19. júní - 19.06.1979, Blaðsíða 19
Réttarstaða barna
- barnaréttur lögfrseöingur
Að þessu sinni fjallar ,,19. júní“
að miklu leyti um fjölskylduna. Á
liðnu ári var fjallað um réttarstöðu
hjóna og sambúðarfólks hvors
gagnvart hinu í og við slit hjóna-
bands/sambúðar. Um þau atriði
vísast því til þess, er þar greinir.
Hér er eingöngu til umfjöllunar
réttarstaða barna, og þá fyrst og
fremst innan fjölskyldunnar —
gagnvart foreldrum. Að sjálfsögðu
væri hægt að fjalla um þessi rétt-
aratriði í löngu máli, en þar sem
þess er ekki kostur að sinni, verður
aðeins drepið á hinu helzta.
Sú grein lögfræðinnar, sem
fjallar um réttindi og skyldur,
(réttarstöðu) fjölskyldunnar og
einstakra meðlima hennar inn-
byrðis og gagnvart þjóðfélaginu,
nefnist sifjaréttur eða fjölskyldu-
ef þau hafa engan munn?
Það fer undir, undir stráin.
Hvað segja blómin?
Bló bló bló blóð. Þau segja alltaf
blóð af því þau kalla sum blómin
blóð.
En geta fiskar talað?
Já.
Hver bjó til fiskana?
Auðvitað mömmurnar.
En hver bjó til blómin?
Fræin, blómfræin.
En hver bjó til fræin?
Blómin.
En hver bjó til vatnið?
Vatnið? Við. Skítugt vatn. Við
gáfum vatninu skítugt vatn.
Hvað gerðist svo?
Af því það er alltaf skítugar
hendurnar og svo þegar við erum
búin að þvo hendurnar ha, þá eru
þær alveg hreinar, skíturinn er
farinn af. Þá fer skíturinn fyrst útí
rör og síðan útí sjó og þá verður
skítugur sjórinn.
En hvaðan fáum við þá hreina
vatnið?
Hreina vatnið? Úr hreinsirör-
>nu. Nei það kemur úr skítuga
törinu ha, og svo kemur það í
vaskinn og þá er það alveg hreint.
En hver bjó til fuglana?
Guð . . . alla fuglana.
En hver bjó til okkur?
Mömmur okkar.
En hver bjó til mömmu okkar?
Mömmu okkar . . . e . . . Guð.
En hver bjó til steinana?
Sólin. Af því að tröllin voru orð-
,n að steinunt.
En hver bjó til jörðina?
Eldgos.
Hver bjó til eldgos?
Enginn.
Enginn? Hvernig getur eldgos
allt í einu komið ef enginn býr það
til?
Bara setja vatn og eld og þá er
komið eldgos.
En hver setti vatnið og hver setti
eldinn?
Risinn. Og flýjaði syo í burtu.
Hvert?
I fimleikaland.
Hverjir búa þar?
Öll dýrin. Dýrin sem að leika sér
að öllum hinum sem vilja leika.
Hefur þú komið þangað?
Nei.
Hvað ætlarðu að verða þegar þú
ert orðinn stór?
Fréttamaður.
Hvað gera fréttamenn?
Segja frá fréttunum.
Hver býr til fréttirnar?
Enginn. Þeir sem vilja þeir búa
til fréttirnar.
Viltu búa til eina frétt fyrir mig?
Nei ég kann það ekki strax. Fyrst
þá fer maður í fréttaskólann en
fyrst þarf maður að leita að frétta-
skólanum.
Hvenær heldurðu að þú getir
fundið hann?
Þegar spurningakallinn kemur
og nær í mig.
Hvernig lítur hann út?
Með svona skegg.
Hver heldurðu að búi á sólinni?
Auðvitað sólin sjálf.
Hvernig lítur hún út?
Einsog sólgeisli.
En hverjir búa á tunglinu?
Funglkarlarnir.
Hvernig líta þeir út?
Alveg einsog skólakallarnir eins-
og spurningakallinn í fréttaskólan-
En hverjir búa á stjörnunum?
Þeir sem koma frá tunglinu,
tunglkallarnir.
En hverjir búa inní jörðinni?
Inni jörðinni? Við.
En við búum ekki inní jörðinni.
Nei heims um ból býr inní jörð-
inni.
Hvernig lítur heims um ból út?
Bara svona hringur.
Hvernig er það á litinn?
Nú er það öll svört.
Og svo var Þórbergur orðinn
leiður og vildi fara út að fljúga
flugdrekanunt sem hét svifflug-
véladrekinn af því hann gat flogið.
Hann gerði tilraun inni herberginu
en svifflugvéladrekinn datt bara
niður á gólf og við Þórbergur
urðum sammála um að það þyrfti
rok rok rok til að lyfta svifflug-
véladrekanum frá jörðinni þar sem
svart heims um ból býr.
Sjálfsmynd.
17