Fréttablaðið - 28.02.2011, Síða 18

Fréttablaðið - 28.02.2011, Síða 18
Handverkhúsið er bæði verslun og þjónustufyrirtæki sem býður meðal annars upp á fjölbreytt vornámskeið í málm- og trévinnslu. Nám- skeiðin eru allt frá einu kvöldi upp í heilar helgar. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu þess, handverkshusid.is. Meiri Vísir. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á vísi. Byggingarefni skiptast í tvo flokka: náttúruleg og tilbúin. Náttúruleg efni eru þau sem hafa ekki verið unnin í iðnaði, eða þau sem hafa verið dálítið unnin, eins og timbur eða gler. Tilbúin efni eru framleidd með iðnvæddum aðferðum og hafa verið unnin af mönnum eða vélum, eins og plast eða málning byggð á jarðolíu. Gagnleg eru bæði náttúruleg og tilbúin efni. wikipedia.org „Húsið hefur ekki verið snert að utan síðan árið 1933 og það þarfnast mikilla endurbóta eins og gefur að skilja. Það er klætt skeljasandi en það eru miklar sprungur í útveggjum, svo húsið lekur og alle græjer,“ segir kvik- myndaleikstjórinn Friðrik Þór Friðriksson, sem býr í gömlu húsi í miðbænum, sem hefur ekki verið gert við síðan það var byggt árið 1933 og þarfnast endurbóta. Knud Zimsen, fyrrum borgar- stjóri í Reykjavík, byggði húsið á sínum tíma og bjó í því til dauða- dags árið 1953. „Þá eignaðist Háskóli Íslands húsið og ein- hvern tímann hýsti það sendi- ráð Sovétríkjanna,“ telur Frið- rik upp, sem festi sjálfur kaup á þessu steinsteypta tveggja hæða draumahúsi 2002. „Ég gerði það þá upp að innan. Missti það reyndar árið 2005 en keypti það aftur rétt fyrir hrun.“ Friðrik Þór hefur mikinn áhuga á að gera húsið upp en það er aðeins eitt sem vantar upp á. „Ég á enga peninga,“ segir hann og hlær. „Ég er með gengistryggt lán á húsinu sem á enn eftir að endurreikna og á meðan geri ég ekki neitt. Ég held að margir í miðbænum séu í svipaðri stöðu og á meðan liggja menningar- verðmæti undir skemmdum,“ segir hann og bætir við að Besti flokkurinn hljóti hins vegar að gera húsið sitt að safni fyrr en seinna. Er þá erfiðara að fá lán til við- gerða á húsinu en styrki til kvik- myndagerðar? „Ég held að það sé jafn erfitt í dag,“ svarar hann þá. - uhj Liggur undir skemmdum Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndagerðarmarður býr í gömlu húsi í miðbænum sem þarfnast viðgerða. Leikstjórinn getur hins vegar ekki fjármagnað verkið og á meðan liggur húsnæðið undir skemmdum. Friðriki Þór finnst sárt að horfa upp á húsið drabbast niður en hefur ekki fjármagn til að gera það upp. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Knud Zimsen byggði húsið 1933 sem var um tíma í eigu Háskóla Íslands. Viðhald

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.