19. júní


19. júní - 19.06.1979, Blaðsíða 29

19. júní - 19.06.1979, Blaðsíða 29
þótt börnin séu oft haldin sektar- kennd, sem háir þeim síðar meir. Fjórða gerðin, og hin æskilegasta, að mati stjórnenda, er svo lýð- ræðislega formið, en það ein- kennist fyrst og fremst af hlýju og festu og alls ekki agaleysi, eins og margir virðast halda. I slíku upp- eldi hlusta foreldrarnir og ungl- ingurinn hvert á annað — reyna að finna sameiginlega lausn vanda- mála, sem allir geta sætt sig við, og forðast að ásaka hvorir aðra eða ráðast á með fyrirfram mótaða skoðun. Ef þetta tekst eins og til er ætlast lærir barnið eða unglingur- inn að tjá sig, hugsa sjálfstætt og treysta eigin dómgreind. Mér fannst mjög lærdómsríkt að þurfa að finna þá gerð, sem maður sjálfur tilheyrir.“ Hvaða gagn finnst ykkur þið hafa haft af þessu námskeiði? Svanur: „Heima við var það til- efni til að ræða ýmis mál, sem niaður gefur sér yfirleitt ekki tíma til að ræða sérstaklega með öllum meðlimum fjölskyldunnar.“ Ragnheiður: ,Já, því að börnin voru að vissu leyti þátttakendur í námskeiðinu lika. Þannig var eitt heimaverkefnið, að allir í fjöl- skyldunni áttu að svara sömu spurningunum og síðan var álit allra borið saman heima. Með þessu fá börn og foreldrar tækifæri til að átta sig betur hvert á öðru og hvernig samskipti þeirra eru í raun. Annað slíkt verkefni tók á áfengismálum og gaf þannig tilefni til umræðu og fræðslu fyrir alla í fjölskyldunni.“ Að lokum sagði Svanur: „Annars var gagnið af þessu nám- skeiði margþætt. Þó að þar væri fyrst og fremst fjallað um ungl- ingsárin og þau vandamál, sent þá geta komið upp í mörgurn fjöl- skyldum, þá fannst mér þessi fræðsla eiga alveg eins við um samskipti við fólk almennt, hvar scm er. Þálttaka í svona námskeiði er að því leyti góð, að fólk fer að hugleiða betur, hvar það stendur. Sigrún Júlíusdóttir. Hvaða foreldragerð ert þú? Til að svala forvitni þeirra les- enda, sem áhuga hafa á nánari útlistun hinna fjögurra foreldra- gerða, sem Ragnheiður nefnir, var Sigrún Júlíusdóttir, annar stjórn- enda námskeiðsins, beðin að skýra í stuttu máli frá helstu einkennum hverrar gerðar: Y f irboðaraf ormið Hér er markmið foreldris skil- yrðislaus hlýðni barnsins og það er notað ,,svart-hvitt“ orðalag svo sem „annað hvort eða“, „farðu eftir reglunum á mínu heimili eða farðu burt“. Tjáskiptin eru gjarn- an einhliða, þar sem foreldrið sýnir tilfinningum eða hugmyndum barnsins lítinn áhuga. Foreldrið tekur ákvörðun, setur fram sínar kröfur og leyfir engar mótbárur; „Þú gerir þetta, af því að ég segi það, og það er ég, sem ræð.“ Það er ekki spurt um álit barnsins, og ef það lætur skoðun í ljós, er henni enginn gaumur gefinn. Afleiðingar uppeldis af þessu tagi geta verið þær, að barnið lærir hvorki að taka ákvörðun né axla ábyrgð, vegna þess að það fær ekki tækifæri til þess. Það veldur einnig skorti á hlýju og gagnkvæmum stuðningi milli foreldris og barns. Ef barnið hlýðir, gerir það það fremur af ótta en af eigin hvötum, og sennilegt er, að það noti álíka hörkulegar aðferðir við aðra, sem aftur gerir því erfitt um vik að mynda mikilvæg tengsl við annað fólk. Sjálfsvirðing og öryggi þróast síður og barnið getur alla tíð orðið háð leiðsögn annarra. Hringlandaformið I þess háttar uppeldi er markmið foreldrisins að forðast árekstra og halda friðinn fyrir alla muni. For- eldrið gefur í skyn með orðum eða látæði, að því sé ofgert, að það sé ráðvillt, hafi áhyggjur og sé ekki almennilega í tengslum við barnið. Ákvarðanataka einkennist mest af hringlandahætti. Refsingu er kannski hótað, en síðar dregur for- eldrið í land til að forðast árekstra. Barnið á ekki kost á nokkurri al- mennilegri línu eða vísbendingu. Það fær oftast sínu framgengt með því að halda vel á málum. Afleiðingar þessarar aðferðar geta orðið, að unglingurinn lærir að hafa töglin og hagldirnar og fá sínu framgengt við aðra og er þá eins líklegt, að hann verði lítt næmur á tilfinningar annarra. Hann verður einnig illa fær um að þola reglur og hætt við, að hann verði stöðugt upp á móti yfirboð- urum sínum. Hann lærir heldur ekki hvernig á að taka ákvarðanir með því að nota raunhæfa dóm- greind og samvinnu, en þess í stað fullnægir hann óskum sínum á stundinni. Ofverndunarformið I því er markmið foreldris fyrst og fremst að vernda barnið frá að eiga á hættu að öðrum geðjist ekki að því og aðaláherslan er á mikil- vægi þess, að falla öðru fólki í geð. Tjáskipti eru meira á báða bóga, foreldrið sýnir áhuga og hlustar á barnið/unglinginn, hefur áhyggj- ur af honum og er annt um hann. Ákvarðanir byggjast að nokkru leyti á samkomulagi, en þó bendir foreldrið á, að unglingurinn þurfi að fara eftir því, sem aðrir segja og vera ábyrgur gagnvart öðrum. Sektarkennd er notuð sem stjórn- unartæki, þ.e. „þú veist, hvað það særir okkur,“ eða „við erum svo áhyggjufull, þegar þú kemur of seint“. Hugsanlegar afleiðingar of- verndunar eru, að hegðun ungl- ingsins byggist á sektarkennd og hræðslu fremur en ástæðum, sem eru honum sjálfum mikilvægar. 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.