19. júní - 19.06.1970, Page 24
Sigurlín Gunnars-
dóttir, jorstöðukona
fíorgarspítalans.
Skipulag og umhyggja
1 hverju jelsl starj þitt?
I stultu máli er það aðallega stjórnunar- og skipulags-
störf, og í samráði við deildarhjúkrunarkonu er ég
ábyrg fyrir verkstjórn og hagræðingu á deildinni. Enn-
fremur, að nægjanleg hjálpar- og hjúkrunargögn séu
fyrir hendi, til þess að unnt sé að veita góða þjónustu.
1 minn verkahring fellur eflirlil með störfum og
kennslu hjúkrunarnema, sem dveljast á spítalanum hluta
úr sínu námi. Skipulegg ég einnig námskeið í sjúkra-
hjálp, sem eru haldin árlega. Annast ráðningar til hjúkr-
unarstarfa og fleiri þjónustustarfa. Mjög náið samstarf
er á milli mín cg hjúkrunarliðs, en samband mitt við
sjúklingana er minna, og sakna ég þess, en það hlutverk
fel ég að mestu leyti aðstoðarforstöðukonu. Mikill hluti
af tíma mínum fer í viðtöl, og þá hef ég fundi með
starfsliði og sil einnig fundi með Sjúkrahúsnefnd
Reykjavíkurborgar, en hún ræður forstöðukonu, og ber
ég ábyrgð gagnvart henni og framkvæmdastjóra hennar.
Viltu segja okkur eitthvað um undirbúning að opnun
Borgarspítalans?
Þegar byggja þarf frá grunni, er undirbúningsstarfið
mjög þýðingarmikið. Margar spurningar vakna, viðvíkj-
andi fyrirkomulagi, búnaði öllum og vinnuhagræð-
ingu; margt að athuga, ákvarðanir teknar og áætlanir
gerðar og síðar unnið eftir þeim. Allt þetta krefst ná-
kvæmni og mikillar vinnu. Deildirnar eru ólikar inn-
byrðis, og hver hefur sínu hlutverki að gegna.
Það voru ótrúlega margir aðilar, sem unnu að undir-
búningsstarfinu, sem krefst mikillar samvinnu og gagn-
kvæms skilnings.
Hvar hejur þú hlotið jnna hjúkrunarmenntun?
Ég brautskráðist frá Hjúkrunarskóla íslands árið
1951 og hef alltaf unnið við hjúkrunarstörf síðan, bæði
heima og erlendis. Árið 1960 fór ég í náms- og
kynnisför til Englands varðandi sjúkrahússtjórn og
dvaldist þar í sex mánuði, og árið 1963 fékk ég stvrk
frá Alþjóðaheilbrigðisstofnun Sameinuðu þjóðanna
(World Heallh Organisation) lil þess að stunda fram-
haldsnám í spítalastjórn í Danmörku í eitt ár. Áður en
ég tók við starfi minu hér, fór ég í 3ja mánaða kynnis-
för til Norðurlandanna, sem mjög var lærdómsrík, og
fékk ég styrk til þeirrar ferðar frá Evrópuráði.
Fara hjúkrunarkonur rnikið til framhaldsnáms?
Því miður eru þær miklu færri en æskilegt væri, því
að þörfin er mikil fyrir hjúkrunarkonur með framhalds-
menntun, á ég þá einkum við í hjúkrunarkennslu, spít-
alastjórn og heilsuvernd: En nokkrar hjúkrunarkonur
eru á hverju ári við margs konar sérhæfingu i hinum
ýmsu greinum innan hjúkrunar.
Er ekki hægt að stunda jramhaldsnám hér heima?
Það er hægt að sérhæfa sig í tveim greinum, skurð-
stofuhjúkrun og röntgenhjúkrun, en stærsti þátturinn i
þessu hvoru tveggja er starfsþjálfunin. Á Landsspítal-
anum slendur núna yfir skipulögð kennsla í svæfingum
fyrir hjúkrunarkonur.
Hvað er gert aj hálju stofnunarinnar til að viðhalda
og auka j)ekkingu hjúkrunarkvenna?
A Borgarspítalanum hafa undanfarin 3 ár verið skipu-
lagðir fyrirlestraflokkar fyrir hjúkrunarkonur spítalans,
og einnig er þeim oft boðið að hlusta á fyrirlestra, sem
fræðslunefnd lækna Borgarspítalans annast.
Handbækur fyrir hjúkrunarkonur eru á öllum deild-
um, sem gerir þeim kleifl að lesa sér til, og hér er
sérstakl bókasafn fyrir starfslið, og er verið að byggja
upp góðan bóka- og tímaritakost fyrir hjúkrunarkonur.
Er skipulögð endurhœfing fyrir lijúkrunarkonur?
Fyrsta endurhæfingarnúmskeiðið fyrir hjúkrunarkon-
ur hér á landi var haldið í Borgarspítalanum á s.l. ári,
og var það miðað við störf á handlækninga- og lyflækn-
ingadeildum. Það stóð í 4 vikur og sótlu það 9 hjúkr-
unarkonur, en við áttum von á almennari áhuga meðal
hj úkrunarkvenna.
Kennslan var bæði verkleg og í fyrirlestraformi.
Hver var árangurinn?
Hjúkrunarkcnurnar voru mjög ánægðar með nám-
skeiðið og flestar eru nú við hjúkrunarstörf. Ég tel þvi
þetta námskeið hafa borið góðan árangur.
Framhald á hls. 25
19. J ú n í
22