19. júní


19. júní - 19.06.1979, Síða 23

19. júní - 19.06.1979, Síða 23
væri búið að gefast upp á getn- aðarvörnum. Og sumar konur grunar líka, að nú sé áróður um afturhvarf kvenna inn á heimilin farinn að bera árangur. Hver sem astæðan fyrir skyndilegri fólks- fjölgun kann að vera, er það þó ósk allra, að foreldrarnir og samfélagið hafi vilja og getu til að axla þá abyrgð sem hinir nýju þegnar færa þeim og hafi aflögu fyrir þá rými, ekki bara utan og innan dyra, heldur einnig í hjarta sínu. þs Oft hefur ellin æskunnar not Stefán spurði margs þegar þau oku framhjá elliheimilinu. Honum fannst undarlegt að öllu gömlu fólki væri safnað á einn stað. Hann vorkenndi því og fannst það ömurleg tilhugsun að eiga enga fjölskyldu. Til dæmis var ckkert gamalt fólk 1 nýja hverfinu sem hann bjó í. kngir kallar nteð staf og engar gamlar konur sem hægt væri að leiða yfir götur. Hann hafði heyrt að það væri mikið góðverk að gera slíkt. Allt fullorðna fólkið í nýja hverfinu var á svipuðum aldri og foreldrar hans. Hann lagði margar spurningar fyrir þau um þetta mál. Þau bentu honum meðal annars á að litlum börnum væri oft safnað svona saman og þau höfð í hópum a tilteknum stöðum. Þetta væri hagræðingaratriði í nútímaþjóð- félagi, og kostaði minna. En auðvitað hefði þetta marga galla. 1 il dæmis þekktu börnin í nýju nverfunum ekki gamalt fólk og hynntust því ekki lífi þess og þörf- um. Einnig saknaði gamla fólkið barnanna. Það vildi hafa líf í kringum sig en ekki eintónt gömul °g þreytt andlit. Mamma og pabbi sögöu að þessu yrði trúlega ekki hreytt á næstunni, því slík breyting kallaði á ööruvísi þjóðfélag. Þjóð- félag þar sem öllum liði sennilega miklu betur. Það væri þó svo furðulegt með mannfólkið að það talaði mikið um hvað allt hefði verið betra í „gamla daga“, allir hefðu haft nógan tíma og stressið varla þekkst. Þá hefðu verið stórar fjölskyldur þar sem gamla fólkið gætti barnanna og nteira jafnvægi verið á flestum hlutum. Samt stefndi það óðfluga frá slíku lífi og gæti ekki stöðvað sig. Fólkið hefði hætt að trúa á sjálft sig og farið að trúa á peninga. Samt vildi fólkið ekki viðurkenna að peningarnir stjórnuöu því og kölluðu peninga pólitík, og sögðu að hún eyðilegði allt gott. Margur er langt leiddur en lifir þó! Eftir þvi sem hlutverk eldhús- borðsins ntinnkaði í huga Stefáns varð hlutverk hans sjálfs í lífinu öllu flóknara. Það sóttu á hann ýmsar erfiðar spurningar. Hann óttaðist dauðann þessa stundina. Þetta hafði átt upptök sín í kirkju- garðinum um jólin. Þangað liafði hann farið með ömmu og pabba. Þau fóru þessa ferð hver jól, en um þessi jól hafði hann í fyrsta skipti spurst fyrir um heimsóknina. Honum var sagt að þarna hvildu afi hans og aðrir fjarskyldari ætt- ingjar. Heimsóknin væri farin til aö sýna minningu hinna látnu til- hlýðilega virðingu. Sýna að þeir væru geymdir en ekki gleymdir. Stefáni fannst þetta fallega gert, en samt svolitiö ógeðfellt að hugsa til þess að hinir dauðu gætu gert sér grein fyrir því hvort hugsað væri til þeirra. Þeir væru þá bara hálf- dauöir? Amma sagðist vera viss um að hinir framliðnu fylgdust með því sem |x;ir kærðu sig unt að ofan. Stefán vildi fá að vita, hvort þeir dauðu dingluðu til og frá i lausu lofti. Nei, ekki var málið svo ein- falt. Það væru aðeins sálirnar sem færu á flakk. „Hvað var sál“? Nú varð fátt um svör. Jú, maður kæmist einna næst því að sjá sálina fyrir sér ef maður blandaði hjart- anu og heilanum saman og horfði svo á þetta úr mikilli þoku. Að nokkrar pylsur sigldu um loftin blá var ekki svo voðaleg tilhugsun, hitt var verra að vita af líkömum manna djúpt ofani moldinni, þar sem maðkar og mýs áttu sér ból- festu og ferðuðust hindrunarlaust um. Stefán vissi að mýs gátu nagað sundur tré, likkisturnar yrðu þeim því enginn farartálmi. Eftir miklar og siendurteknar útskýringar lét hann huggast. Meðal annars sannfærðist hann unt að líkant- arnir væru alveg tilfinningalausir og leystust upp, þannig að ekki væri hægt að tala um manneskjur lengur. Hins vegar yfirgæfu sálirn- ar líkamann tiltölulega fljótt og ef eitthvað skipti máli hjá dauðri manneskju þá væri það sálin. Honum var sagt að ekki væru allir sammála þessu með sálnaflakkið, en það yrðu menn að ákveða hver fyrir sig alveg eins og hvort þeir tryðu á guð eða ekki. Stefáni leið yfirleitt vel, hann var elskaður af öllurn í fjölskyld- unni og fékk þá athygli og um- hyggju sem hann bað um, stund- um meira. Enda sagði amma oft að hann væri eins mikið kysstur og fóturinn á Sankti Pétri. Eitt er él það er aldrei birtir Ibúðin var seld og einn daginn fluttu þau sitt í hvora áttina mamma og pabbi. Lilja varð eftir hjá mömmu og Stefáni og sagðist ætla að hugsa málið betur, hún gæti ekki tekið ákvörðun um hvar hún vildi búa. 21

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.