19. júní - 19.06.1979, Blaðsíða 12
,, Þrjózkan
heldur okkur
gangandi
Húsbyggjendur í
Breiöholti sóttir heim
Þórunn
Gestsdóttir.
Þekktur maöur sagði eitt sinn,
endur fyrir löngu, aö lífió væri
saltfiskur, en hlutirnir hafa mikiö
breytzt á skömmum tíma og lífið
úr saltfiski í steinsteypu. Þettavoru
hugrenningar blaðamannsins,
þegar hann einn eftirmiödag nú i
sumarbyrjun ók upp í Breiðholt og
hin geysilega uppbygging blasti
við augum.
Förinni var heitið í Seljahverfið,
nánara tiltekið að Gljúfraseli 11, en
j^ar búa hjónin Helga Kristín
Stefánsdóttir húsmóðir og Guð-
mundur Baldursson rafvirki,
ásamt börnum sínum þremur og
heimiliskettinum, sem ennþá er
óskírður. Við höfðum frétt, að þessi
ungu hjón hefðu af miklum dugn-
aði og atorku komið þaki yfir fjöl-
skylduna á tiltölulega skömmum
tima, og þá er það spurningin um
hvernig hjón með þrjú ung börn
leysa vandamálin, sem fylgja því
að byggja.
„Þau augnablik hafa komiö, að
okkur hel'ur fundizt allt vera komið
í strand, peningarnir þrotnir og
erfitt að ná tökum á aökallandi
verkefnum, sem blasa við í hverju
horni, en þá er það þrjózkan sem
hleypur í okkur og heldur okkur
gangandi“, segir Helga Kristín, er
boðið haföi veriö til stofu og
spurningu um erfiðleika varpað
fram. Iáklega er saga þeirra einnig
saga margra annarra, sem leggja út
í byggingaframkvæmdir í verð-
bólguþjóðfélagi nútímans, frásögn
ungra hjóna, sem vilja búa vel í
haginn fyrir sig og börn sín.
En gefum Guðmundi orðið:
„Við Helga höfum verið gift í ein
mu ar, og fljotlega eftir að við hóf-
um búskap eignuðumst við íbúð
10