Fréttablaðið - 23.02.2011, Side 21

Fréttablaðið - 23.02.2011, Side 21
fjármál ●MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2011 3 Fátt er mikilvægara en að ná góðri yfirsýn yfir fjármál heimilisins. Til þess að öðl- ast hana þarf að halda gott bókhald yfir út- gjöldin, vita hvað maður ætlar að gera fyrir peningana sem verða afgangs, vita hvernig maður ætlar að ávaxta það sem er umfram og fylgjast vel með ráðleggingum sérfræð- inga. Landsbankinn býður þjónustu á öllum þessum sviðum. REGLUBUNDINN SPARNAÐUR Með reglubundnum sparnaði getur þú komið þér upp varasjóði, sparað til lengri tíma á sparireikningi með allt frá 500 kr. á mánuði eða byggt upp eignasafn með áskrift að sjóð- um með allt frá 5.000 kr. innleggi á mánuði. Mánaðarleg kaup í verðbréfasjóði minnka viðskiptakostnað og draga úr sveiflum í ávöxtun í samanburði við staka fjárfest- ingu fyrir stærri upphæð. Í hverjum mán- uði hljóta tveir heppnir viðskiptavinir, sem hafa verið í reglubundnum sparnaði í sjóð- um í a.m.k. eitt ár, 20.000 kr. viðbót við eign sína. Heppnin getur því verið með þeim sem spara reglulega. GREIÐA NIÐUR SKULDIR Ein leið til sparnaðar er að greiða niður skammtímaskuldir. Slík niðurgreiðsla getur verið skynsamlegasta skrefið í fjármálum heimilisins. „Lækkaðu yfirdráttinn“ er þjón- usta sem Landsbankinn býður viðskiptavin- um sem vilja lækka skuldir sínar til skamms tíma, svo sem yfirdráttarlán eða greiðslu- kortaskuldir. Í megindráttum virkar þjónustan þann- ig að þú gerir samkomulag um að greiða ákveðna upphæð mánaðarlega til lækkun- ar á láninu og við bjóðum þér hagstæðari vaxtakjör. VARASJÓÐUR Góður varasjóður getur komið í veg fyrir að óvænt eða mikil útgjöld, s.s. viðgerðir og viðhald, kaup á heimilistæki eða sumarfrí fjölskyldunnar setji fjárhaginn úr skorðum. Með því að setja þér markmið og leggja fyrir verður til varasjóður þar sem þú færð vexti í stað þess að borga þá. Sjóðurinn þarf að vera aðgengilegur og án langtímabind- ingar. Þá getur draumurinn orðið að veru- leika án þess að greitt sé fyrir hann eftir á. LANGTÍMASPARNAÐUR Það getur borgað sig að hugsa nokkur ár fram í tímann og byggja upp sjóð með það fyrir augum að eiga fyrir breyting- um á heimilinu, myndarlegri greiðslu inn á íbúða- eða bílakaup eða safna fyrir framtíð barnanna. Sjóðurinn verður auðveldlega að veruleika þegar þú setur þér markmið um upphaf og endi sparnaðarins. LÍFEYRISSPARNAÐUR Með lífeyrissparnaði getur þú byggt upp langtímasparnað sem veitir þér meiri möguleika á auknum ráðstöfunartekjum á efri árum og sveigjanlegum starfslokum. Við viljum ráðleggja þér að huga að lífeyri með samspili lögbundins lífeyrissparnaðar, viðbótarlífeyrissparnaðar og reglubundins sparnaðar. Sparið með Landsbankanum FJÁRHAGUR  BLOGG UM FJÁRMÁL Á Fjárhag, fjármálabloggi Lands- bankans, ritar starfsfólk bank- ans stuttar og hnitmiðaðar blogg- færslur um fjármál og tengd efni. Greinarnar á Fjárhag eru af ýmsum toga, þar á meðal skýr- ingar á fjármálahugtökum, ráð- leggingar um fjármál heimilis- ins, upplýsingar um viðburði á vegum bankans, ritdómar um bækur og margt fleira. Meðal þess sem fjallað hefur verið um á blogginu er útreikningur vaxta, verðbólga og verðtrygging, fjár- málalæsi ungmenna, fjárhagsleg markmið og fleira. Markmiðið með útgáfunni er að bæta fjármálalæsi almennings. Við hvetjum viðskiptavini til að fylgjast með á Fjárhag og senda okkur ábendingar um áhugaverð viðfangsefni á netfangið fjarhag- ur@landsbankinn.is. Fjárhagur er á heimasíðu bankans, landsbank- inn.is. HEIMILISBÓKHALDIÐ Í TÖLVUNNI Heimilisbókhaldið í Einkabank- anum er þjónusta sem veitir þér góða yfirsýn yfir fjármál heim- ilisins á myndrænan hátt. Heim- ilisbókhaldið er mjög einfalt og auðskilið og því fylgir engin fyrirhöfn og enginn kostnaður. Með einum smelli í Einkabank- anum birtist fullbúið heimilisbók- hald í notendavænu umhverfi þar sem nær allar færslur hafa verið flokkaðar sjálfvirkt. Notendur þurfa ekki að slá neinar tölur inn sjálfir – heimilisbókhaldið sér um það fyrir þá. Niðurstöður birtast myndrænt í kökuritum og þann- ig fæst einstök yfirsýn yfir það hvernig útgjöld skiptast niður í einstaka útgjaldaflokka. HELSTU KOSTIR ● Fyrsta sjálfvirka heimilisbókhaldið ● Enginn innsláttur í Excel og engir útreikningar ● Þú velur hvaða reikningar og kort mynda kökuritið ● Færslurnar eru flokkaðar fyrir þig ● Hægt er að endurnefna og endur- flokka færslur Samkvæmt könnun Pricewater- houseCoopers, sem framkvæmd var haustið 2010, eru netbanka- notendur á Íslandi ánægðast- ir með netbanka Landsbankans. Heildaránægja með Einkabank- ann mældist 4,51 af 5 mögulegum. Síðastliðið vor var þjónusta við Einkabankanotendur bætt enn frekar þegar ný farsímalausn var kynnt og geta viðskiptavinir bankans nú sinnt bankaviðskipt- um sínum hvar og hvenær sem er í símabankanum á l.is. Fræðsla og fróðleikur Lækkaðu yfi rdráttinn Greiða niður skuldir Varasjóður Langtímasparnaður Lífeyrissparnaður landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Námskeið um réttindi lífeyrisþega 24. febrúar – Árbæjarútibú, Kletthálsi 3. mars – Hornafjörður – Ekra, Víkurbraut 10. mars – Vesturbæjarútibú, Hagatorgi Farið verður yfir núgildandi reglur á réttindum og greiðslum lífeyrisþega hjá Tryggingastofnun. Skráning og nánari upplýsingar á vef bankans og í síma 410 4000.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.