19. júní - 19.06.1970, Page 16
Þorsteinn Sigurðsson talkennciri:
Fáein orð
um sérkennslu
Það er sameiginleg reynsla allra þjóða, sem komið hafa
á hjá sér skólaskyldu, að nokkur hluti nemendanna nær
ekki námsárangri í samræmi við áskapaða hæfileika
sína við venjulegar skólaaðsiæður; veldur ekki hinni al-
mennu námskröfu eða spillir vinnufriði annarra í skól-
anum.
Orsökin er sú, að þessir nemendur víkja á einhvern
hátl frá eðlilegum vaxtar- og þroskaferli jafnaldra
sinna. Þar getur verið um að ræða fróvik í greindar-
þroska, þ. e. a. s. meira eða minna skerta greind; líkam-
lega fötlun af einhverju tagi, allt frá hreyfihömlunum
til skynjunarvandkvæða svo sem sjóndepru eða heyrnar-
deyfu og geðræn eða félagsleg afbrigði, sem hirtast í
einhvers konar hegðunarvandkvæðum.
Bæði til þess að veita þessum afbrigðilegu nemendum
kennslu og uppeldi við hæfi og losa skólann við þau
óþægindi og truflun, sem kennslu slíkra nemenda er
samfara í venjulegu bekkjunum, hefur verið reynt að
skapa þeim námsaðstæður í samræmi við hinar sérstöku
þarfir hvers og eins.
Slík starfsemi er nefnd sérkennsla (special educa-
tion ), og í grónum og þróuðum skólakerfum er hún vel
skipulögð og miklu lil hennar kostað í mannafla og
búnaði, eins og sjálfsagt er.
Starfsemin fer ýmist fram í almennu skólunum sjálf-
um eða sérstökum skólum og stofnunum utan þeirra, og
ræðst það af eðli og stigi afhrigðanna.
I almennu skólunum er sérkennslan tvíþælt. Annars
vegar eru nemendurnir teknir til sérkennslunnar nokkra
tíma á viku, en fylgja að öðru leyti kennslunni í sínum
hekk. Hér er aðallega um að ræða nemendur, sem eiga
í örðugleikum með móðurmálsnám (lestur, stafsetn-
ingu) eða haldnir eru málgöllum. Sérkennslan fer fram
einstaklingslega eða í 3-8 nemenda hópum, annaðhvort
í talkennslustofu eða lesveri (skolklinik) skólans. Hins
vegar eru sérbekkirnir, þar sem nemendurnir eru lið-
langan skóladaginn og fá alla sína kennslu.
Þar sem aðstæður leyfa, eru sérbekkirnir af ýmsu
tagi:
þroskabekkir fyrir 7 ára börn, sem ekki liafa náð
skólaþroska við upphaf skólagöngunnar;
lesbekkir fyrir börn eldri en 7 ára, sem eiga við sér-
staka lestrarörðugleika að striða;
14
19. JÚNÍ