref e a hefur reynslu
af skrifum, á er etta námskei sem n tist ér.”
Nánari uppl singar hjá gg@ropeyoga.com og í síma 8223699
SKRÁ U IG NÚNA á kennsla.is
Athugi a námskei um fer fækkandi.
“Ófyrirgefanlega gaman og nærandi fyrir sálina!”
Enn á örfá sæti laus
10. janúar
ÚTSALA
Laugavegur 20B, við Klapparstíg 551 5070 hanna.is
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA AF FRÆGA FÓLKINU
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem
setja „like“ við Vísi á Facebook geta
unnið óvænta vinninga í hverri viku.