19. júní - 19.06.1970, Side 40
Ljósm. Mats Wibe Lund jr.
s --
' ' 1 tÖT* iiYj.* '
Vegleg umgjörð um hinn fagra og velunna lieimilisiðnað
Á s. 1. sumri opnaði Heimilisiðnaðarfélag íslands
aðra verzlun sína á tveim hæðum í Hafnarstræti 1-3.
Þessi nýja verzlun, sem Gerður Hjörleifsdóttir veitir
forstöðu, er sérlega smekkleg og er því vegleg umgjörð
um hinn fagra og vel unna íslenzka heimilisiðnað, sem
þarna er á boðstólum.
Áhugi fólks fyrir þessum fallegu og nytsömu íslenzku
hlutum fer sívaxandi, ekki síður hjá okkur íslendingum
en erlendu ferðafólki. Islendingar eru á ný að átta sig á,
að ullin okkar skýlir okkur hezt í vetrarkuldunum, en
verzlunin selur mikið af ullarvörum.
A efra lofti verzlunarinnar er sýnd tóvinna og vefn-
aður. Skólafólki gefst koslur á að koma þangað í heim-
sókn í fylgd með kennara. Frú Hulda Stefánsdóttir
fyrrv. skólastjóri hefur kynnl ullina cg sýnt tóvinnu.
Þetta framtak hefur vakið áhuga og verðskuldaða at-
hygli.
Með opnun þessarar nýju verzlunar hefur heimilis-
iðnaðarfélagið fengið rýmra húsnæði fyrir starfsemi
sína, sem eykst með ári hverju, og hefur jafnframt
möguleika til að halda þar námskeið og hafa litlar sýn-
ingar.
Teikningar af verzluninni gerðu arkitektarnir Guð-
rún Jónsdóttir, Knul Jeppesen og Stefán Jónsson, en tré-
smíði annaðist Tréver h.f.
EG.