19. júní


19. júní - 19.06.1952, Page 44

19. júní - 19.06.1952, Page 44
ÓUÐRÚN NIELSEN: Sundæfingar fyrir húsmæður Eins og menn muna, fór fram sund- keppni milli Norðurlandanna fimm síðastliðið sumar, er lauk með sigri ís- lendinga á mjög glæsilegan hátt. Keppt var í 200 m bringusundi, þar sem alþjóð skyldi taka þátt í. Það mun óhætt að segja að flestir ef ekki allir, sem tök höfðu á, jafnt ungir sem gamlir, æðri sem lægri, gjörðu sem þeir gátu. Fátt var meira um rætt en 200 m. sundið þann tíma, er keppnin stóð yf'ir og á eftir meðan beðið var úrslitanna. Svo kom fréttin, við höfðum sigrað. Allir fögn- uðu þeim sigri af alhug. Sundnáinskeið höfðu verið haldin víðs vegar um landið á öllum sund- stöðum, þar sem þátttakendur voru, bæði byrj- endur og aðrir, er aðeins þurftu æfingar við. í Sundlaugum Reykjavíkur voru haldin námskeið bæði fyrir börn og konur, og voru námskeið þessi mjög vel sótt. Kvennanámskeiðin voru bæði kvölds og morgna. í morguntímunum var sú nýlunda tekin upp, að sundlaugarnar voru lokaðar öðrum en konum. Konurnar sýndu, að þær mátu það, sem fyrir þær hafði verið gert og fjölmenntu. Margan sólskins- morguninn mættu þar oft hátt á þriðja hundrað konur. Kennslan, sem þær nutu, var þeim alveg að kostnaðarlausu, greiða þurfti aðeins aðgangs- eyri, sem þá var 1 kr. í hvert sinn. Kvennanám- skeið þessi voru haldin á vegum Samnorrænu sundnefndarinnar, en bæjarstjórn annaðist kennslulaun. Við skulum bregða okkur inn að Sundlaugum einn morgun vorið 1951. Kl. er 8i/íþ Veðrið er yndislegt. Sólin skín og loftið titrar af fuglasöng. Við sjáum konur á öllum aldri streyma að sund- laugunum með handklæði og sundföt. Þær eru glaðlegar á svipinn og hlakka til hinnar hollu hreyfingar, sem bíður þeirra. Þar eru mæður með börn sín. Þær hafa ekki komizt að heiman án þeirra. Aðstæður þarna eru þó ekki góðar til þess að hafa börnin með. Ekki er óhætt að skilja þau eftir á bökkunum umsjárlaus, og ef þau fá að fara ofan í laugina, verða mæðum- ar að sinna þeim og sitja því sjálfar á hakanum, auk þess eru þrengslin í laug- inni mjög mikil. Við komum inn fyrir og snúum okk- ur fyrst að grunnu lauginni. Konurnar eru jjiegar komnar ofan í, teknar til starfa, og þar er starfað af lífi og sál. Ef eitthvað mistekst, er reynt aftur og aft- ur. Vart mun gefa að líta duglegri né áhugasamari nemendur en þær. Takmarkið er framundan, 200 m. sundið, og Joað á að takast. Ef allir kennarar Jiefðu slíka nemendur sem þess- ar konur eru, væru þeir allra manna öfundsverð- astir. í djúpu lauginni eru þær konur, sem alsyndar eru, sumar við æfingar, aðrar eru að ljúka 200 m. sundinu. Á bökkunum sitja þær fjölmargar og njóta sólarinnar eftir góðan sundsprett. Það er auðséð að þær njóta líðandi stundar. Alls staðar eru brosandi andlit og það heyrast glaðvær hlátrasköll. Þannig Jíður þessi morgunstund, þar sem gleði og sameining ráða ríkjum. Að henni lokinni er haldið heim, hver til sinna skyldustarfa. Þessir sundtímar leiddu það í ljós, hve nauð- synlegt er að gefa konunum tækifæri til hollrar hreyfingar sem og öðrum, þó sérstaklega hús- mæðrunum. Það er ekki eingöngu hve heilbrigt Jjað er fyrir þær sjálfar, lieldur fyrir þjóðina í lieild, Joví það er ljóst, að sú móðir er af eigin reynd fær að kynnast heilbrigðri og hollri hreyf- ingu mun fremur örfa börn sín til slíkrar þátt- töku heldur en sú móðir, er aldrei hefur kynnzt því sjálf. Það væri æskilegt og mjög nauðsynlegt, ef liægt væri að efna til slíkra námskeiða sem þessara á- kveðinn tíma ár hvert. Gjaldið þyrfti að vera mjög vægt, svo að öllum væri kleift að sækja þau. Tíminn þyrfti að vera Jientugur fyrir húsmæð- urnar, sem hafa sínum skyldustörfum að gegna 19. JÚNÍ GnÖrún Nielsen 30

x

19. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.