Fréttablaðið - 28.01.2011, Side 30
6 •
Biggi Sundlaugarvörður, eða Birgir
Jón Birgisson, hefur verið aðal-
maðurinn í hljóðverinu Sundlaugin
í Mosfellsbæ undanfarin ár. Poppið
leit í heimsókn og forvitnaðist um
þennan kunna viðkomustað íslenskra
tónlistarmanna.
Biggi hefur starfað í Sundlauginni
í átta ár, eða síðan 2003. Nokkrum
árum áður höfðu strákarnir í Sigur
Rós opnað hljóðverið er þeir voru að
vinna að svigaplötunni svokölluðu.
„Ég var búinn að vera tæknimaður
í útvarpi í nokkur ár. Svo var ég að
læra í London og var þar þegar Kjarri
[Kjartan Sveinsson í Sigur Rós] bauð
mér að taka við stúdíóinu,“ segir
Biggi, sem er núna eigandi þess
ásamt Kjartani. „Þetta er búinn að
vera fínn tími en þetta hefur breyst
rosalega mikið undanfarinn áratug,
öll stúdíóvinna,“ segir hann og á við
að margir taki upp hluta af sinni
tónlist heima hjá sér, þó svo að það
hafi aðeins verið að færast til baka
að undanförnu.
Eins og gefur að skilja hefur Biggi
verið á kafi í græjum undanfarin
ár. Hann segist fá mikla útrás fyrir
græjuáhuga sinn í gegnum vini sína
í tónlistinni, þar á meðal Mugison
og Pétur Ben. „Þeir leita oft ráða
og maður fær að kaupa í gegnum
þá. Það er líka hellingur af græjum
í stúdíóinu sem maður fær að prófa
og fikta í.“
Hljóðverið er byggt að töluverðu
leyti upp á gamalli tækni, þar á meðal
gamalli segulbandsvél og gömlum
hljóðnemum. „Það fara plötur hérna
í gegn sem eru næstum því að öllu
leyti gerðar eins og þær voru gerðar
fyrir þrjátíu árum,“ útskýrir Biggi.
„Eins og bransinn byggist upp í dag
þá er verið að elta gömlu tækin.
Menn eru að búa til nýjar útgáfur
af einhverju sem var búið til fyrir
fimmtíu árum.“
Sigur Rós hefur tekið upp flestar
sínar plötur í Sundlauginni. Á meðal
annarra sem hafa tekið þar upp eru
Ensími, Seabear, Amiina, Mugison,
Ólöf Arnalds og Útúrdúr. Einnig lauk
Helgi Hrafn Jónsson nýlega við að
taka þar upp.
Biggi er ánægður með staðsetningu
Sundlaugarinnar í Mosfellsbænum og
segir kyrrðina og fallegt umhverfið
skipta miklu máli. „Kosturinn við
þetta stúdíó er að við erum með
glugga á stjórnrýminu. Þetta er oft
svo niðurgrafið og lokað annars stað-
ar en hérna er allt frekar opið. Það
eru allir mjög ánægðir sem koma
hingað.“ freyr@frettabladid.is
GRÆJUR
BIRGIR JÓN BIRGISSON ER AÐALMAÐURINN Í SUNDLAUGINNI
Í SUNDLAUGINNI Birgir Jón Birgisson er aðalmaðurinn í Sundlauginni í Mosfellsbæ þar sem fjöldi þekktra tónlistarmanna hefur tekið
upp. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
UPPÁHALDSGRÆJUR BIGGA Í SUNDLAUGINNI
1. Neumann U47-hljóðnemi – „Pabbi allra hljóðnema, hef lík-
lega notað hann í flestum ef ekki öllum „sessjónum“ síðan ég
byrjaði í Sundlauginni. Jagger, Lennon, Sinatra og Jónsi.“
2. Culture Vulture-bjögunargræja – „Bjögun er mikið notuð í
hljóðblöndun en tölvur eiga erfitt með að herma eftir þessum
„effekt“ á sannfærandi hátt. Þessi græja getur bjargað ýmsu,
sérstaklega dauðum og kraftlausum trommum.“
3. AMS RMX16-reverb – „Þetta er eitt af fyrstu stafrænu „re-
verb“-tækjunum, eldra en fyrstu Apple-tölvurnar og hljómur-
inn eftir því skemmtilega grófur.“
4. Neve-mixerinn – „Hjartað í Sundlauginni. Hljóðblöndun
hefur að stórum hluta færst inn í tölvurnar en hann er mikið
notaður í upptökur. Frábær mixer þrátt fyrir háan aldur.“
BIGGI ER SÁTTUR
SUNDLAUGARVÖRÐUR
1
2
3
4
gerðu tónlist á makkann þinn
Opið fyrir ProTools 9, Logic, Sonar, ofl.
Symphony I/O