19. júní


19. júní - 19.06.1952, Side 41

19. júní - 19.06.1952, Side 41
heima í Vonarstræti 12 í Reykjavík. Við unnum saman í stjórn Lestrarfélags kvenna Reykjavíkur, og var hún ein af stofnendum þess félagsskapar. Theódóra gerðist brátt lífið og sálin í félaginu og voru þær frændsystur hennar, Ólína og Herdís Andrésdætur, oft gestir á fundum okkar. Við höfðum stolnað mánaðarrit innanfélags, og var þar mörg frásögnin skemmtileg og fróðleg og ferskeytlur, hringhendur og þulur vel kveðnar. Var stundum kveðist á á fundum félagsins, og kvað frú Theódóra okkur að jafnaði í „kútinn“ — þó oft værum við margar á rnóti henni. — Við sögðum lienni, að þetta væri enginn vandi fyrir hana, því að vantaði liana vísu, þá kvæði hún bara samstundis eina! Margar af greinum Mán- aðarritsins voru birtar í blöðum og tímaritum — og margir munu minnast þess, að þulurnar henn- ar Theódóru komu út í sérstakri bók árið 1916, prýddar teikningum eftir Guðmund Thorsteins- son listmálara, systurson lrú Theodóru. Önnur ótgáfa kom út árið 1938, og sú Jniðja árið 1950. Ennfremur birtust á prenti árið 1920 nokkrar af smásögum Theódóru undir nafninu „Eins og gengur". Voru flestar þessar sögur skrifaðar fvrst fyrir Mánaðarritið eða Jrá lesnar upp á félags- fundum. Hefur frú Theódóra oft sagt við mig: oÞessar ritsmíðar mínar hefðu að líkindum aldrei orðið til, hefði ég ekki verið í Lestrarfélaginu og íofað að skrifa eitthvað í blaðið okkar. Ég vildi ekki svíkja Jrað.“ Þessi síðustu orð lýsa Theódóru Veh Hún vildi ekki bregðast trausti neins! Smá- sagan „Skuldin", sem var í 1. árg. Mánaðarritsins arið 1912 vakti nrikla eftirtekt og nokkrar ritdeil- Ur innan félagsins.. Sú saga var alllöngu síðar Prentuð í Helgafelli. í Skírni skrifaði frú Theó- óóra allmargar greinar. Má Jrar nefna „Þulur“, arið 1913 og „Ofan úr sveitum". Ennfremur »E)raumljóð“, árið 1916. í þulugreininni lýsir hún gildi smásagnanna og þululjóðanna fyrir oppeldisstarfið. — Hún Jrekkti þann sígilda sann- ^eika, að þulur, ljóð og sögur eru ágætt uppeldis- meðal. Með Jreim er oft hægt að kaupa sér frið og r° meðal unga fólksins, sem ella fengist ekki, rienia ef vera skyldi að handavinna eða eitthvert föndur eða fítl gæti tekið hug barnanna. Ég man sv° glöggt glampann í augum frú Theódóru, er luin eitt sinn sýndi mér krosssaumsdúka og smá- Pjotlur, er börnin liennar höfðu saumað og prýtt °o það drengirnir engu síður en telpurnar. — f g' heimsótti skáldkonuna nú l'yrir skömmu á JÚNÍ heiinili Sigurðar verkfræðings, sonar hennar. Þar sat hún hjá myndunum sínum og steinasafninu og saumaði gleraugnalaust í sessu lianda einu barariabarninu sínu. Öll vilja Jrau eignast grip, er nnna héfur búið til. Það er alltaf einhver sérstak- ur blær yfir vinnunni hennar Theodóru. Hið list- ræna hefur verið og er enn þrátt fyrir rnörgu ár- in, sterkur Jráttur í lífi og starfi hennar og hefur haft sín álirif í uppeldi unga fólksins í kringum hana. Þegar Stephan G. Stephansson heimsótti ís- land, árið 1917, var hann til heimilis í Vonar- stræti 12. Þar orti hann kvæði fyrir Landsspítala- sjóðsdaginn — daginn, sem á Jieim dögurn var oft nefndur „Kvennadagurinn". — Var kvæði Jtetta sungið 19. júní, er skemmtanir fóru fram til ágóða fyrir byggingu Landsspítalans. Eitt af er- indum kvæðisins hefur skáldið skrifað í minnis- bók frú Tlieódóru. F.r Jrað svo hljóðandi: „En fremst eru þær af freyjum lands og fegurst Jreirra minni, sem góðum ástum göfugs manns ei glötuðu neinu sinni. Þó hárið yrði hvítagull og héla á kinnum rjóðum, með frjálsan hug og hjörtu full af lilýjum vögguljóðum." Og nú er hárið Jritt sem hvítagull, kæra vin- kona, „og héla á kinnum rjóðum“, en hugurinn frjáls og hjartað fullt af hlýjum og sterkum minn- ingum fyrri daga. — Njóttu Jreirra lengi! Laufey Vilhjálmsdóttir. Skrifstofa K.R.r.í. er opin þrisvar í vikn sem hér segir: A þriðjudögmn kl. 4—6 síðd., formaður félagsins til viðtals. Á fimmtudögum kl. 4—6 síðd., afgreiðsla fvrir Menningar- og minningarsjóð kvenna. Á föstudögum kl. 4—6, gjaldkeri K.R.F.Í. til viðtals. * Konur, utan Reykjavfkur, sem kynnu að vilja scnda „19. júní" greinar til birtingar á næsta ári geta sent þær til skrif- stofu K.R.F.Í., Skálholtsstíg 7, hvenær sem er á árinu, þó eigi sfðar en svo, að þær séu komnar til skrifstofunnar fyrir marz- mánaðarlok 1953. * ATHUGIÐ: Nokkur eintök af hlaðinu frá fyrra ári (1951) cru cnn fáanlcg á afgtciðslu blaðsins. 27

x

19. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.